Hagtíðindi - 01.01.1916, Page 11
HAGTÍÐINDI
7
Mannfjöldinn á íslandi síðan 1910.
Síðasta allsherjar manntal lijer á landi fór fram 1. des. 1910.
Reyndist þá mannfjöldinn 85 ÍS3. Mannfjöldann á hverju ári síðan
má finna með því að bæta við tölu fæddra og innfluttra hingað til
lands, en draga frá tölu dáinna og útfluttra hjeðan af landi. En
þar er sá hængur á, að ókunnugt er um tölu innflultra og útlluttra,
nema þeirra sem flytjast lil Vesturheims, en á undanfarandi áratug-
um hefur reynst svo, að útflutningur manna hjeðan af landi til
annara landa en Vesturheims hefur hjerumbil jafnast á við innflutn-
ing hingað lil lands frá þeim löndum, og mun líklega óhætt að
gera ráð fyrir, að svo sje enn. Hagstofan hefur því reiknað út
mannfjöldann 1. janúar og 1. júlí ár hvert með því að leggja við
mannfjöldann í byrjun hvers misseris tölu fæddra á misserinu, en
draga frá tölu dáinna og úlflullra til Vesturheims á misserinu. Af
þessum tölum liefur svo aftur verið reiknaður meðalmannfjöldi á
árinu. Samkvæmt þessu hefur mannfjöldinn verið siðan 1910:
Meðal-
1. janúar 1. júli manníjðldi
1911 ...... 85 221 85 502 85 573
1912 ..... 86069 86 411 86 452
1913 ..... 86 918 87 287 87 317
1914 ..... 87 776 88 087 88122
1915 ..... 88 539
Ef það skyldi reynast rjett, að útflulningur manna til annara
landa en Vesturheims jafnist á við innflutning þaðan eins og að
undanförnu, þá má gera ráð fyrir, að þessar tölur sýni mannfjöld-
ann í heild sinni eins og hann hefur verið í raun og veru. Sam-
kvæmt því hefur landsmönnum fjölgað árið 1911 um §48 manns,
1912 um 849, 1913 um 858 og 1914 um 763. Fjölgunin hefur
þannig orðið minni árið 1914 heldur en árin á undan þrátt fyrir
það þólt fæðingar væri óvenjumargar það ár og Vesturheimsferðir
litlar, en manndauði var þá óvenjuinikill og liefur hann dregið úr
fjölguninni. Samanborið við mannfjölda í byrjun hvers árs fjölgaði
landsmönnum árið 1911 um 10.o°/oo (af þúsundi), 1912 og 1913 um
9.9°/oo og 1914 um 8.7#/oo. Til samanburðar má geta þess, að i
Danmörku fjölgaði landsmönnum 1914—15 um 10.s°/oo, í Noregi
1914 um 9.5°/oo og í Svíþjóð sama ár um 7.3°/oo.
Mannfjöldann á einstökum stöðum á landinu er ómögulegt að
reikna út eftir fæðingum og manndauða, því að flutningarnir frá
einum stað til annars gera sífeldan glundroða. En á hverju ári í