Hagtíðindi - 01.05.1955, Blaðsíða 3
1955
HAGTlÐINDI
47
daga. Faglærðir menn fá þetta Iíka, en hjá þeim rennur þessi greiðsla í sjúkrasjóð
viðkomandi félaga.
Þá var og ákveðið, að orlofsfé skyldi hækka úr 5% í 6% af kaupi, þannig
að orlofið verði 18 virkir dagar, í stað 15 daga áður. Orlof ber að reikna af dag-
vinnukaupi eingöngu.
Loks var í hinurn nýju samningum ákvæði um stofnun atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs, og var ríkisstjórnin þar aðili á þann hátt, að hún gaf fyrirheit um, að
á næsta þingi skyldu sett lög um atvinnuleysistryggingar í samræmi við ákvæði
sanninganna þar að lútandi. í sjóð þennan á að greiða sem svarar 4% af árlegri
kaupgreiðslu til meðlima félaga í Alþýðusambandinu, miðað við dagkaup Dags-
hrúnar, og greiði vinnuveitendur 1%, ríkissjóður 2% og sveitarfélög 1%. Greitt
verður í sjóðinn fyrir vinnu frá og með 1. júní 1955.
Auk þess, sem hér hefur verið getið um, voru teknar til greina ýmsar sér-
kröfur félaga um hlunnindi eða samræmingu kaups.
Með því að 1% veikindapeningar, hækkun orlofs úr 5% í 6% og 4% tillagið
í atvinnuleysistryggingasjóð reiknast líka af þeim 10%, sem kaup hækkaði um,
þá er hækkuninl6,6% að öllu meðtöldu, miðað við dagvinnukaup og ef ekki er
tekið tillit til sérákvæða í samningum einstakra félaga, sem raunar skipta litlu
máli fyrir heildarniðurstöðuna. Frá sjónarmiði vinnuveitenda er hækkunin 13,3%
þ. e. 16,6% að frádregnum 3,3% vegna tillags ríkissjóðs og sveitarfélaga í atvinnu-
leysistry ggingasj óð.
Flest verkalýðsfélög, sem voru utan kjaradeUunnar í marz/apríl s.l., hafa
sagt upp samningum sínum, og má gera ráð fyrir, að samið verði um hliðstæðar
breytingar á þeirra kjörum.
Hinn 10. maí 1955 samþykkti Alþingi lög um breytingar á greiðslu verðlags-
uppbótar á laun opinberra starfsmanna, sem koma til framkvæmda 1. júlí 1955.
Verður skýrt frá ákvæðum þessara laga í næsta blaði Hagtíðinda, jafnframt því að
gerð verður stutt grein fyrir niðurstöðum samninga um kjör verzlunarfólks í Reykja-
vík, er nú standa yfir, ef þeim verður þá lokið.
Innflutningur nokkurra vörutegunda. Janúar—apríl 1955.
Magnseiningin Jan.—apríl 1954 Apríl 1955 Jan.—apríl 1955
er tonn fyrir allar vörurnar, nema timbur, aem talið er í þúi. ten.feta Kornvörur, að mestu til manneldis .. Magn Þúi. kr. Magn Þúi. kr. Magn Þúi. kr.
4 349,9 9 597 1 408,2 3 119 3 702,7 7 437
Fóðurvörur 4 810,0 7 388 858,7 1 222 8 841,6 12 881
Sykur 1 688,4 3 537 1 113,4 2 173 2 285,3 4 785
Kaffi 573,1 10 970 331,1 6 594 604,5 12 352
Áburður 5 611,3 6 264 - - 882,9 1 150
Kol 17 834,6 6 923 366,7 160 27 600,4 10 659
Salt (almennt) 26 773,7 5 327 6 032,7 1 629 17 088,9 4 232
Brennsluolía o. fl 21 791,8 8 977 9 976,4 3 656 19 842,2 7 465
Bensín 9 608,4 9 124 493,7 341 11 053,2 11 990
Smurningsolia 1 207,7 3 458 409,1 1 455 931,4 3 033
Sement 13 024,2 4 185 185,0 67 13 222,1 4 455
Timbur (þús. teningsfet) 243,7 6 877 23,6 556 138,5 4 546
Járn og stál 3 877,3 12 094 704,9 1 501 3 293,2 8 954