Hagtíðindi

Årgang

Hagtíðindi - 01.12.1970, Side 12

Hagtíðindi - 01.12.1970, Side 12
208 HAGTtÐINDI 1970 Útfluttar vörur eftir löndum. Janúar—nóvember 1970 (frh.). Tonn 1000 kr. Sviss 0,0 10 Vestur-Þýzkaland ... 12,6 762 Bandaríkin 19,7 5.960 Kanada 10,9 2.733 Ástralía 0,0 4 91 Gamlir málmar 5.771,6 45.662 Danmörk 1 058,8 16.108 Noregur 529,1 1.391 Svíþjóð 749,0 3.234 Belgía 438,3 2.295 Bretland 278,4 1.050 Holland 1 629,7 13.910 Sviss 1,1 710 Vestur-Þýzkaland ... 1 087,2 6.964 93 Gömul skip 2.505,0 16.701 Ítalía 2 505,0 16.701 Tonn 1000 kr. 99 Ýmsar vörur 4.945,2 36.078 Danmörk 286,2 4.591 Færeyjar 98,5 2-956 Noregur 43,9 2.409 Svíþjóð 1 750,0 12.958 Belgía 0,3 83 Bretland 1.205,1 2.920 Holland 1.290,8 2.452 Ítalía 0,6 8 Sviss 0,0 67 Austur-Þýzkaland .. 0,3 8 Vestur-Þýzkaland ... 32,1 1.012 Bandaríkin 236,9 6.532 Kanada 0,5 82 Útsöluverð á ýmsum neyzluvörum og þjónustu í Reykjavík. Hér fara á eftir verðupplýsingar, sem safnað hefur verið vegna hins ársfjórðungslega útreiknings á vísitölu framfærslukostnaðar í Reykjavík. Er hér um að ræða framhald af hliðstæðum upplýsingum, sem frá og með árinu 1968 hafa verið birtar í desemberblaði Hagtíðinda hvert ár. Auk verðupp- lýsinga miðað við byrjun mánaðanna febrúar, maí, ágúst og nóvember, eru hér birtar upplýsingar um verð á sömu vörum og þjónustu í nóvemberbyrjun næsta ár á undan, svo að fram koma verð- breytingar á 12 mánaða tímabili. Alls eru hér birtar verðupplýsingar um 195 vöru- og þjónustutegundir, en í vísitölunni eru nú um 490 liðir, auk þess sem margir þeirra eru byggðir á fleiri eða færri undirliðum. Sumar þær vörur, sem hér um ræðir, eru seldar á sama verði alls staðar, vegna opinberra verð- ákvæða eða vegna einhvers konar samkomulags hlutaðeigandi seljenda. Að því er snertir þessar vörur er hið fasta verð þeirra tilgreint hér. Fyrir vörur, sem seldar eru á mismunandi verði í búðum, er að jafnaði gefið upp meðalverð samkvæmt athugunum skrifstofu verðlagsstjóra í mörgum smá- söluverzlunum, sem hafa vörurnar til sölu. — Verðupplýsingar eru flestar frá skrifstofu verðlags- stjóra. í desemberblaði Hagtíðinda 1969 var greint frá niðurgreiðslu ríkissjóðs á vöruverði til loka þess árs. Frá þeim tíma og til nóvemberbyrjunar 1970 urðu þessar breytingar á niðurgreiðslu vöru- verðs: Frá 1. marz 1970 hækkaði hún á verði dilkakjöts úr kr. 17,30 í kr. 20,90 á kg, og aftur frá 15. september í kr. 23,70 á kg. Frá 1. marz 1970 hækkaði einnig niðurgreiðsla á smjörverði úr kr. 94,35 í kr. 99,60 á kg. Niðurgreiðsla á nýmjólkurverði hækkaði 1. nóvember 1970 úr kr. 5,23 á ltr. mjólkur í lausu máli og kr. 5,43 á ltr. hyrnumjólkur, í kr. 7,95 og kr. 8,15 á ltr., og þá var einnig hafin niðurgreiðsla á rjómaverði, kr. 37,70 á Itr. — í grein í síðasta blaði Hagtíðinda um verðstöðvun og auknar niðurgreiðslur í sambandi við hana er m. a. skýrt frá breytingum, er urðu á niðurgreiðslu vöruverðs frá 17. nóvember og 1. desember 1970. Söluskattur (7‘/2% til febrúarloka 1970, síðan 11%) er alls staðar meðtalinn í útsöluverði. Hann er á öllum hér töldum vörum og þjónustu, nema mjólk, helztu fisktegundum, dagblöðum, leigubifreiðaakstri, þjónustu pósts og síma og þjónustu hljóðvarps og sjónvarps. Það skal tekið fram, að söluskattur er á rafmagns- og hituveitutöxtum. Þegar vara hefur ekki verið á boðstólum í byrjun einhvers mánaðar (eins og á sér tiltölulega oft stað um grænmeti), er tilgreint síðasta verð á henni. — Skilgreiningar vörutegunda eru oft styttar frá því, sem er í grundvelli framfærsluvísitölunnar, þar eð þær mundu taka of mikið rúm.

x

Hagtíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.