Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Qupperneq 1
Áætlun Herjólfs Brottfarartímcir Sumar 1.S-31.8. Frá Vestmannaeyjum Frá Þortákshöfn Sun.-fös. 8.15/16.00 12.00/19.30 Lau. 8.15 12.00 Nánari uppljrsingar er að finna á www.her30lfur.is og á síóu 415 í Textavarpi RÚV, auk þess sem upplýsingar eru veittar í síma 481 -2800. HERJÖLFUR 31. árg. / 24. tbl. / Vestmannaeyjum 17. júní 2004 / Verð kr. 190 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is ÞAÐ er oft stutt á milli sorgar í gleði í boltanum og það átti líka við á Vöruvalsmótinu sem var um helgina. $ Þrír skólar, þrjár stefnur Nú þegar mikil umræða er í bænum um leikskólamál og spáð í hvort reistur verður fjögurra eða sex deilda leikskóli er við hæfi að gera grein fyrir þeim þremur stefnum sem leikskólar bæjarins vinna eftir. Allir skólarnir starfa eftir aðal- námsskrá leikskóla sem var gefin út af menntamálaráðuneytinu 1999. Rauðagerði Hugmyndafræði Howards Garner um fjölgreindakenningu er höfð að leiðarljósi á Rauðagerði en einnig er stuðst við ýmsar aðrar kenningar. I leikskólanum er lögð áhersla á einstaklinginn og hæfileikar sem hver og einn býr yfir fá að njóta sín. Tekið er mið af því að hver einstak- lingur læri á þeim hraða sem honum hentar og eru notuð kennslugögn í anda Maríu Montessori. Fjölgreindarkenning Howard Garner: Málgreind, rök- og stærðfræðigreind, rýmisgreind, líkams- og hreyftgreind, tónlistar- greind, samskiptagreind, sjálfs- þekkingagreind og umhverfis- greind. Kirkjugerði Stefnan á Kirkjugerði er að hafa leikskólann umhverfisvænan og stuðla að umhverfismenntun og umhverfisuppeldi. Unnið er með náttúru og umhverfi Vestmannaeyja, farið er í vettvangsferðir þar sem örnefni eru kynnt, saga þeirra sögð og unnin verkefni út frá því. Eyjalögin, þjóðhátíðarlögin, eru í hávegum höfð og lögð áhersla á að bömin kunni þó nokkur. Ekki má gleyma að ýmis efni em endurunnin og til dæmis má nefna að papp- írskaup hafa lítil sem engin verið í fimm ár. Sóli Þama er unnið eftir Hjallastefnunni svokölluðu. Hún byggir meðal annars á: Einfaldleika, opnum efnivið, jákvæðni, vináttu, gleði, aga og kærleika. Eitt aðalmarkmið Hjallastefnunnar er jafnrétti kynj- anna. Hjallastefnan notar kynja- skiptingu sem meginaðferð þar sem börnum er skipt á kjarna/deildir eftir kyni. Markmið skiptingarinnar er að auka möguleika á jákvæðni blöndun þar sem stúlkur og drengir geta mæst án þess að gjalda fyrir kyn sitt. Ekki er boðið upp á hefðbundin leikföng sem aðeins bjóða upp á eina lausn heldur er notaður svokallaður „opinn efniviður" s.s. heimagerður leir, allt sem lýtur að skapandi starfi og föndri, trékubbar og fleira. TO u Golfararnir börðust við veðrið Eitt af haldið í stóru golfmótunum Eyjum síðustu helgi. var I BLS. 18 Drottningarsnekkja í heimsókn Dannebrog var hér á ferðinni um síðustu helgi og vakti mikla athygli. | BLS. 8 Mildi að ekki fór verr: Barn á hjóli lenti á rútu Hjólið lenti undir afturhjóli rútunnar Tilkynnt var um fjögur umferð- aróhöpp í síðustu viku, í þrjú skipti var um að ræða árekstur milli bifreiða en engin slys urðu á fólki. í eitt skipti var það um að ræða að barn hjólaði út á götu og inn í hliðina á rútu sem var ekið þar framhjá. Framhjól reið- hjólsins lenti undir afturdekki rútunnar og eyðilagðist. Mikil mildi þykir að bamið hafi sloppið ómeitt en það er ljóst að verr hefði getað farið. Vill lögregla brýna fyrir for- eldrum að passa upp á að börn þeirra séu ekki að hjóla á um- ferðargötum, kenna þeim hvar þau eiga hjóla og hvar ekki. Þá vill lögregla ítreka enn og aftur við foreldra að sjá til þess að börn þeirra séu með hjálma á höfðinu þegar þau eru á reiðhjóli. Það er margsannað mál að hjálmamir bjarga. Fimmtán ára Kvennahlaup Kvennahlaup ISI fagnar 15 ára afmæli laugardaginn 19. júní næstkomandi og verður að venju hlaupið í Vestmannaeyjum, frá íþróttamiðstöðinni og hefst hlaupið kl. 14.00. Er hlaupið í umsjón Umf. Óðins. Meginmarkmið Kvennahlaups er að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu og heilsu- samlegu lífemi almennt. I ár hafa ÍSI og Lýðheilsustöð ákveðið að taka saman höndum og nýta styrk Kvennahlaups ÍSÍ til að vekja athygli á heilsufarsmálefnum sem snerta ekki síst konur. 15-0 Það er ekki amalegt að vera stuðningsmaður knattspyrnuliða ÍBV þessa vikuna en á aðeins tveimur dögum skoruðu Eyja- menn fimmtán mörk gegn engu marki gestanna á Hásteinsv- ellinum. Kvennaliðið vann Stjörnuna 11-0 og karlaliðið Keflvíkinga 4-0 en nánari um- íjöllun á íþróttasíðum blaðsins. 1 TM-Öryggi fyrir fjölskylduna www.tmhf.is Sameinaðu allar tryggingar á einfaldan og hagkvæman hátt. ÖRYGGI Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 , Rettmgar og sprautun Sími 481 1535 www.bokabudin.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.