Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Blaðsíða 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004 Lögreglan: Þjófur á ferð í sundlauginni í vikunni var lögreglu tilkynnt um þjófnað á fatnaði og öðmm munum frá sundlaugargesti. Var um að ræða buxur, grænan stuttermabol, tvo silfurhringi og kveikjuláslykla að Toyota bifreið, með fjarstýringu. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um þjófnaðinn vinsamlega látið lögreglu vita. Þá var tilkynnt um þjófnað á reiðhjóli og farsíma en síminn er fundinn. Þá var lögreglu tilkynnt um rúðu- brot á veitingastaðnum Lundanum þar sem ölvaður maður hafði kastað grjóti í gegnum eina rúðuna. Maðurinn náðist á staðnum. Þá vartilkynnt um rúðubrot í Hamarsskóla. Tvær tilkynningar bárust lögreglu um sinubruna á Haugasvæðinu austan við Helgafell. Fóm lögreglumenn á staðinn og slökktu eldinn í bæði skiptin. Mikið sektað Af umferðinni er það helst að frétta að tveir ökumenn vora sektaðir fyrir að virða ekki umferðarmerki og fjórir vom sektaðir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu. Fimm ökumenn vom sektaðir fyrir að leggja bifreiðum sínum á röngum vegarhelmingi, einn var sektaður fyrir að ganga ekki frá bifreið með tryggilegum hætti og einn var sektaður fyrir ranga notkun ljósa. Tveir ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur, tveir fyrir að tala í farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað. Þá vom eigendur tveggja bifreiða sektaðir fyrir að mæta ekki með bifreið til skoðunar á tilsettum tíma. Ellefu ökumenn vom sektaðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn og þrír farþegar fengu sekt fyrir sama brot. Þá vom tveir ökumenn sektaðir fyrir að gæta ekki að því að farþegi yngri en 15 ára væri með öryggisbeltið spennt. Einn öku- maður fékk sekt fyrir að vera ennþá að aka um með nagladekk. Páll Scheving framkvæmdastjóri ÍBV: Breyttar áherslur á þjóðhátíð Hvert kvöld með sínu sniði -Hefðbundið á föstudagskvöldinu - Rokkað á laugardagskvöldinu Léttir tónar og brekkusöngur á sunnudagskvöldinu ÞAÐ ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi í þjóðhátíðinni í ár. Fyrirhugaðar em breytingar á kvöld- dagskrá þjóðhátíðar í ár að sögn Páls Scheving framkvæmdastjóra IBV- íþróttafélags. „Þjóðhátíð verður að standast tímans tönn og gleymum því aldrei að hún er lykilfjáröflun ÍBV, “ segir Páll og nefnir að kvölddagskráin hafi fengið talsverða gagnrýni undanfarin ár og sú gagnrýni sé eðlileg. Engin breyting verður hins vegar á dagskrá föstudagsins, hann verður hátíðlegur, guðþjónusta, hátíðarræða, Kirkjukór og Lúðrasveit verða á sínum stað og um kvöldið verður dagskráin hefð- bundin, stutt atriði úr ýmsum áttum. En eftir brennu verða tónleikar á stóra sviðinu með Eyjahljómsveitinni Hoff- man sem hefur vakið verðskuldaða athygli í vor. „A laugardagskvöld ætlum við að breyta til en þá verður hljómsveitin Egó með hljómleika sem hefjast klukkan 22.00 og standa fram að flugeldasýningu. Nýtt tónleikasvið hefur verið hannað sem er löngu tímabært og á eftir að breyta mjög miklu. Margir hljómlistarmenn koma fram fyrr um kvöldið bæði frá Eyjum og af fastalandinu, héðan úr Eyjum má nefna Sævar og Krilla, Tórshamra. Strax að lokinni flugeldasýningu hefjast tónleikar með hljómsveitinni Mínus og í framhaldinu dansleikir á báðum pöllum. A sunnudagskvöld verða KK og Maggi Eiríks með tónleika og síðan Fyrsta mál á dagskrá bæjarráðs síðasta mánudag var tillaga frá Andrési Sigmundssyni (B) og Stefáni Jónas- syni (V) þar sem mótmælt er harðlega þeirri ákvörðun samgönguráðherra að ganga framhjá rétt kjömum bæjar- yfirvöldum í Vestmannaeyjum við skipun nefndar um skoðun á fram- tíðarvalkostum í samgöngum við Vestmannaeyjar. „Bæjarráð lýsir mikilli undmn á þessum vinnubrögðum og telur þau ekki við hæfi þegar um samskipti ríkis og sveitarfélaga er að ræða. Bæjarráð hvetur samgönguráðherra til að end- urskoða ákvörðun sína og veita bæjarstjóm Vestmannaeyja möguleika á því að tilnefna einn fulltrúa til verður brekkusöngur og flugelda- sýning eins og venja er. Það sem virðist vera þyngst í uppsetningu á viðbótar í nefndina, sem þrátt fyrir allt er tilbúin til samstarfs. Samgöngur við Vestmannaeyjar em eitt stærsta hags- munamál Eyjanna og því verða rétt kjörin yfirvöld í Vestmannaeyjum að fá tækifæri til að hafa sinn fulltrúa í slíkri nefnd og á þann hátt að koma sjónarmiðum sínum að. Annað er fráleitt." Þegar haft var samband við Stefán Jónasson, hafði hann litlu við þetta að bæta. Amar Sigurmundsson (D) tók undir með þeim félögum og bókaði. „Er sammála þeim hluta tillögunar sem snýr að samstarfi bæjarstjómar Vestmannaeyja og hinnar nýskipuðu samgöngunefndar samgönguráðherra. dagskrá þjóðhátíðar er að verða sér úti um talað mál eða grín en við emm að vinna í því. Vek jafnframt athygli á þeirri stað- reynd að meðal fimm nefndarmanna em tveir fyrrverandi bæjarstjórar í Vestmannaeyjum. Legg mikla áherslu á að Vestmannaeyjabær eigi greiðan aðgang að nefndarstarfinu og eigi þess kost að tilnefna fulltrúa til að starfa með nefndinni. Fyrri samgöngunefnd samgönguráðherra sem, lauk störfum í mars 2003 skilaði ýtarlegum tillög- um um bættar samgöngur við Vestmannaeyjar og safnaði saman mjög víðtækum upplýsingum um stöðu þessa mikilvæga málaflokks fyrir þróun byggðar í Vestmanna- eyjum.“ Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá Samgönguráðuneytinu em Með þessum breytingum emm við að leitast við að þjóna sem flestum og að allir fái eitthvað við sitt hæfi. fimm í starfshópnum en þeir em: Kristján Vigfússon, staðgengill for- manns Siglingastofnunar, Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, Svanhvít Axelsdóttir, lögfræðingur Samgönguráðuneytisins, Ingi Sigurðs- son, formaður Ægisdyra og Páll Zóphóníasson, tæknifræðingur. í skipunarbréfi starfshópsins kemur fram að hópurinn eigi að fjalla um alla möguleika varðandi samgöngur við Vestmannaeyjar. Formaður hópsins verður Kristján Vigfússon. Hefðbundin dagskrá eins og á föstu- dagskvöldinu er ágæt sem slík eitt kvöld,“ segir Páll. Hljómsveitir á þjóðhátíð verða, í svörtum fötum, Land og synir og A móti sól á stóra pallinum, Dans á rósum, og Hálft í hvoru á litla pallinum. „Tónleikasviðið verður hannað þannig að það er dregið fram undan sviðinu þegar tónleikamir em og sett undir aftur þegar ballið byijar," segir Páll en forvinna fyrir þjóðhátíð er á lokastigi og vinna í Dalnum hefst upp úr mánaðamótum. „Eg á von á að löggæslukostnaður verði svipaður og í fyrra. Þá kom þetta betur út en við reiknuðum með í upphafi en þetta er spuming um pólitískan vilja. Eg held því miður að hann sé ekki fýrir hendi enda ráðherra þessa málaflokks alveg staurblankur og ekki í nokkru standi til að sinna fullkomlega löggæslu í landinu. Þess vegna krossbregður manni þegar hann birtist gleiðbrosandi á sjónvarps- skjánum og segir friðelskandi þjóðinni að hann vilji koma á fót íslenskum her, já þá em allir vasar allt í einu fúllir af gulli,“ segir Páll og er því næst spurður út í samgöngumálin. „Við höfum sent bæjaryfirvöldum erindi þar sem við fömm fram á að aukaferðir með Herjólfi verði tryggðar. Óhemju fjármagn er sett í markaðssetningu þjóðhátíðar og það er mjög bagalegt að áætlun eina ömgga samgöngumátans liggi ekki fyrir, fyrrenjafnvel þremur til Ijómm dögum fyrir þjóðhátíð. Hingað kemur fólk með peninga sem það er reiðu- búið að skilja eftir og það em margir þjónustuaðilar hér í bænum sem njóta góðs af því. Við þurfum að fara að breyta hugsunarhættinum, það er ríkjandi hugsunarháttur hér í bæ að tryggja þurfi samgöngur þegar við viljum komast héðan, skipið verður líka að ganga þegar fólk vill komast hingað," segir Páll. „Við teljum að flugið verði öflugra en í fyrra. Flugfloti Flugfélags íslands er stærri en verið hefur og í fyrra var Landsmótið á fsafirði og þeir vom með loftbrú þangað. Nú er það á Sauðárkróki og ég á von á að fólk keyri frekar þangað og þar með skorti verkefni fyrir flugflotann. Ég held að Flugfélagið skoði möguleikann á því að nýta sín tæki vel þessa miklu ferðahelgi. Flugfélag Vestmannaeyja hefur líka alltaf staðið sig afskaplega vel þessa helgi,“ segir Páll að lokum. Enginn úr bæjarstjórn í starfshópi samgönguráðherra: Undrandi á þessum vinnubrögðum -Ingi Sigurðsson og Páll Zóphóníasson í hópnum (Jtgefandi: Byjasýn elif. fHOdiH-Oöf!) - Vestmamiaevjuni. Ititstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn I>ór0arson, Guðbjörg Siguigeirsdóttir. íþróttir: Jnlius Ingason. Ábyrgðarmenn: ÓmarGarðarsson &Gisli Valfýsson. Prentviiina: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnai' Strandvegi f7. Fámajf fHl 1300 & 481 4)10. Myndriti: 181-1293. N'etfang/rafpóstnit frettir@eyjafrettir.is. Veffang: littp/Avww.eyjafretti r. is FRÉTTIli koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í ilskrift ogeinnig í lausasölu á Kletti, Tristinnm, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Fliighafnairersluninni, Krónunni, lsjakanuin, Bónusvideó, verslun 11-11, Skýlinu i Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði og afgreiclslu Hejrólfs i Þorlákshöfn. FBETTHteni prentaðari 2000eintöknm. FBÉTTIlteni aðilarað Sanitökum biejar- og héraðsfréttablaða. Eftirprenhin, hljóðritun, notkun ljósmymla og iinniið er ólieimilt nema heimilda sc getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.