Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Qupperneq 6
6
Fréttir / Fiommtudagur 17. júní2004
Stakkstæði
við Olnboga
Nýlega var byrjað á sérstöku átaks-
verkefni á vegum bæjarins, endur-
gerð stakkstæðis við Olnboga.
Stakkstæði voru fram yfir miðja síð-
ustu öld mjög áberandi í Vest-
mannaeyjum, grjótreitir þar sem
saltfiskur var sólþurrkaður á sumrin.
Nær öll stakkstæðin hurfu síðan undir
mannvirki og götur eftir að aðrar
verkunaraðferðir vom teknar upp.
Sá glöggi maður, Hávarður Sigurðs-
son í Ahaldahúsinu, benti menn-
ingarmálanefnd á það sl. haust að
gamalt stakkstæði væri undir jarð-
vegslagi við Olnboga.
Að hans áeggjan var ráðist í að
endurbyggja það og er sú vinna nú
hafin. Hafa ungir menn að undan-
fömu unnið við að fletta jarðvegi ofan
af grjótinu undir stjóm Áhaldahúss-
manna og í samráði við menningar-
fulltrúa. Ætlunin er að koma stakk-
stæðinu í sem næst upprunalegt
ástand í sumar enda eðlilegt að
varðveita jafn veigamikinn þátt úr
atvinnusögunni og stakkstæðin vom.
Hávarður segir að þetta stakkstæði
hafi verið lítið en sérlega fallegt og
ekki skemmir fyrir að nánasta um-
hverfi þess er sögulegt þar sem
þekktasti draugur Eyjanna, Olnboga-
draugurinn, á sína sögu þar.
Hávaði og Jóns-
messuganga
I bæjarráði lá fyrir bréf frá
íþróttakennurum grannskóla bæjarins
vegna hávaðamengunnar í nýja sal
íþróttamiðstöðvarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla
nánari upplýsingar um stöðu málsins
og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
Þá var samþykkt að veita styrk
vegna Jónsmessugöngunnar sem
verður 24. júní næstkomandi. Ekki er
að sjá staf um það hvaðan og hvert
eigi að ganga.
Bæjarráð fagnar góðri hugmynd og
samþykkir að greiða kostnað vegna
leiðsögumanns og laun starfsmanna
sundlaugar þann tíma sem aukaopnun
vegna göngunnar krefst.
Dannebrog í heimsókn í Eyjum - Smíðað 1932:
Eins og virðuleg frú væri mætt
-sem ber aldurinn einstaklega vel
Vestmanneyjar skörtuðu sínu fegursta
þegar danska konungsskipið Danne-
brog kom til hafnar í Vestmanna-
eyjum um kvöldmatarleytið á föstu-
daginn. Þar var mættur Sigurgeir
Jónasson, ljósmyndari, sem náði fall-
egum myndum af skipinu þar sem það
var að snúa á höfninni með Heima-
klett í baksýn. Dannebrog stoppaði hér
í hálfan annan sólarhring, hélt héðan
klukkan níu á sunnudagsmorguninn
áleiðis til Grænlands þar sem kon-
ungshjónin dönsku koma um borð
ásamt Friðriki krónprins og Mary
Donaldson eiginkonu hans. Mun
Dannebrog sigla meðfram ströndum
Grænlands með kóngafólkið.
Eyjólfur Martinsson, konsúll Dana í
Vestmannaeyjum, segir að það hafí
verið ánægjulegt að fá Dannebrog til
Eyja en þetta mun vera í fyrsta skiptið
sem skipið kemur til hafnar hér. „Þetta
var óformleg heimsókn en þeir komu
héma við til að taka vatn og olíu.
Fannst það þægilegra en að fara til
Reykjavíkur," sagði Eyjólfur en af
þessu tilefni kom nýr sendiherra Dana
á íslandi í heimsókn.
„Nýir sendiherrar em vanir að koma
í heimsókn til að sýna sig og sjá aðra
en þama sló hann tvær flugur í einu
höggi með því að heimsækja mig og
heilsa upp á áhöfnina á Dannebrog
sem telur 52 manns.“
Dannebrog, sem er 72 ára gamalt
skip, er mikil listasmíð og er allt eins
og nýtt, allt stál og látún fínpússað og
mikil vinna hefur verið lögð í að slípa
niður og lakka allt tréverk. Og allt
virðist í uppmnalegu horli. „Skipið er
í notkun frá apríl og fram í september
en annars er það geymt inni í
upphituðu tjaldi þar sem hitinn er að
jafnaði 25 gráður. Þar er skipið allt
tekið í gegn, málað og pússað í hólf og
gólf og mér skilst að þeir séu nokkrir
lítrarnir af fægilegi sem þarf til á
hverju ári.“
Eyjólfur segir að það hafi verið
gaman að koma um borð og sjá vistar-
vemr kóngafólksins. „Þær em allar
með gömlu sniði, mjög snyrtilegar en
íburður ekki mikill. Mér skilst að
konungshjónin, Margrét og Hinrik og
Friðrik og Mary verði ferjuð um borð
með þyrlu. Ganghraðinn er 13
sjómfíur og áætluðu þeir að koma til
Grænlands eftir fjóra sólarhringa. Frá
Grænlandi siglir Dannebrog til
Comwall í Englandi og þaðan til
Grikklands," sagði Eyjólfur að lokum.
Dannebrog ber aldurinn vel, eins og
virðuleg frú en í dag þekkjum við ekki
skip af þessari gerð nema af myndum.
Gamli Ægir, skip Landhelgisgæsl-
unnar sem lauk sínu hlutverki eftir
miðja síðustu öld, var með sama lagi,
mjóu stefni og með drottningarrass.
5SsiHHH!f=áÍiBS^^S
Wvifiiwt pt
f ’ liríp ''ý'ý&' ■mfZ \íÆ
Jji ' mwigmm f&Ufk’ 'ÆmwvMa 7
ÞESSA mynd tók Sigurgeir Jónasson ljósmyndari af Dannebrog þegar skipið kom til hafnar í Eyjum á
föstudagskvöldið.
Margt til gamans
gert á 17. júní
Dagskrá 17. júní verðuróvenju
vegleg að þessu sinni og hefst hún
með hátíðarmessu en svo tekur við
skrúðganga, Lúðrasveit mun leika,
Leikfélagið bregða á leik auk annarra
skemmtiatriða, hlaups, leikja, glens
og gamans og Götuleikhús Vinnu-
skólans mætir á svæðið.
Tyrkjaránið verður flutt að Hraun-
búðum og í Dalabúi, klassískir tón-
leikar verða í Safnaðarheimilinu,
Maður og öngull, sýningin í Safna-
húsinu, Opus syngur í Listaskólanum
um kvöldið og Kvenfélagið Líkn er
með veitingar. Dagskráin er eftir-
farandi í stómm dráttum:
Kl. 10.30 verður sýning á
Tyrkjaráninu 1627 áHraunbúðum.
Kl. 11:00 verður Skáta- og
lýðveldishátíðarmessa í Landakirkju.
Prestur sr. Þorvaldur Víðisson.
Skátafélagið Faxi myndar fánaborg í
kór og böm frá IBV íjölmenna.
Kl: 13:25 Safnast saman við íþrótta-
miðstöðina fyrir skrúðgöngu.
Kl: 13:30 Skrúðganga Gengið
verður frá íþróttamiðstöðinni að
Stakkagerðistúni. Lúðrasveit Vest-
mannaeyja leikur fyrir göngunni.
Fánaberar úr Skátafélaginu Faxa
leiða gönguna. Einnig taka þátt
félagar úr Leikfélagi Vestmannaeyja,
ÍBV og Óðni og Rán.
Kl: 14:00 Hátíðardagskrá á Stakka-
gerðistúni. Formaður menningar-
málanefndar, Sigríður Bjamadóttir
setur hátíðina, Andrés Sigmundsson
formaður bæjarráðs flytur hátíðar-
ræðu. Fjallkonan er Guðrún Lena
Eyjólfsdóttir. Þá leikur Lúðrasveitin
létta lagasyrpu undir stjóm Stefáns
Sigutjónssonar, Njáll Ragnarsson
nýstúdent flytur ávarp og böm af
leikskólum bæjarins syngja undir
stjóm Eyvindar Inga Steinarssonar.
Þá verður fimleikasýning, Hafdís
Víglundsdóttir syngur og Gísli Stef-
ánsson leikur undir, íris Guð-
mundsdóttir syngur ásamt Unni
Ólafsdóttur við undirleik
Sigurmundar Einarssonar.
Ráðhúshlaupið í umsjón Ung-
mennafélagsins Óðins verður á
sínum stað og ýmislegt fleira verður
til skemmtunar gert.
Kl. 17:00 verða í Safnaðarheimili
klassískir tónleikar, flytjendur Rut
Ingólfsdóttir fíðluleikari og Richard
Simm píanóleikari.
K1 17:00-18:30 era unglingatón-
leikar á Stakkó með Armæðu og
Hugarástandi
Kl. 20:00 Tyrkjaránið 1627. Sýning
í Dalabúinu
Kl. 21.00 Tónleikar Opus í sal
Listaskóla.
Berglind Kristjánsdóttir sýndi um síðustu glerverk sem hún hefur gert á síðustu mánuðum. Þar var bæði um að
ræða hagnýta hluti og hluti sem hafa minna hagnýtt gildi. En eitt eiga þeir sameiginlegt, þeir eru fallegir og sýna
að höfundurinn hefur næmt auga fyrir bæði formum og litum.
Berglind hefur lengi gert sér dátt við listagyðjuna en þangað til á þessu ári haldið sig við málverkið. Þá varð hún
sér úti um bræðsluofn og síðan hefur hún verið ústöðvandi ef marka má allan þann fjölda verka sem hún sýndi
um helgina. Þar var að finna myndverk, kertastjaka og platta af öllum gerðum og stærðum. Fjölbreytnin var
ótrúleg og margt mjög fallegt. Um var að ræða sölusýningu og létu margir freistast til að kaupa hluti enda verðið
sanngjarnt.