Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Page 8
8
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004
Hreinsunar-
átakið 2004
Árlegt vorhreinsunarátak verður 21.
júní til 2. júlí nk. og vilja bæjaryfir-
völd hvetja íbúa til að hreinsa lóðir
sínar í hinu sameiginlega árlega átaki
við að hreinsa og fegra bæinn.
Mikilvægt er fyrir ásýnd bæjarins
að húseignir og lóðir séu snyrtilegar.
Húseigendum og lóðarhöfum er skylt
að sjá um að svo sé. Þó er víða að
finna hús og lóðir þar sem viðhaldi og
frágangi mannvirkja er verulega
ábótavant. Þetta setur ekki einungis
Ijótan svip á umhverfið heldur leiðir
það oftast til aukakostnaðar síðar fyrir
eigendur og rýrir endursöluverð
eigna. Húseigendur og lóðarhafar em
því hvattir til þess að huga vel að
eignum sínum með stöðugu viðhaldi.
Bent er á að hægt er að losa sorpið í
flokkunarstöð Sorpeyðingarstöðv-
arinnar. Þessar tvær vikur munu
bæjarstarfsmenn fara um hverfi
bæjarins og hirða upp rusl, en skipu-
lag verður sem hér segir:
Mánudag og þriðjudag 21. og 22.
júní, svæði 1: Frá hraunjaðri að
Skólavegi, neðan Kirkjuvegar.
Miðvikudag og fimmtudag 23. og
24. júní, svæði 2: Frá Skólavegi að
Illugagötu.
Föstudag og mánudag 25. og 28.
júní, svæði 3: Ofan Kirkjuvegar,
austan Strembugötu.
Þriðjudag og miðvikudag 29. og
30. júní, svæði 4: Ofan Kirkjuvegar,
vestan Strembugötu.
Fimmtudag og iöstudag I. og 2.
júlí, svæði 5: Vesturbærinn
Rósalind lofar góðum tónleikum
Eyjakonan Rósalind Gísladóttir er
einn meðlima í Söngkvartettinum
OPUS sem heldur tónleika í sal Lisa-
skólans í dag, 17. júní, á þjóðhátíðar-
daginn og hefjast þeir klukkan 21:00.
Rósalind er uppalin í Vestmanna-
eyjum en er fædd í Sydney Ástralíu
þar sem fjölskylda hennar var búsett
um nokkurra ára skeið. Þaðan fluttu
þau til Vestmannaeyja rétt áður en
gaus árið 1973 og lá þá leiðin upp á
fastalandið en þau fiuttu fijótlega aftur
til Eyja.
Foreldrar Rósalindar eru Gísli
Steingrímsson og Erla Jóhannsdóttir
og á hún 6 systkini, þau; Siffu, Hebu,
Donna, Jóa, Höllu og Ragga.
I stuttri upprifjun um uppvöxtinn í
Eyjum sagðist Rósalind hafa verið í
Bamaskólanum en þar stoppaði hún
stutt, aðeins eitt ár og þaðan lá leið
hennar í Iðnskólann í Reykjavík þar
sem hún lærði hárgreiðslu. „Ég var á
samningi hjá Báru Kemp hár-
greiðslumeistara og starfaði hjá henni
í tæp sjö ár,“ sagði Rósalind.
Eftir að hún lauk meistaraprófi í
hársnyrtingu vorið 1994 byrjaði hún í
söngnámi í Söngskólanum í Reykja-
vík sama haust. Þar var Ólöf Kolbrún
Harðardóttir söngkennari hennar. Á
meðan hún var í Söngskólanum
keypti hún hársnyrtistofuna Papillu
ásamt Áma Kristjánssyni og rak hana
í rúm tvö ár.
Þá tók söngurinn yfir og auk
námsins var hún meðlimur í Ópem-
kómum í íslensku Óperunni. Eftir
fimm ára nám og áttunda stig í söng
frá Söngskólanum fór hún ásamt unn-
usta sínum, sem einnig var í námi við
Söngskólann, til Spánar í fram-
haldsnám en þegar þau fluttust heim
til íslands, nánar tiltekið til Grinda-
víkur þar sem unnusti hennar Gunnar
Kristmannsson, fékk skólastjórastöðu
í Tónlistarskólanum. Rósalind byijaði
að kenna söng þar ásamt því að stjóma
kómm.
I OPUS em auk Rósalindar sem er
mezzó-sópran, Valgerður Guðna-
dóttir sópran, Einar Öm Einarsson
tenór og Gunnar Kristmannsson
barítón. Á píanó leikur Vignir Þór
Stefánsson.
Rósalind segir að á efnisskránni
séu þekktar perlur úr söngleikjum og
kvikmyndum meðal annars eftir
Porter, Gershwin og Bemstein, svo
eitthvað sé nefnt. Segir hún þetta
virkilega vandaðar og llottar útsetn-
ingar. „OPUS er glænýr kvartett sem
slíkur en við höfum öll sungið eitthvað
saman, tvö eða fleiri. Við Valgerður
sungum t.d. í Carmen eftir Bizet í Iðnó
á vegum Ópem Reykjavíkur í
desember síðastliðnum, þar sem ég
söng hlutverk Carmen en Valgerður
Fresquitu. Einnig vorum við Gunnar
og Valgerður með semi-uppfærslu af
Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart í fyrra.
Til gamans má geta þess að Valgerður
söng einmitt hlutverk Barbarínu úr
Brúðkaupi Fígarós í Islensku ópemnni
í vor.“
Það er ekki bara að Rósalind sé
mætt til Eyja til að syngja því um
helgina verður hér niðjamót afa
hennar og ömmu, Hallfríðar Ingi-
bjargar Kristjánsdóttur og Steingríms
Benediktssonar. Þar verða mættir
bræðumir, Gísli, Svavar, Bragi og Páll
Steingrímssynir og fjölskyldur þeirra.
BRÆÐURNIR:
Bragi, Svavar, Gísli,
Jón Helgi, Páll og
Benedikt.
HÉR er OPUS-hópurinn með undirleikara sínum. Rósalind er fremst á
myndinni.
— ,
Jónsi kom
þrátt fyrir
allt
GLEÐIDAGUR TM átti
að vera á laugardaginn og
aðajtrompið hljómsveitin
í svörtum fotum og að
sjálfsögðu Jónsi. Þeir
ágætu menn náðu ekki til
Eyja, flugvélin sneri við,
en þeir létu það ekki á sig
fá og mættu daginn eftir
og skemmtu miklum
fjölda fólks. Guðbjörg í
Tryggingamiðstöðinni og
hennar konur sáu svo um
að gefa fólki eitthvað í
svanginn sem jók enn á
gleðina á Gleðidcgi TM.
. -■ - . X
" W . - x i-J ■! A ''liíl )' f 11 ■ u i a, 4' ^ “ > k . - 3 *4 ■ ' ■ ‘V - Jir
Hvíti skötu-
selurinn varð
ekki langlífur
Hann er nú genginn á vit feðra sinna
hvíti skötuselurinn sem kom til
Náttúrugripasafnsins á föstudaginn
var. Þessi hvíti skötuselur, sem er sá
fyrsti sem Kristján Egilsson, forstöðu-
maður safnsins, veit um, kom í
grásleppunet á Breiðafirði síðdegis á
fimmtudaginn. Hann var sprelllifandi
við komuna til Eyja og var honum
komið fyrir í einu af búmm safnsins.
En honum var ekki ætlað lengra líf,
var dauður þegar Kristján kom til
vinnu á sunnudagsmorguninn. Nú er
hann kominn í frost og verður senni-
lega stoppaður upp.
Er brjósta-
haldarinn
fundinn?
Ungur maður í Fiskiðjunni, nánar
tiltekið á hann heima á Breka-
stígnum, kom með grænan
bijóstahaldara í prentsmiðjuna og
sagðist hafa fundið hann undir
koddanum sínum. Bað hann okkur
að athuga, hvort þetta gæti verið sá
bijóstahaldari, sem auglýst var
eftir í síðasta blaði.
Lét hann þessa vísu fijóta með:
Sá ég í huganum brjóstin ber
Bráðhugguleg, framstœð og hlý
Afleiðingin ekki er
Osýnileg, ellegar ný
Því miður reyndist þessi bijósta-
haldari Fiskiðjumannsins ekki sá
sem auglýst var eftir, en nú er
hann sem sagt auglýstur laus til
umsóknar. Getur hver sem er
fengið hann, gefi réttur eigandi sig
ekki fram innan viku.
(10. mars 1983)
Vilcli
klippingu
eins og Fríkki
Dóttursonur Gauja Manga, Andri
Ólafsson sem
stendur í marki
6. flokks Týs,
varað
undirbúa sig
fyrir Shell-
mótið og að
sjálfsögðu
fýlgdi að fá sér
nýja klippingu.
Árkaði hann á rakarastofu með
mömmu sinni.
Andri hafði alveg á hreinu
hvernig klippingu hann vildi því
um leið og hann settist í stólinn
dró hann mynd af Friðrik
Friðrikssyni markmanni meistara-
flokks ÍBV í fótboltanum upp úr
pússi sínu og sagðist vilja fá
klippingu eins og Friðrik. Mætti
hann því til leiks á Shellmótið með
sams konar klippingu og fýrir-
myndin.
(l.júlí 1993)
Aðeins
kr. 720
Við sögðum frá því í síðasta blaði
að undir bíl og farþega kostaði 720
krónur með Heijólfi aðra leiðina.
Ólafur Runólfsson
framkvæmdastjóri Heijólfs hafði
samband við blaðið og benti okkur
á, að svo dýrt væri ekki með
skipinu. heldur kostaði 720 krónur
fyrir bíl og tvo farþega aðra
leiðina.
(23.júní 1983)