Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Qupperneq 13
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004 13 Merkingu lista- verka að ljúka Undanfama daga hefur verið unnið að því að merkja listaverkin sem unnin voru í verkefninu Hraun og menn, árið 1999. Þá unnu 23 listamenn frá öllum Norðurlöndunum listaverk sem komið var fyrir víðs vegar á Heimaey. Þau verk hafa hins vegar verið með öllu ómerkt ffarn til þessa en nú er búið að bæta úr því. Settar hafa verið plötur úr ryðfriu stáli á verkin eða við þau og í plötuna graftð nafn verkefnisins og ártal, heiti verksins og nafri listamannsins. Eftir er að merkja fjögur af 23 verkum, en eftir er að ganga endanlega frá þeim fjórum verkum og verður gert í sumar. Plötumar vom unnar af fyrirtækinu Skilti og merkingar í Reykjanesbæ sem átti mjög hagstætt tilboð í verkið, en vinnan við að koma merkingunum fyrir er unnin í sérstöku átaksverkefni á vegum bæjarins. I framhaldi af þessu er nú verið að vinna að skrá yfir þessi verk og önnur útilistaverk í Vestmannaeyjum og ætlunin að útbúa síðar meir bækling með helstu upplýsingum um þau verk ásamt staðsetningu þeirra. Félagar í Klúbbnum Geysi Ánægðir með Eyjaheimsókn -Tilgangur starfseminnar að brúa bilið fyrir einstaklinga, sem hafa átt við langvarandi geðræn veikindi að stríða, út í samfélagið á nýjan leik, sagði Eyjakonan Jóhanna María Eyjólfsdóttir sem var fararstjóri hópsins FÉLAGAR í Geysi voru ánægðir með ferðina til Eyja þar sem þeir nutu leiðsagnar Jóhönnu Maríu sem er efst til hægri á myndinni, Um sjómannadagshelgina var hér á ferðinni hópur fólks, um 25 félagar í Klúbbnum Geysi sem er fyrir fólk sem á eða átt hefur við geðræn veik- indi að stríða. Klúbburinn starfar eftir hugmyndafræði Fountain House, sem leggur áherslu á markvissa uppbygg- ingu á hæfileikum og getu einstakl- ingsins. Sérstök forvitni Frétta var vakin á ferðalöngunum þegar í ljós kom að einn af fararstjórunum var Eyjakonan Jóhanna María Eyjólfsdóttir, Martins- sonar og að einn af starfsmönnum Geysis er Benedikt Gestsson, fyrrum blaðamaður Frétta, sem því miður átti ekki heimangengt. Jóhanna María segir að markmiðið með starfsemi Geysis, sem er sjálfseignarfélag með 13 manna stjóm, sé að brúa bilið milli stofnana og samfélagsins. „Tilgang- urinn er að brúa bilið fyrir einstakl- inga, sem hafa átt við langvarandi geðræn veikindi að stríða, út í samfélagið á nýjan leik,“ sagði Jóhanna María sem er stjómarfor- maður klúbbsins. Það er gert með því að virkja einstaklinginn til starfa á ný, t.d. til náms, vinnu eða virkrar þátttöku í starfsemi klúbbsins. Arangurinn af starfsemi klúbbsins er mjög góður og hefur þátttaka félaga í starfseminni geftð fjölda einstaklinga viðvarandi bata á sínum veikindum og von til þátttöku í lífinu á nýjan leik. Auk dag- legra starfa taka félagar þátt í ráðstefnum og fundum hérlendis og erlendis og ennfremur er farið í styttri skemmtiferðir. A hverju sumri er farin ferð út á land og nú urðu Vestmannaeyjar fyrir valinu. „Við komum til Eyja föstu- dagskvöldið 4. júní og fómm með seinni ferð Hetjólfs á mánudeginum,“ bætti Jóhanna við og sagði að almenn ánægja hafi verið með ferðina. „Þetta var 25 manna hópur, félagar og fjöl- skyldur þeirra og gist var í Skáta- heimilinu. Var hópurinn afskaplega ánægður með móttökumar þar. Farið var í skoðunarferð og bátsferð undir frábærri leiðsögn Simma. Sumir félaganna reyndu fyrir sér í sprangi og á laugardagskvöldið var farið á Lundann og sjómannadagsballið. A Lundanum var Eyjahljómsveitin Tríkot að spila og naut hún mikilla vinsælda hjá fólkinu. A mánudeginum heimsóttum við Kertaverksmiðjuna og ísfélagið og frá Eyjum héldu allir ánægðir með góða ferð,“ sagði Jó- hanna María. Þú skiptír máli, eru einkunnarorð klúbbsins Á heimasíðu Geysis segir meðal annars: „Við trúum því að með því að gefa hverjum tækifæri á því að nýta sínar sterkustu hliðar, séum við að þjálfa viðkomandi til ljölbreyttrar þátttöku í samfélaginu. Hið innra starf byggir á gagn- kvæmum stuðningi og virðingu fyrir öðmm. Það að hjálpa og aðstoða aðra felur í sér sjálfshjálp. Það að hafa stjóm á eigin lífi er gmnnþörf í lífi hvers manns. Ef á- byrgðin er tekin af fullorðinni manneskju verður hún fyrir niðurbroti. Sjálfsvirðing og trú á eigin getu hrynur. Þess vegna leggjum við áherslu á jákvæða athygli og horfum á styrkleika, í stað þess að einblína á sjúkdóminn og þann stimpil sem honum fylgir. I starfi Klúbbsins Geysis em engar kvaðir lagðar á félaga umfram það sem hver og einn er tilbúinn að gangast undir. Starf klúbbsins byggir meðal annars á umhyggju, því það er þörf fyrir hvem og einn félagsmann. Þegar þú gengur í klúbbinn gleðjumst við yfir þátttöku þinni. Félagsleg einangmn þarf ekki lengur að valda vanlíðan, því í klúbbnum átt þú félaga sem láta sér annt um velferð þína. Þú hefur allt að vinna. Taktu fyrsta skrefið í átt til betra lífs. I Klúbbnum Geysi leggur hver og einn sitt af mörkum eftir getu og vilja. Allir hafa eitthvað að gefa og hver félagi er mikilvægur í starfsemi okkar. Hugsanlega getur tilvera þín og líðan breyst til betri vegar. Þú skiptir máli!“ Allir í klúbbnum bera sameiginlega ábyrgð á rekstrinum. Störf innan hússins skiptast í eftirfarandi deildir: Eldhúsdeild, skrifstofudeild, viðhalds- og rekstrardeild. Félagar og starfsfólk skipta með sér verkum og ákveða í sameiningu hvaða störf þarf að inna af hendi. Óll vinna innan klúbbsins er unnin í sjálfboðavinnu. Starfseminni er skipt upp í deildir sem em skrifstofudeild, eldhúsdeild ogviðhalds- og rekstrardeild. í stjóm klúbbsins sitja Ama Schram blaðamaður, Guðrún Hannesdóttir forstöðumaður Hringsjár, Gunnhildur Sigurðardóttir fulltrúi Rauða kross Islands, Hallgrímur Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Ræsis hf„ Helgi S. Guðmundsson framkvæmdastjóri, Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræð- ingur, Jóhanna María Eyjólfsdóttir formaður og dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu, Jón Snorrason framkvæmdastjóri, Lára Bjömsdóttir félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar, Ólafur Ólafsson lyfjafræðingur, Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins, Þómnn Hafstein lögfræðingur hjá EFTA og Ögmundur Jónasson alþingismaður og formaður BSRB. Vemdari klúbbsins er Vigdís Finn- bogadóttir fyrram forseti. Sæunn Magnúsdóttir: Já ætli maður drífi sig ekki bara, þó að það sé vinna daginn eftir. Ivar Bergsson: Nei. Eg hef ekki farið síðustu Ijögur árin og ætli ég breyti nokkuð hefðinni í ár.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.