Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Page 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 17.júní2004
Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja formlega opnuð
Það var sannarlega
hátíðarstund í Höllinni á
föstudagsmorguninn þar sem
tilefnið var formleg opnun
Nýsköpunarstofu
Vestmannaeyja. Það kom í hlut
iðnaðarráðherra að opna
Nýsköpunarstofu og afhenda
fyrstu hvatningarverðlaun
stofunnar sem komu í hlut
fiskvinnslufyrirtækisins
Godthaab í Nöf sem hóf
starfsemi í febrúar 2002.1
upphafi unnu þar 20 manns en
núna eru þeir um 45.
Nýsköpunarstofu bárust hlýjar
kveðjur og starfsmennirnir,
Sigurjón Haraldsson
forstöðumaður og Kristín
Jóhannsdóttir markaðsfulltrúi,
gerðu grein fyrir væntingum
sínum til starfsins og því hclsta
sem þau eru með á prjónunum.
Þarna voru mætt Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðar- og
viðskiptaráðherra,
þingmennirnir Lúðvík
Bergvinsson, Magnús Þór
Hafsteinsson, Drífa
Hjartardóttir, Björgvin G.
Sigurðsson og Hjálmar
Arnason, fulltrúar meirihluta
bæjarstjórnar en hvergi bólaði
á fulltrúum sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn en Guðjón
Hjörleifsson og Arnar
Sigurmundsson báðu fyrir
kveðjur. Auk þeirra voru
ýmsir gestir og svo einstakl-
ingar og forráðamenn félaga og
fyrirtækja sem tilnefnd voru til
hvatningarverðlaunanna.
Valgerður sagði, þegar hún
opnaði Nýsköpunarstofu, að
bæði formaður bæjarráðs,
Andrés Sigmundsson og Bergur
Elías Ágústsson bæjarstjóri
hefðu rætt við sig um aðkomu
ríkisvaldsins til uppbyggingar
atvinnulíti í Vestmannaeyjum.
Hún sagðist vænta mikils af
Nýsköpunarstofu og samstarfs
hennar við Impru og
Byggðastofnun.
„Nýsköpunarstofu er ætlað
mikið hlutverk til að efla
Vestmannaeyjar og bæta
samkeppnisaðstöðu þeirra. Hér
er við staðbundinn vanda að
ræða sem verður best leystur
með samstarfi og almennum
aðgerðum stjórnvalda,“ sagði
Valgerður.
Þingmennirnir Drífa, Lúðvík
og Hjálmar óskuðu nýstofnaðri
Nýsköpunarstofu til hamingju
með ósk um að hún ætti eftir að
reynast Vestmannaeyjum vel.
Nokkur eftirvænting ríkti þegar
kom að því að upplýsa hver
hlyti fyrstu hvatningarverðlaun
Nýsköpunarstofu en talsvert er
síðan óskað var eftir
tilnefningum. Eftirfarandi
fyrirtæki og einstaklingar voru
tilnefndir: Anna Dóra og
Jóhanna Jóhannsdætur á
Hressó, Sigmar og Grímur í
Höllinni, Selma Ragnarsdóttir,
Godthaab í Nöf, Miðstöðin og
Ægisdyr, áhugamannafélag um
jarðgöng milli lands og Eyja.
Það þurfti ekki að koma á óvart
að þau komu í hlut Godthaab í
Nöf. Jón Ólafur Svansson tók
við verðlaunum fyrir hönd
fyrirtækisins úr hendi
Valgerðar iðnaðarráðherra.
Bergur Elías Agústsson bæjarstjóri:
Klífa þarf mörg fjöll og marga tinda
*
-I þessari baráttu okkar þurfum við einnig á aðstoð að halda frá hinu
opinbera og ég efast ekki um að stjórnvöld munu aðstoða okkur
I ræðu sinni byrjaði Bergur
Elías Agústsson bæjarstjóri ó
því að vísa til þess hvað
veðrið var fallegt ó föstu-
daginn þegar, Vestmanna-
eyjar skörtuðu sínu fegursta, í
sól og logni, fuglalíf stór-
kostlegt, hundruð barna og
forróðamanna þeirra hafa
sótt Eyjarnar heim til
íþróttaiðkunar. Það gerist ekki
mikið betra að mati Bergs
sem þarna vísaði til Vöru-
valsmótsins, knattspyrnumóts
kvenna í yngri flokkunum.
Þá var tif 1 Eyjum
„Vestmannaeyjar hafa verið og eru ein
stærsta verstöð landsins með öflugan
fiskveiðiflota og stöðug fyrirtæki. Hér
á árum áður var mikill uppgangur og
fólksfjölgun enda næga vinnu að hafa
bæði til lands og sjávar. Mikill fjöldi
manna kom til Vestmannaeyja á
vertíð þar sem unnið var nótt sem
nýtan dag. Þá var líf og Ijör í Eyjum,“
sagði Bergur Elías og bætti við að
margt hefði breyst á undanfömum
árum.
Það eigi ekki síst við sjávarútveginn
þar sem tækni hafi fleygt gríðarlega
fram bæði í landvinnslu og fisk-
veiðum með þeim afleiðingum að
störfum í þessum geira hefur fækkað
verulega. í sjálfu sér er hér um
eðlilega þróun að ræða þar sem
sjávarútvegurinn er á alþjóðlegum
samkeppnismarkaði og ætli menn að
standa sig í samkeppninni sé hag-
ræðing og gæði það sem skitir máli.
ALLmargir gestir voru mættir við opnunina.
„Áhrifa þessarar þróunar gætir út í
allt hagkerfi Eyjanna, þar sem flestar
atvinnugreinar byggja afkomu sína á
tengslum við sjávarútveginn. Niður-
staðan er fólksfækkun sem er
áhyggjuefni. Þetta gildir að sjálfsögðu
ekki aðeins um Vestmannaeyjar
heldur mörg önnur byggðarlög á
landsbyggðinni er byggja afkomu sína
á sjávarútvegi.“
Bergur Elías sagði þetta gera kröfúr
um leit að nýjum leiðum til að skapa
störf og auka velferð í samfélaginu.
„Það er ekki þannig að Eyjamenn hafi
ekki reynt en niðurstaðan er sú að
árangurinn hefur ekki verið í samræmi
við erfiðið. í þessu samhengi má nefna
Þróunarfélag Vestmannaeyja og
Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja.
Hverju um er að kenna verður ekki
farið yfir hér.“
Að gefast ekki upp
Hann sagði Eyjamenn ekki vera
þekkta fyrir að gefast upp og því hafi
verið ákveðið að setja á laggimar
Nýsköpunarstofu, Eyjunum til
framdráttar. Markmið starfseminnar
hefur verið skilgreint og byggist á
þremur meginþáttum: Nýsköpun.
finna sóknartækifæri til eflingar at-
vinnulífsins."
Bergur Elías skilgreindi þetta á
eftirfarandi hátt: Markaðsmál: Efla og
styrkja ímynd Vestmannaeyja.
Ráðgjöf: Veita einstaklingum og
fyrirtækjum faglega ráðgjöf.
„Bæjarfélagið, sem að þessu
stendur, gerir sér fyllilega grein fyrir
því að uppbygging og efling atvinnu
verður ekki til á einum degi heldur sé
um mikla og vel skipulagða vinnu að
ræða. Klífa þarf mörg fjöll og marga
tinda. 1 þessari baráttu okkar þurfum
einnig á aðstoð að halda frá hinu
opinbera og ég efast ekki um að
stjómvöld munu aðstoða okkur í þessu
mikilvæga verkefni. Kæm gestir, það
er mín von að dagurinn í dag verði
lýsandi fyrir framtíð Vestmannaeyja,“
vom lokaorð bæjarstjóra við þetta
tækifæri.
SIGURJÓN framkvæmdastjóri, Kristín Jóhannsdóttir markaðsfulltrúi en bæði starfa þau hjá Nýsköpunarstofu, Valgerður ráðherra og Andrés
Sigmundsson formaður bæjarráðs og Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri.