Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Side 16

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Side 16
16 Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004 ALLS voru saman komnar um 600 stelpur í HöIIinni auk aðstandenda og það ríkti mikil eftirvænting meðan á verðlaunaafhendingu stóð. Vöruvalsmótið, knattspyrnumót í yngri flokkum kvenna: Vel heppnoð þrótt fyrir erfíðar aðstæður Hugmyndir uppi um að breyta fyrirkomulagi mótsins Um helgina fór fram hið árlega Vömvalsmót en í ár komu um 600 stelpur til Eyja til að spila fótbolta. Mótið stóð frá morgni föstudags og fram á sunnudag og vom leiknir á annað hundrað leikir en samtals vom 58 lið frá tíu félögum á mótinu. Það þarf ekki að spyrja að því þegar kemur að skipulagningu, bæði í Vömvalsmótinu og Shellmótinu, að allar tímasetningar stóðust og framkvæmd mótsins tókst með afbrigðum vel. Mikil reynsla býr að baki mótahaldinu og fátt sem kemur forráðamönnum IBV í opna skjöldu hin síðari ár. Mótið hófst strax á föstudags- morgninum en liðin komu flest til Eyja kvöldið áður. Leikið var frá níu til fimm síðdegis á föstudegi og laugardegi en á sunnudaginn fóm fram úrslitaleikimir. Leikið var í þremur flokkum, fjórða, fimmta og sjötta flokki og svo að sjálfsögðu A-, B- og C-lið. Fyrir utan alla leikina var svo séð til þess að stelpunum leiddist ekki, á föstudag var setning mótsins þar sem þeir Auddi og Pétur Jóhann úr 70 mínútum fóm á kostum. Þá vakti Idolkeppnin mikla athygli og nokkrar efnilegar söngraddir vom á meðal knattspymukvennanna. Veðrið hefur auðvitað mikið með það að segja hvemig til tekst á mótum sem þessu en veðrið á fyrsta degi var eins og það gerist best, sól og blíða. En á laugardeginum má segja að andstæðan hafi verið í veðri því þá var rok og rigning. Þrátt íyrir þetta spiluðu stelpumar sína leiki og létu vonda veðrið ekkert á sig fá. A sunnudaginn var svo þokkalegt veður þannig að keppendur fengu sýnishom af því besta, versta og því sem er þar á milli í veðri. Gengi Eyjaliðanna var ágætt. ÍB V vann til þrennra gullverðlauna og til þrennra bronsverðlauna. Fjórði flokkur A og B og sjötti flokkur B1 VÖRUVALSMEISTARAR í 4. flokki A með þjálfurunum Önnu Fríðu og Kidda Georgs. ÞESSAR vösku stelpur urðu Vöruvalsmeistarar í 4. flokki. B. ÞESSAR stúlkur, í 6. flokki B 1, urðu Vöruvalsmeistarar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.