Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Blaðsíða 17
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004
17
urðu Vöruvalsmeistarar og fimmti
flokkur B og C urðu í bronssæti. Þá
var Saga Huld Helgadóttir, ung og
efnileg Eyjastelpa valin best í fjórða
flokki.
Það var ekki að sjá annað en að
allir hafi verið sáttir í mótslok en
Vöruvalsmótinu var slitið með
glæsilegu lokahófi í Höllinni á
sunnudag. Mikið var fagnað, hvort
sem stelpumar vom að fagna
meistaratitlum eða nammikörfu
fararstjóranna, það skipti engu.
En þó að framkvæmdin á mótinu
sé til fyrirmyndar þá hafa vaknað
spumingar um hvort breyta eigi
fyrirkomulaginu. Þannig horfa
forráðamenn IBV til Shellmótsins,
sem er eins flokks mót og er einn
vinsælasti íþróttaviðburður landsins
ár hvert. Nú eru uppi hugmyndir að
gera Vöruvalsmótið að eins flokks
móti líka, gera þá ráð fyrir fimmta
flokki og hugsanlega yrði þá sett upp
hraðmót íyrir sjötta flokk, til bliðar
við hið eiginlega mót. Þetta er
reyndar enn á umræðustigi en
umræðan á fúllan rétt á sér þar sem
mótið hefúrekki náð jafn mikfum
vinsældum og á árum áður í langan
tíma.
ÞÆR voru ekki allar háar í loftinu, stelpurnar á Vöruvalsmótinu.
Vorum of stressaðar
í úrslitaleiknum
/
-segirAsta Einarsdóttir sem hlaut
Lórusarbikarinn
Áerfittmeðað
kalla áfram Valur
r
-segir Olafur Þ. Harðarson, Hafnfirðingur
Á hveiju ári er veittur Lárusar-
bikarinn, til minningar um Lárus
Jakobsson, mikinn íþróttafrömuð í
Eyjum, en bikarinn fær sú stúlka sem
þykir efnilegust á Vöruvalsmótinu. I
ár var það Ásta Einarsdóttir úr
Breiðabliki sem fékk bikarinn.
„Við vomm í talsverðu basli með
ÍBV og í úrslitaleiknum held ég að
við höfum bara verið of stressaðar.
Við ætluðum auðvitað að vinna
leikinn en það gekk bara ekki. Við
hættum aldrei, þannig að þó við
væmm tveimur mörkum undir þá
ætluðum við alltaf að vinna leikinn
en því miður tókst það ekki.“
Hvað finnst þér vera eftirminni-
legast?
„Það var rosalega gaman á föstu-
daginn því þá var svo gott veður en
það var ekki eins gaman á laugar-
daginn. En mér fannst samt eftir-
minnilegast að fá Lámsarbikarinn.“
Eftirminnilegast
að taka á móti
bikarnum
sagði fyrirliði ÍBV, Aníta
Elíasdóttir
Aníta Elíasdóttir, fyrirliði 4. flokks
A hjá IBV sagði að mótið hefði verið
mjög skemmtilegt.
„Þetta var svolítið eifitt, sumir
leikir vom léttir en aðrir erfiðari.
Urslitaleikurinn var erfiður. Það var
0-0 í hálfleik en svo vomm við bara
betri og skoruðum tvö mörk.“
Hvað er eftirminnilegast frá mótinu?
„Það var mjög gaman að vinna
úrslitaleikinn og taka svo á móti
bikamum í dag. Ætli það sé ekki
eftirminnilegast frá mótinu.“
Er stefnan svo sett á atvinnu-
mennskuna?
,Já, að sjálfsögðu."
„Þetta hefur gengið alveg ákaflega vel
héma um helgina. Reyndar óskar
maður alltaf eftir góðu veðri en þetta
er svo sem í lagi,“ sagði Olafur Þ.
Harðarson þegar blaðamaður Frétta
rakst á hann þar sem hann fylgdist
með leik Vals og IA.
„Stelpumar læra reyndar bara að
taka á því í rigningunni og rokinu en
þetta er búið að vera svakalega vel
heppnað og skipulagið til fyrir-
myndar," sagði Olafur sem sjálfur var
búinn að búa sig fyrir veðrið, með
regnhlíf, í stuttbuxum og stígvélum.
Er þetta fyrsta Vömvalsmótið sem þú
kemur á?
,Já, þetta er í fyrsta sinn. Ég fékk
pláss á gistiheimili og allt til fyrir-
myndar þar,“ sagði hann og hvatti
sínar stelpur áfram. Reyndar kom í
ljós að Ólafur átti erfitt með að kalla
áfram Valur. „Ég er nefnilega FH-
ingur en stelpan mín er í Val. Ég er
að reyna að koma mér í að hrópa
áfram Valur en enn sem komið er
kalla ég bara áfram stelpur."
Þrátt fyrir að vera ánægður með
Vöruvalsmótið þá sagði Olafur að
hann myndi að öllum líkindum ekki
mæta á næsta mót. „Þetta er víst
þannig að Valur skiptist á að fara til
Eyja og á Siglufjörð. Þeir verða að
standa sig ansi vel fyrir norðan ef þeir
ætla að toppa þetta á næsta ári, það er
alveg ljóst," sagði Ólafur að lokum.
ÓLAFUR var búinn til að mæta
hverju sem var.
Úrslit og viðurkenningar í Vöruvalsmótinu 2004
4.flokkur A 6. sæti Valur 4. sæú IBV 8. sæti KFR l.sæti ÍBVl 4. fiokkur Asta Einarsdóttir
1. sæti ÍBV 7. sæti ÍR 5. sæti Afturelding 5. flokkur C 2. sæti Sindril Breiðablik.
2. sæti Breiðablik 4.flokkur C 6. sæti ÍR 1. sæti Sindri 3. sæú Afturelding2 Háttvísiverðlaun KSÍ og
3. sæti Afturelding 1. sæti Breiðablikl 7. sæti Sindri 2. sæti Afturelding 4. sæti Afturelding 1 Eurocard
4. sæti KFR 2. sæti KR 8. sæti HK 3. sæú ÍBV 5. sæti ÍBV2 4. flokkur KFR
5. sæti Valur 3. sæti Afturelding 9. sæti KFR 4. sæti Valurl 6,s æti Sindri2 5. flokkur HK
6. sæti ÍR 4. sæti Valur 5. flokkur B 5. sæti HK Besti leikmaður 6. flokkur Sindri
7. sæti KR 5. sæti ÍBV 1. sæti Valur 6. sæti Valur2 4. flokkur Saga Huld Helga- Prúðasti leikmaður
4.flokkur B 6. sæti Breiðablik2 2. sæti Breiðablikl 6. flokkur A dóttir, ÍBV 4. flokkur Sólveig Pétui-sdótúr,
1. sæti ÍBV 7. sæti ÍR 3. sæti ÍBV 1. sæú Afturelding 5. flokkur Hulda Margrét KFR.
2. sæti Breiðablik2 5.flokkur A 4. sæti ÍA 2. sæti ÍA Brynjarsdótúr, ÍA. 5. flokkur Hildigunnur Sól
3. sæti KR 1. sæti ÍA 5. sæú Afturelding 3.s æti Valur 6. flokkur Elín Metta Mark- Kristjánsdótúr. HK.
4. sæti Breiðablikl 2. sæti Breiðablik 6. sæti Breiðablik2 4. sæti ÍBV úsdóttir, Valur. 6. flokkur Ljósbrá Ragnars-
5. sæti Afturelding 3. sæti Valur 7. sæti ÍR 6. flokkur B Lúrusarbikarinn dóttir, Sindri.