Baldur - 18.08.1945, Síða 1
Styrj öldinni er lokiö.
Eftir tæplega sex ára
grimmilegustu styrjöld, sem
háð hefur verið i heiminum, er
nú kominn friður.
Seint á þriðj udagskvöldið 14.
þ. m. var til kynnt samtímis í
útvarpsstöðvunum í London,
Moskvu, Wasliington og Sjung-
king að Japanir hefðu gengið
að lokaskilyrðum bandamanna
og lagt niður vopn.
Attlee,forsætisráðherraBreta,
flutti útvarpsræðu við þetta
tækifæri. Las hann þar upp
svar Japana orðrétt og eru
helztu atriði þess þannig:
1 sambandi við friðartil-
boð það, sem japanska
stjórnin hefur gert Banda-
mönnum og gagntilboð það,
er þeir hafa gert henni,
kveðst hún hafa þann heið-
ur að tilkynna eftirfarandi:
1. Keisarinn hafi gefið út
fyrirmæli um það, að friður
verði saminn á grundvelli
Potsdam-yfirlýsingarinnar.
2. Hann hafi gert nauðsyn-
legar ráðstafanir til að
friðarsámningar verði und-
irritaðir hið fyrsta — og
3. Hann muni gefa út fyrir-
skip'anir til allra japanskra
hersveita um að leggja nið-
ur vopn og hætta vopnavið-
skiptum og muni auk þess
reiðubúinn að gefa út hverj-
ar aðrar fyrirskipanir, sem
yfirhershöfðingi Banda-
manna muni telja nauðsyn-
legar.
Þegar Attlee hafði lesið yfir-
lýsingar Japana rakti hann í
fáum dráttum sögu Kyrrahafs-
styrj aldarinnar frá því Japan-
ir réðust með svikum á Pearl
Harbour í desember 1945 og
þar til nú að þeir hafa gefist
upp. Hann laulc miklu lofsorði
á heri Bandamanna, sem með
hraustri baráttu sinni hefðu
bjargað þjóðum sínum frá her-
sveitum Japana. Þá hyllti hann
kínversku þjóðina fyrir hetju-
lega baráttu hennar við Japani
um fjórtán ára skeið og fór
einnig hrósyrðum um aðrar
þær þjóðir, sem Japanir hafa
hernumið.
Að ræðu forsætisráðherrans
lokinni voru þj óðsöngvar Bret-
lands, Bandaríkjanna, Sovét-
ríkjanna og Kína leiknir, og að
þvi loknu var þakkarguðs-
þjónusta.
Miðvikudaginn 15. þ. m. var
”hinn opinberi friðardagur og
var heimsfriðnum þá fagnað í
öllum löndum Bandamanna. I
ræðu sinni tilkynnti Attlee,
forsætisráðherra, að sá dagur
og fimmtudagurinn yrðu al-
mennir frídagar í Bretlandi.
Allar þjóðir fagna því að
friður er nú kominn á.
Fpá rafveitustj órnarfundi.
Fundur var haldinn i stjórn
Rafveitunnar síðastl. þriðju-
dag. Meðal annars var rætt um
lekann á Nónhornsvatni, en
eins og bæjarhúum er kunn-
ugt, þá urðu lítil not af Nón-
hornsvatnsvirkj uninni s. 1. vet-
ur vegna. þessa leka. Er illt að
þessi leki skyldi koma fram,
því bæði er mikill hörgull á
raforku í bænum og auk þess
er búið að setja stórkostlegar
fjárhæðir í liina nýju virkjun.
Á fundinum bar Haukur
Helgason fram tillögu þess efn-
is, að fai-a þess á leit við Raf-
magnseftirlit ríkisins, að það
nú þegar sendi mann hingað
til Isafjarðar til að rannsaka
lekann. Tillaga þessi kom illa
við taugarnar í Hannibal
Valdimarssyni. Sleppti maður-
inn sér alveg. M. a. sagði hann,
að Haukur hefði á sínum tíma
hrigzlað Jóni Guðmundssyni
um rafmagnsþjófnað og enn-
fremur, að Haukur hefði flæmt
Jón Guðmundsson og senni-
lega Gunnar Hallgrímsson frá
Rafveitunni. Haukur lét sam-
stundis bóka þessi illmæli
Hannihals. Mun hinn „orð-
prúði“ skólastjóri fá tækifæri
til að afturkalla ummælin á
sáttanefndarfundi og jafn-
framt hiðja Hauk fyrirgefning-
ar, ella mun Haukur stefna
Hánnihal. Halldór Halldórsson
kom með viðbótartillögu við
tillögu Hauks þess efnis, að
leita til rafmagnseftirlitsins ef
rannsókn næstu 4—5 daga
leiddi ekki í ljós hvar lekinn
væri. Með þeirri viðhót var til-
laga Hauks samþykkt.
Vil selja kvenhjól.
Lóa Konráðs.
Síidveiði ísfirzku skipanna.
Skip Björgvins Bjarnasonar
15. þ. m.:
Richard ........... 3210 mál
Grótta ............ 5260 —
Huginn 1........... 3551 —
Huginn II.......... 5079 —
Skip Samvinnufélagsins 14.
þ. m.:
Ásbjörn ........... 1100 mál
Auðbjörn........... 2000 —
Gunnbjörn ......... 2201 —
Sæbjörn ........... 1876 —
Valbjörn .......... 1281 —
Vébjörn ........... 1414 —
Góð' relmetaveiði er nú hér
í Djúpinu.
*
Skátamót Vestfjarða
hófst i Hestfirði 2. ágúst og
lauk mánudaginn 6. ágúst.
Mótið var haldið að tilhlutun
skátafélaganna á Isafirði, mót-
stjórn skipuðu Magnús Kon-
ráðsson, er var mótstjóri, og
María Gunnarsdóttir og Haf-
steinn O. Hannesson.
Þátttakendur voru alls 69, 46
drengir og 23 stúlkur, og voru
frá Vatneyri, Þingeyri, Flat-
eyri, Bolungarvik og Isafirði.
Þetta er fyrsta skátamótið á
landinu, sem er sameiginlegt
fyrir stúlkur og pilta.
Veður var ágætt 3 daga. Far-
ið var í gönguferðir um ná-
grennið og í útiíeiki, haldnir
yarðeldar og kvöldvökur.
Á sunnudaginn messaði séra
Óli Ketilsson á mótinu í sýslu-
tjaldbúð Vestur-Isafjarðar-
sýslu er skátarnir höfðu reist
þarna. Alls voru þarna um 30
tjöld.
Fjölritað dagblað var gefið
út á mótinu, hét það Tryppið,
og er það fyrsta og einasta dag-
blaðið, sem gefið hefur verið út
í Hestfirði.
Á mótinu ræddu foringjar
félaganna um skátamál, og
samþykktu áskorun til stjórn-
ar Bandalags ísl. skáta um að
veita hehnild til þess að skáta-
félög stofni með sér héraða-
sambönd.
Elsti skátinn á mótinu var
Jónas Magnússon skólastjóri á
Patreksfirði, og benti hann
skátunum á að hann hefði
hvergi séð jafn fjölskrúðugt
gróðurlíf eins og þarna i Hest-
firði.
Mótið þótti heppnast prýði-
lega og láta allir þátttakendur
hið bezta yfir dvölinni þarna.
*
Gjafir til norskra selveiði-
manna.
Að undanförnu hafa komið
liingað til Isafjarðar nokkur
norsk selveiðiskip á heimleið
af veiðum. Skip þessi hafa öll
aflað mjög lítið af sel, vegna
þess að ekki hefur verið hægt
að komast inn i fasta ísinn fyr-
ir óvenjumiklu isreki. Það er
því ekki mikill fengur, sem
skipshafnirnar á þeim færa
heim með sér, hefði þess þó
verið full þörf annað eins tjón
og Norðmenn hafa beðið í ó-
friðnum.
Margir bæjarbúar hafa fært
þessum norsku skipshöfnum
góðar gjafir, bæði peninga og
varning, og hafa þær verið vel
þegnar, enda komið sér vel. Til
mála hefur komið að hefja al-
menna söfnun í þessu skyni, en
að þvi ráði hefur þó ekki ver-
ið horfið, nema hvað einstak-
lingar hafa verið á ferð með
söfnunarlista. Ástæðan er þó
enganveginn sú, að með því
eigi að draga úr þessum gjöf-
um, en vegna þess að ekki var
byrjað á þessari fjársöfnun áð-
ur en selveiðiskipin fóru að
koma hingað, og nú er óvist
hve mörg eiga eftir að koma,
þótti ekki ástæða til að hefja
slíka fjársöfnun nú. Hinsvegar
eru menn eindregið hvattir til
að færa gjafir þeim norsku
skipshöfnum, sem eiga eftir að
koma hingað í sumar, og skal
þeim þá á það bent, að bezt
er að afhenda þessar gjafir
beint til skipstjóra á hverju
skipi, en hann mun svo skipta
þeim með skipshöfninni.
i. s. r. r. b. r.
knattspyrnumóT vestfjarða
verða háð á ísafirði í september.
II. og III. aldursflokkur sunnud. 2. september.
I. aldursflokkur sunnud. 9. september.
Öllum félögum innan í. S. í. á Vestfjörðum er heimil
þátttaka. Þátttöku skal tilkynna til K. S. F. Vestra viku
fyrir hvert mót. Þátttökugjald kr. 25.00.
K. S. F. VESTRI.