Baldur - 16.11.1945, Blaðsíða 1
UTGEFANDI: SÓSlALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XI. ÁRG
ísafjörður, 16. nóv. 1945
33. tölublað.
Geröir bæjarstjórnar
í húsnæðismálinu.
Svo er að sjá seni nokkur
áhugi sé vaknaður hjá stjórn-
endum þessa hæjar fyrir því
að eitthvað verði gért, til þess
að bæta úr þeim húsnæðis-
skorti, sem hér er og hefur
verið undanfarin ár. Og það
er vissulega ekki hægt annað
en að fagna þessum áhuga,
enda þótt þeirri hugsun hljótj
að skjóta upp í huga mSnns,
að'hæj arstj órnarkosningar eru
nú fyrir dyrum og meirihluti
bæjarstjórnar ætli að sýna
kjósendum, að hann hafi
minnsta kosti hug á að gera
riieira í húsnæðismálúnum í
framtíðinni en þeim aldar-
fjórðungi, sem liðinn er og
hann hefur liaft aðstöðu til
framkvæmda.
Ibúðarhiísnæðisnefncl.
Á bæjarstjórnarfundi 7. þ.
m. voru húsnæðismálin aðal-
dagskrárefnið. — Bæjarstjóri
lagði fram svohljóðandi til-
lögu
„Bæjarstjórn kjósi hlut-
fallskosningu 3ja manna
nefnd: Ibúðarhúsnæðisnefnd.
Það verði hlutverk nefndar-
innar að finna leiðir til þess,
að hæta úr húsnæðisskorti
bæjarbúa, meðal annars með
því:
1. Að gera tillögur til bæj ar-
st j órnar.
2. Annast framkvæmd þeirra
ráðstafana, sem bæjarstjórn
kann áð samþykkja.
3. Hafa með höndum fjár-
útveganir, fjárreiður og reikn-
ingshald þessu viðvíkjandi.
4. Útvega kaupendur að í-
búðum, sem bæjarfélagið kann
að láta byggja, eða hefja hygg-
ingu á.
5. Stofna til félagsskapar
húsnæðislausra manna um
húsbyggingar.
6. Haga öllum framkvæmd-
um þann veg, að þær falli, eða
geti fallið, undir gildandi lög-
gjöf — Lög um verkamanna-
hústaði og byggingarsamvinnu-
félög — eða væntanlega lög-
gjöf um byggingu íbúðarhús-
næðis.
7. Beina störfum sínum sér-
staklega að því að örva bygg-
ingarhug borgaranna og veita
leiðbeiningar og aðstoð, þeim
er hug hafa á að koma sér upp
húsnæði, einir sér, eða i bygg-
ingarfélögum.
Nefndin haldi gerðabók og
verði fundargerðir lagðar fyrir
bæjarstjórn jafnóðum.
Endurskoðendur bæjarins
endurskoði reikningshaldið.
Allur kostnaður, annar en
þóknun til nefndarmanna
sjálfra, falli á viðkomandi
^yggingar.
Þóknun til nefndarmanna
sjálfra úrskurðist af bæjar-
stjórn og greiðist úr bæjar-
sjóði“. — Tillögunni fylgdi
greinargerð.
1 sambandi við þessa nefnd-
arkosningu lögðu fulltrúar
Sj álfstæðisflokksins til að hún
yrði skipuð fimm mönnum,
þannig að tryggt væri að allir
flokkar í bæj arstj órninni ættu
fulltrúa í henni. Fulltrúár
sósíalista studdu þá tillögu.
Ekki vildu A1 þýðuf 1 okksmcnn
gangast inn á það, heldur feldu
tillögu sjálfstæðismanna gegn
atkvæðum þeirra og sósíalista.
Að því búnu var tillaga bæj ar-
stjóra samþykkt og kusu Al-
þýðuflokksmenn og sjálfstæð-
ismenn í sameiningu þessa
menn í nefndina:
Eyjólf Jónsson
Þorleif Guðmundsson
Böðvar Sveinbj arnarson.
Fulltrúar sósíalista stungu
upp á Halldóri Ólafssyni, rit-
stjóra, í nefndina.
Að nefndarkosningu lokinni
var samþykkt að vísa öllum
þeim tillögum í húsnæðismál-
inu, sem fyrir fundinum lágu
til nefndarinnar, og voru þær
þessar:
Tillaga Alþýðuflokksmanna:
„I beinu framhaldi af þeim
tillögum bæjarstjóra um hús-
næðisvandamálið, sem bæjar-
stjórn Isafjarðar hefir nýlega
samþykkt og sent félagsmála-
ráðuneytinu, bera bæjarstjóri
og bæj arráðsmenn Alþýðu-
flokksins fram svohljóðandi
tillögu til úrbóta um íhúðar-
húsnæði hér í hænum:
1. Bæjarstjórn hefjist þegar
handa um byggingu tuttugu og
fjögra þriggja herbergja íbúða
í einni sambyggingu, og verði
byggingin staðsett á bökkun-
uni, neðan Sundstrætis noi’ðan-
vert við framhald Silfurgötu.
Þegar bærinn hefir lokið
byggingu ytra-byrðis hússins
með aðalraflögnum, hitalögn-
um og vatns- og skólpæðum,
svo og séð um múrhúðun þess
hið ytra í heild og annað það,
sem bezt fer á að leysa af
hendi í einu og af sama aðila,
gefi bærinn þeim bæjarbúum,
sem þess kynnu að óska, kost
á að kaupa einstakar íbúðir
fyrir kostnaðarverð.
Bærinn taki hráðabirgðalán
í þessu skyni til efniskaupa —
og fyrir hús i byggingu. Verði
lán þetta síðan greitt upp með
andvirði ibúðanna á sínum
tima.
2. Allt að tuttugu heimilis-
feðrum í bænum, einkum
þeim, sem við húsnæðisskort
eða lélegt húsnæði eiga að búa,
verði hoðnar byggingarlóðir
fyrir einnar hæðar hiis ofan
og neðan Engjavegar.
Þeir, sém hafa hug á og að-
stöðu til að leggja fram eigin
vinnu að meira eða minna
leyti, til þess að koma húsun-
um upp, verði að öðru jöfnu
látnir ganga fyrir öðrum. Hús
þessi verði byggð úr vikurhol-
steini eða öðrum tegundum
hyggingarsteina, ef hentara
þykir. Einnig verði athugað,
hvort ekki reynist unnt að
veita þeim, er ])ess kynnu að
óska, aðstöðu til að steypa
sjálfir byggingarsteina i hús
sín i tómstundum sínum.
Stærð hvers húss verði 90—
100 Dm og verði þau byggð
samkvæmt teikningum, er
bærinn útvegi hjá færum húsa-
meistara.
Þá geri bærinn heildarsamn-
inga um smíði allra glugga,
hurða og eldhúsinnréttinga i
hús þe's^i í vetur.
Bærinn taki heildarlán fyrir
efni til bygginganna o. fl. lit á
fyrsta veðrétt bygginganna,
sem húsa í byggingu. Síðan
verði fengið veðdeildarlán út á
hvert hús gegn 1. veðrétti á
nafn eiganda hvers húss um
sig, strax þegar byggingu er
lokið, eða húsin það langt kom-
in, að þau séu talin veðhæf.
Bærinn sjái um framkvæmd
þessa byggingarfyrirtækis í
heild og veiti húseigendum
nauðsynlega leiðbeiningu* til
sem víðtækastrar sjálfshjálp-
ar við byggingu húsanna".
Tillaga sósíalista:
„Með tilliti til þeirra hús-
næðisvandræða, sem í bænum
eru, samþykkir bæjarstjórn:
að fela bæjarstjóra að leitast
Framh. á 3. síðu.
Fimmta þing Æ, F.
Fimmta þingi Æskulýðsfylk-
ingarinnar — sambands ungra
sósialista — er fyrir nokkru
lokið í Reykjavík.
Voru þar gerðar ýmsar
merkar ályktanir varðandi
hagsmuna- og menningarmál
æskulýðsins i landinu og mun
Baldur hirta þær helztu þeirra
i þessu og næstu blöðum.
I. Sjálfstæðismálið:
5. þing Æskulýðsfylkingar-
innar — sambands ungra sósí-
alista — lýsir sig eindregið
andvígt því, að nokkru erlendu
ríki verði veittar hernaðar-
bækistöðvar á Islandi. Slíkt
mundi verða hinri mesti háski
fyrir sjálfstæði þjóðarinnar,
tungu og menningu. Islenzkur
æskulýður telur það skyldu AI-
þingis við islenzku þjóðina að
allri slíkri ásælni erlendra
rikja verði vísað á hug.
II. Lækkun kosningaaldursins.
5. sambandsþing Æskulýðs-
fylkingarinnar — sambands
ungra sósíalista — ítrekar allar
fyrri ályktanir Æskulýðsfylk-
ingarinnar um lækkun kosn-
ingaaldursins niður i 18 ár.
Þingið vill benda á það, að
með því að miða kosningaald-
urinn við núverandi takmark,
er um sjötti hluti allra starf-
andi þjóðfélagsþegna sviptur
rétti til íhlutunar um þjóðfé-
lagsmál, enda þótt þeim séu á
herðar lagðar allar sömu
skyldur sem öðrum borgurum.
Þingið átelur harðlega, að slíkt
misrétti skuli viðgangast i
skjóli stjórnarskrárinnar og
skorar því á Alþingi og stjórn-
arskrárnefnd að taka til greina
lækkun kosningaaldursins við
setningu hinnar n5rju stjórnar-
skrár.
III. Ályktanir um iðnskóla.
5. þing Æ. F. ályktar að
stefna beri að þvi:
1. Að allir iðnskólar verði
ríkisskólar, eins og sjómanna-
skólar og bændaskólar.
2. Að eigi verði krafist
minni almennrar menntunar
til inngöngu í iðnskóla, en sem
svarar til hins fyrirhugaða
miðskólaprófs.
3. Að öll kennsla í iðnskól-
um fari fram að deginum til
á venjulegum vinnutíma.
4. Að verkleg kennsla iðn-
nema fari að mestu fram innan
skólanna á fullkomnum skóla-
verkstæðum.