Baldur - 06.02.1946, Blaðsíða 2
2
B A L D U R
flokksins — skuldbinda sig til
þess að halda ofanritaðan mál-
efnasamning í hvívetna.
Samningurinn er gerður til
næstu 4ra ára og skal hann
birtur i blöðum flokkanna á
Isafirði.
Jafnframt lýsa flokkarnir
þvi yfir að það er ætlun þeirra
að vinna eins ötullega og frek-
ast er unnt að fyrrgreindum
hagsmunamálum bæjarins og
öðrum þeim málum, er fyrir
kunna að koma.
Bæjarfulltrúar beggja flokk-
anna líta svo á að málefna-
samningur þessi sé þess eðlis
að um framkvæmd hans og
hagsmunamál bæjarbúa yfir-
leitt geti ríkt fullkomin eining
og góð samvinna með öllum
flokkum bæj arstj órnarinnar.
Alþýðuflokknum boðin
þátttaka.
Þeir f j órmenningarnir komu
sér saman um að senda
bæj arfulltrúum Alþýðuflokks-
ins drög þau, sem samin voru,
og bjóða þeim aðild að samn-
ingnum, og fylgdi bréf það,
sem birt er hér á eftir. Skal
athygli vakin á því, að sjálf-
stæðismenn og sósíalistar óska
eftir breytingartillögum Alþfl-
manna, ef þeir teldu slíkar til-
lögur nauðsgnlegar til þess að
gerast aðili að stjórn bæjarins.
Ennfremur skal vakin athygli
á því, að samningurinn fjall-
aði eingöngu um mál, sem eru
nauðsgnjamól allra bæjarbúa,
hvar í flokki, sem þeir standa.
Bréf Sjálfstæðisflokksins
og Sósíalistaflokksins.
Isafirði, 29. janúar 1940.
Við undirritaðir leyfum okkur
hérmeð að senda yður meðfylgjandi
drög að málefnasamningi um bæj-
armál lsafjarðar, sem bæjarfulltrú-
ar flokka okkar hafa komið. sér
saman um.
Viljum við hérmeð bjóða yður að
gerast aðili að samningi þessum.
En jafnframt viljum við taka
fram að endanlegt samþykki samn-
ingsuppkastsins er háð vilja funda,
sem flokkar okkar, livor í sínu lagi,
hafa boðað til meðal flokksmanna
sinna í kvöld.
Með því að bæjarstjórnarfundur
hefir verið boðaður annað kvöld,
og tími því naumur, leyfum við
okkur að óska heiðraðs svars yðar
fyrir kl. 2 e. li. miðvikudaginn 30.
janúar 1946.
Ennfremur viljum við taka það
fram að við erum fúsir til að eiga
munnleg samtöl vicj yður um þetta
mál, og breytingartillögur, er þér
gætuð hugsað yður, fyrir fyrr-
greindan tíma.
Virðingarfyllst,
F. h. Sameiningarflokks alþýðu
Sósíalistaflokksins
Haukur Helgason (sign.)
Haraldur Guðmundsson (sign.)
F. h. Sjálfstæðisflokksins
SigurSur Bjarnason (sign.)
Til bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins á
ísafirði, c/o hr. Hannibal Valdi-
marsson skólastjóri.
Fundur Sósíalistafélag’sins.
Sósíalistar héldu f jölmennan
í'lokksfund á þriðj udagskvöld-
ið. Gerði Haukur Helgason
skýra grein fyrir málefna-
samningsuppkastinu. Benti
liann á að það væri að verulegu
leyti i höndum flokksins að
gera stjórn bæjarins starfhæfa
og væri það auðvitað tvímæla-
laus skylda hans, skylda gagn-
vart þeim kjósendum, sem
kusu B-listann, skylda gagn-
vart bæjarfélaginu í heild. Vís-
aði Haukur til yfirlýsingar
flokksdeildarinnar um sam-
vinnu við hvern þann aðila,
sem vildi vinna vel að fram-
kvæmd ákveðinna bæjarmála,
sjálfstæðismenn hefðu nú tek-
ið þessu samvinnutilboði en
kratar hefðu ekkert aðhafst. —
Á fundinum tóku margir til
máls og voru allir á einu máli,
að nauðsyn bæri til að gera
bæj arstj órnina starfhæfa.. Var
að lokum samþykkt tillaga
þess efnis, að fundurinn lýsti
sig fúsan til samvinnu við
sjálfstæðismenn á grundvelli
samningsuppkastsins en lét
jafnframt þá ósk í Ijós, að
æskilegt væri að Alþýðuflokk-
urinn gerðist einnig aðili að
samningnum.
Alþýðuflokksmenn biðja
um frest.
Á þriðjudag, rétt eftir bá-
degi, báðu Alþýðuflokksmenn-
irnir um framlengingu á fresti
til þess að svara málaleitan
flokkanna tveggja. Fresturinn
var fúslega veittur, þótt tími
væri naumur til stefnu. Svo
barst svarið og var það allt í
senn: Neitun, ókurteist og fullt
af útúrsnúningum. Munu krat-
ar aldrei bafa betur sýnt hvað
er þeirra raunverulega áhuga-
mál, sem sé fyrst og fremst að
hugsa um flokk sinn en minna
um bæjarfélagið og hag þess.
Mega Isfirðingar lengi minn-
ast þessa ábyrgðarleysis krata-
foringjanna, enda/mun svo
fara, að jiessi flokkur, sem
kennir sig við alþýðu Islands,
mun hér eftir hrörna fljótt og
vel á Isafirði sem annarsstaðar.
Bréf Alþýðuflokksins.
Isafirði, 30. janúar 1946.
Heiðruðu herrar!
Þér bjóðið Alþýðuflokknum að-
ild að samningi, sem bæjarfulltrú-
ar flokka yðar luifa þegar gengifi
frá fyrir silt leyti og þér nú hafið
tjáð oss, að flokkar yðar hafi einn-
ig samþykkt.
Af bréfinu er Ijóst, oð samkomu-
lag hefir þegar fengizt um meiri-
liluta i bæjarstjórn. Var það og að
vonum, þar sem Sjálfstæðismenn og
kommúnistar komu fram í bæjar-
stjórn og í kosningabaráttunni sem
samherjar um flest og sameiginleg-
ur andstæðingur Alþýðuflokksins.
Samlcvæmt almennum lýðræðis-
reglum hvílir því á flokkum yðar
sú ábyrgð og skylda að mynda sam-
eiginlegan meirihluta í bæjar-
stjórn. Bert er af bréfi yðar, að
öll áhugamál yðar samkvæmt mál-
efnasamningnum virðast einmitt
vera þau, sem Alþýðuflokkurinn
vann að á síðustu árum, hafði í
framkvæmd eða var nú rélt að
Ijúka við.
Þar til má nefna:
Togaramálið, sem hæjarstjórn
hefir þegar gert ákveðnar sam-
þykktir um og falið þriggja þing-
manna nefnd til úrlausnar. Eru til-
lögur yðar í málinu í allmiklu ó-
samræmi við fyrri samþykktir bæj-
arstjórnar.
FiskiSjuveriS, sem atvinnumála-
nefnd og bæjarstjórn hafa á sein-
ustu þremur árum undirbúið til
verklegrar framkvæmdar.
Aukning vélbátaflotans, sem bæj-
arstjórn hefir lyft undir ineð fjár-
framlögum bæði fyrr og síðar, og
nú seinast með þeim árangri, að á
næstu mánuðuin koma 5 áttatíu
smálesta vélskip í bæinn.
Bygging og cndurbætur lxafnar-
mannvirkja, en um það mál er það
að segja, að verkfræðilegum undir-
búningi að Hafnarmannvirkinu í
Neðstakaupstað er að mestu lokið,
— pantað hefir verið aðalefnið í
liafnarbakkann og það væntanlegt
liingað til bæjarins í næsta mánuði.
Ennfremur hefir þegar verið á-
kveðið að ljúka viðgerð bæjar-
bryggju, og öllu öðru hreyft, sem
nefnt er í þessum kafla samnings-
ins.
Húsnæhismálin, sem þegar hafa
lilotið þá afgreiðslu í bæjarstjórn,
að sérstakri nefnd liefir verið falið
að vinna að framkvæmd þeirra á
grundvelli væntanlegra nýrra laga
— og byggja 44 íbúðir að minnsta
kosti.
Furðar oss á, að afskipti yðar
samkvæmt málefnasamningnum
skuli nú, þrátt fyrir fyrri sam-
þykktir bæjarstjórnar, aðeins eiga
að vera skýrslusöfnun, aðstoð við
einstaklinga með innlendu bygging-
ar efni (möl og sandi) og svo ef
til vill byggingar, er bærinn ráðist
í, ef bitt ekki dugi.
Vatnsveitumálin, sem rannsökuð.
liafa verið bér heiina og skýrslur
liggja fyrir um, auk þess sem ósk-
að hefir verið eftir sérfræðingi til
undirbúnings frekari verklegum að-
gerðum til úrbóta þegar á komanda
vori.
Allt eru þetta mál, sem Alþýðu-
flokkurinn hefir unnið að og hefði
leitt til lykta, ef honum hefði veitzt
áframhaldandi aðstaða til.
En nú skal vikiö að tveimur mál-
um, sem oss furðar á, að þér sam-
herjarnir skulið hafa samið um, að
leysa á vegum bæjarins. En það er
í fyrsta lagi bygging flugskýlis og
flugvélabrautar, sem er verkefni, er
einungis skal hvíla á herðum ríkis-
ins að framkvæma lögum sam-
kvæmt, og er á emhættissviði flug-
inálastjóra ríkisins.
Hitt málið er heilsuverndarstöð-
in. Um lausn þess máls er komin
fram tillaga sérfræðinganefndar,
og liefir hún verið birt opinber-
lega, en þar segir, að aSalheilsu-
verndarstöó fyrir Veslfiröi skuli
reist á fsafiröi, annaðhvort af trygg-
ingunum eða beint af ríkinu. Aðil-
ar að því verða a. m. k. ekki
sjúkrasamlögin, þar sem þau verða
lögð niður samkvæmt liinu nýja
skipulagi, sem loforð liggja fyrir
um við Alþýðuflokkinn að afgreiða
sem lög á Alþingi því, sem koma
skal saman eftir örfáa daga.
Mundi bæjarfélagið að voru áliti
hafa nægum verkefnum að sinna,
þótt það færi ekki að seilast inn
á þau framkvæmdasvið, sem ríkið
hefir helgað sér.
Loks er það oss gleðiefni, að þér
hafið getað orðið sammála um að
starfrækja sundhöllina í samvinnu
við samtök sjómanna, íþróttafélög
og skóla, svo og að ljúka við skóla-
byggingar þær, sem í smíðum eru.
Þar sem stefnt hefir verið í
nokkur ár að virkjun Dynjanda í
Arnarfirði með öflugri þátttöku
Isafjarðarbæjar í þeim undirbún-
ingi, þykir oss góðra gjalda vert,
að þar verði haldið áfram á sömu
braut, a. m. k. ef ekkert kemur í
Ijós, sem geri þá virkjun tvísýnni,
en álitið hefir verið til þessa.
Sama máli gegnir um það áform
yðar að ljúka Nónvatnsvirkjuninni,
þótt oss sé hinsvegar ekki full ljós
þörf hinnar sérfróðu aðstoðar, er
þér talið um við að leiða í ljós,
„hvernig hún (þ. e. virkjunin) bezt
geti komið að gagni“. — Virðist
það vera atriði, sem bæjarbúar hafi
furðulega rammað á til þessa.
Um ráðningu bæjarstjóra, þurf-
um vér ekki að ræða við yður. Það
er mál, sem sá meirihluti, er mál-
efnasamning hefir gjört með sér,
hlýtur að ráða fram úr eftir eigin
geðþótta. Hins vegar skal þess get-
ið, að við teljum herra Jón Guð-
jónsson húinn slíkum kostum sem
bæjarstjóra, að lijá okkur liefði eng-
inn annar komið til mála sem slík-
ur, en okkur er kunnugt um, að
þér hafið, raunar í samræmi við
eitt atriði samnings yðar hoðið
honum að gegna starfinu aðeins til
bráðabirgða.
Hið góða boð um að gefa oss
kost á að bera fram breytingatil-
lögur við samning yöar, sjáum vér
ekki ástæðu eða möguleika til að
nota fyrir kl. 2 í dag, en það tíma-
mark setjið þér, en munum hins-
vegar flytja okkar tillögur og breyt-
ingatillögur í bæjarstjórn bæði við
hin samningsbundnu málefni yðar
og önnur velferðarmál bæjarfélags-
ins.
Þá viljum vér ekki láta hjá líða,
að lýsa undrun vorri yfir því, hve
mjög er í samningi yðar dregið úr
hinum stórfelldu fyrirætlunum
Sjálfstæðisflokksins, sem gerðar
voru heyrinkunnar. fyrir kosningar.
Söknuin vér þar mála, sem Al-
þýðuflokkurinn vill eindregið koma
í framkvæmd, enda haft í undir-
búningi. Má þar til nefna nýtt elli-
lieimili, og stærra íþróttasvæði,
höfn smábáta og stóraukna mjólk-
urframleiðslu handa bæjarbúum
ásamt fleiru.
Vér teljum þarflaust og á engan
háit viðeigandi, að Alþýðuflokkur-
inn gerist aðili að samningi flokka
yðar. Yður her ábyrgðin og skyld-
an til að stjórna nú þessu bæjar-
félagi, svo sem raunar hefir áður
komið frain í upphafi liessa bréfs.
Virðingarfyllst.
F. h. Alþýðuflokksins:
Hannihal Valdiinarsson.
Helgi Hannesson.
Grímur Kristgeirsson.
Birgir Finnsson.
Til bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
og Sameiningarflokks alþýðu,
Socíalistaflokksins á Isafirði.
-------O--------
Kíghóstabólusetning.
Eins og auglýst er hér í
blaðinu í dag verða börn hálfs
árs til þriggja ára gömul bólu-
sett gegn kíghósta í Barnaskól-
anum á morgun og föstudag.
Fyrri daginn verða bólusett
börn, sem eiga heima i efri
bænum ofan Norðurvegar, en
seinni daginn þau, sem eiga
heima i neðri bænum. Þessi
bólusetning fer fram vegna
þess að kíghósta hefur orðið
vart í Reykjavík, og er talið
líldegt, að hann berist hingað.
Leikfélag fsafjarðar
hafði frumsýningu að sjón-
leiknum Æfintýri á gönguför
1. þ. m.
v Nánari umsögn um leikinn
kemur í næsta blaði.
Hjónaefni.
Njdega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Guðrún Jóns-
dóttir (Hróbjartssonar) og
Valdimar Björnsson, sjóliðs-
foringi,
i