Baldur - 08.06.1946, Page 1
UTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAF JARÐAR
XII. ÁRG.
ísafjörður, 8. júní 1946
16. töiublað.
Hræðilegasti húsbruni
sem orðið heíir á Isafirði.
Fimm manns, hjón, unglingspiltur og tvö börn brenna inni.
Húsið Fell, eign Finnbjörns Finnbjörnssonar, málara-
meistara, brann til kaldra ltola á hér ub bil einni klukku-
stund, og ennfremur brann allt, sem brunnið gat, svo að
ekki standa nema sviðnir steinveggirnir í húsunum Hafn-
arstræti 4, eign Þórðar Jóhannssonar úrsmiðs, og Hafnar-
stræti 6, eign Einars Guðmundssonar og Kristjáns
Tryggvasonar, klæðskerameistara.
Fimm manns brunnu inni, einn iiiaður fótbrotnaði og
öðru fólld, sem bjó á Felli, tókst með naumindum að
bjarga út um glugga hússins, en allar eigur þess, smáar
og stórar, brunnu inni.
I húsunum Hafnarstræti 4 og 6 tókst aðeins að bjarga
litlu einu af varningi, sem var í verzlunum á neðstu hæð
húsanna, og húsmunum þeirra, er þar bjuggu, en meiri-
partur af því, sem þar var inni, varð eldinum að bráð, og
það, sem bjargaðist, var meira og rninna eyðilagt.
Þá urðu ennfremur talsverðar skemmdir af eldi og
vatni á húsinu Hafnarstræti 8, eign Elíasar Kærnested,
skósmíðameistara, og gluggar sprungu í bókaverzlun Jón-
asar Tómassonar í Hafnarstræti 2.
Eignatjón af völdum þessa hræðilega bruna er talið að
nemi minnst 2—3 milj. króna, og eftir hann eru 10 fjöl-
skyldur og 7 einhleypir menn, eða samtals 56 manns
húsnæðislausir. *
Aðfaranótt mánudagsins 3.
júní, klukkan liðlega 5 varð
þess vart, að eldur var laus í
liúsinu Fell við Hafnarstræti
hér í bænum. Slökkviliðið var
þegár kallað á vettvang, en áð-
ur en það gat við nokkuð ráð-
ið var Fell orðið alelda og eld-
urinn kominn í sambygging-
uiia andspænis þvi við götuna.
Brann þar allt, sem brunnið
gat, laust og fast, í tveimur
búsum, nema eitthvað lítið af
varningi og innanstokksmun-
um, sem tókst að ná út á síð-
ustu stundu. Þriðja húsi í sam-
byggingunni tókst með naum-
indum að verja og ennfremur
liús Ágústajr Leóssonar og hús
Elíasar Pálssonar, sem standa
ofan og neðanverðu við Fell,
sömu megin við götuna, en
þessi bús skemmdust nokkuð
af eldi og vatni.
Eldurinn var svo magnaður
í Felli, að talið er að húsið hafi
verið orðið alelda á stundar-
fjórðungi og á hérumbil einni
klukkustund var það brunnið
til kaldra kola.
Eins og fyrr er sagt, brunnu
fimm manns inni, og voru það
þessir: /
Hjónin Sigurvin Veturliða-
son, sjómaður, 29 ára, og kona
bans, Guðrún Árnadóttir, 25
ára. Þau hjónin voru nýkom-
in heim af skemmtun sjó-
mannadagsins, en tveimur
liörnum, sem þau áttu, hafði
verið komið fvrir annarsstað-
ar.
Hennann A. Bjarnason,
verzlunarmaður, 17 ára, Sig-
ríðiir B. Bjarnadóttir, 4 ára, og
Bjarney Sveinsdóttir, 9 ára.
Var sú síðastnefnda aðkom-
andi í húsinu.
öðru fólki, sem bjó á Felli,
varð með naumindum bjargað
á nærklæðunum einum.
Einn maður, Jóhann M. Guð-
mundssan, vélstjóri, fótbrotn-
aði um leið og hann stökk út
úr eldimun. Þórólfur Egilsson,
• rafvirki, sem bjó á miðhæð-
inni, stöklc út um gluggann á
herbergi sínu á staur, sem stóð
. þa r fyrir framan, og tókst á
þann liátt að komast niður.
Þá fótbrotnaði einn maður,
Matthías Sveinsson, kaupmað-
ur, er hann var að vinna að
hj örgunarstarfi. Fleiri meidd-
ust ekki verulega, en átakan-
legt var að heyra angislai'vein
þeirra, er vissu ástvini sína
brenna þarna inni, og munu
þeir seint ná sér eftir þennan
hræðilega atburð.
Á Felli bjuggu eftirtaldar
fjölskyldur og einstaklingar,
sem hjörguðust úr brunanum:
Arne Sörensen úrsmiður,
kona hans Sigríður Árnadóttir
og 4 börn þeirra.
Ásgeir Sigurðsson verkamað-
ur, kona hans Anna Her-
mannsdóttir og 1 barn þeirra.
Aðalsteinn Sigurðsson verka-
maður, kona hans Marta
Markúsdóttir og 4 börn þeirra.
Sigurlaugur Sigurlaugsson
sjómaður, kona hans Karitas
Rósinkarsdóttir og 5 börn
þeirra.
Hermann Jóhannsson sjó-
maður, kona hans Aðalfríður
Friðriksdóttir. — Fósturhörn
þeirra tvö, sem bjuggu hjá
þeim, brunnu hæði inni eins og
fyrr er sagt.
Kristján Kristjánsson verka-
maður, móðir hans Elísabet
Hermannsdóttir og systir Sig-
ríður Kristj ánsdóttir.
Ennfremur bjuggu þar þess-
ir einstaklingar:
Jón Stefánsson verkamaður,
Jóhann M. Guðmundsson vél-
stjóri, Þórólfur Egilsson raf-
virki, Þorgerður Gestsdóttir
saumakona og systkinin Þór-
unn Benjamínsdóttir og Birgir
Benjamínsson, en þau voru
hvorugt heima. Dvelur hún nú
í Noregi, en hann er á ferð
með nemendum Gagnfræða-
skóla,ns.
I Hafnarstræti 4 hjuggu
þessar fjölskyldur:
Þórður Jóhannsson úrsmið-
ur, kona hans Kristín Magnús-
dóttir og 6 börn þeirra.
Sóley Þorsteinsdóltir, ekkja,
móðir hennar Þorlaug Bene-
diktsdóttir og 4 börn.
I Hafnarstræti 6 bjuggu
þessar fjölskyldur:
Kristján Trvggvasön, klæð-
skeri kona hans Margrét Finn-
bjarnardóttir og tvær dætur
þeirra.
Einar Guðmundsson klæð-
skeri, Þuriðpr Vigfúsdóttir
kona hans og tvær dætur
þeirra.
Jónína Jónsdóttir, Guðhjörg
Halldórsdóttir og Arndís Þor-
valdsdóttir.
Það eru því samtals 10 l jöl-
skyldur alls 49 manns og 8
einstaklingar sem eru húsnæð-
islausir eftir þennan hræði-
lega eldsvoða.
Auk þess brunnu þarna
eftirtaldar verzlanir og verk-
stæði.
I Felli verzlun Ágústs Leós-
sonar, málningarverzlun Finn-
björns Finnbjörnssonar og
rafvirkj averkstæði Júlíusar
Helgasonar.
I Hafnarstræti 4 Verzlun
Böðvars Sveinhjarnarsonar,
úrsmíðaverkstæði og verzlun
Þórðar Jóhannssonar og Hár-
greiðslustofa Elínar Magnús-
dóttur.
'I Hafnarstræti 6 klæðskera-
verkstæði og verzlun Einars
Guðmundssonar og Kristjáns
Tryggvasonar og húsgagna-
vinnustofa Jóns Kristjánssonar
bólstrara.
Um upptök eldsins hefur
ekkert komið í ljós annað en
það, að telja má víst að fyrst
hafi kviknað í forstofunni á
miðhæð hússins og eldurinn
lireiðst þaðan út með svo
skjótri svipan, að það er með
öllu óskiljanlegt. Fólkið, sem
lijargaðist, komst allt út um
glugga, og munaði svo mjóu
að eldtungurnar stóðu út um
gluggana um leið og það var
sloppið út. Tilraun var gerð til
að komast inn um glugga á
efstu hæð, til ])ess að bjarga
því fólki, sem bránn inni, en
herbergin voru eitt eldhaf og
útilokað að komast inn, nema
að kosta til fleiri mannslífum.
Sem dæmi þess, hve eldur-
inn hefur brotist út um lnisið
á skömmum tíma, má geta
þess, að kl. liðlega 5 gengu
þeir lögregluþjónarnir Jón A.
Jóhannsson og Halldór Jón-
Framhald á 3. siðu.