Baldur - 25.06.1946, Síða 4
4
B A L D U R
Utgerðarhugsjón Alþýðuflokksins á Isafirði:
„Crt reri einn á báti.“
um Svía um aukin veiðirétt-
indi hér við land, þ. e. að ís-
lenzk landhelgi verði skert, og
lofar formaður Alþýðuflokks-
ins að sjá til þess, að ríkis-
stjórn Islands taki þessar kröf-
ur Svía til vinsamlegrar athug-
unar.
Bréfið verður hirt í næsta
blaði.
Tilboð óskast í geymsluhúsið við Dokkuna
(Hvítapakkhúsið)
ásamt lóð og plani, sem því fylgir.
Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 20. júlí.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Gunnar Guðmundsson.
Stefán Jóhann borgar
rakblöðin.
Á framboðsfundinum í gær-
kvöldi las Sigurður Thorodd-
sen bréf frá Stefáni Jóhanni til
formanns sænsku samninga-
nefndarinnar, sem Stefán varð
frægastur fyrir að semja við.
Bréf þetta er svar við kröf-
Sósíalistafélag ísafjaröar
samþykkir ályktun í fisk-
iöj uversmálinu.
Reynt verði að sameina öll útgerðarfélög í bænum um
eitt fiskiðjuver á samvinnugrundvelli.
Fundur í Sósíalistafélagi Isafjarðar, haldinn þ. 22. júní 1946,
gerir eftirfarandi ályktun í Fiskiðjuversmálinu:
Fundurinn tclur það höfuðatriði að öll útgerðarfélög bæjar-
ins sameinist og standi að stofnun eins fiskiðjuvers, sem rekið
verði á samvinnugrundvelli og felur fulltrúa sósíalista í bæjar-
stjórn að* beita sér fyrir, að svo megi verða.
Jafnframt telur fundurinn, að nauðsyn beri til þess að
tryggja hinu nýj a fyrirtæki að minnsta kosti eina miljón kró-
ur í framlögum, sem aflað verði innanbæjar, lijá félagasam-
tökum, einstaldingum og bæjarfélaginu.
Til þess að tryggja það, að félagið verði jafnan rekið með
hagsmunum ísfirzkra sjómanna og útgerðarmanna fyrir aug-
um, álítur fundurinn eðlilegast, að ákveðið verði í stofnsamn-
ingi, að einn af fimm stjórnendum félagsins verði kosinn af
bæjarstjórn, en aðrir stjórnendur verði kosnir hlutfallskosn-
ingu.
Sjómenn eru miklu meira
afl í íslenzku þjóðlífi én þeir
gera sér ljóst.
Framhald af l*síðu.
mennt, en gera sér þess þó
ekki fyllilega grein, enda er
enginn vafi á því, að ef þjóð-
in öll skildi .þetta til fulls, væri
hltitur sjómanna betri en nú á
sér stað.
Islenzkir sjómenn, ' útvegs-
menn og útgerðarmenn, þeir
menn, sem halda sjávarútvegi
okkar gangandi, eru miklu
meira afl í íslenzku þjóðlífi en
þeir gera sér ljóst. Þeir halda
um lífæð þjóðfélagsins og það
er rétt að þeir geri sér þetta
ljóst. Áhugi þessara manna
beinist allur að því að efla ís-
lenzkan sjávarútveg. Það er
því þjóðinni fyrir beztu, að
þeir beiti meira áhuga sínum
á gang opinberra mála. Það er
óeðlilegt, að menn, sem eklti t
koma nærri því starfi að skapa
gjaldeyri þjóðarinnar skuli
vera því nær einráðir um
hvernig skuli ráðstafa honum
og þeim þar með gefin aðstaða
til að safna stórgróða á kostn-
að útgerðarinnar. Þetta er sjó-
mönnum, útvegsmönnum og
útgerðarmönnum sjálfum að
kenna, þeir hafa í höndum sér
það vald, sem þarf til þess að
kippa þessu í lag. Þetta verða
þeir að skilja og beita því
valdi, sem þeir hafa yfir að
ráða. Hagsmunir sjómanna, út-
vegsmanna og útgerðannanna
falla saman við hagsmuni
vinnandi fólks í landi, sem
myndi aðeins fagna því, að
þeir ykju afskipti sín af opin-
berum málum til eflingar
sj ávarútveginum. Ég vænti
þess að sjómannadagshátiðir
komandi ára verði til þess að
auka sameiginleg afskipti
þeirra af opinberum málum
þjóðarinnar. Þá mun þjóðinni
betur farnast í framtíðinni.
Tilkynning
til útgerdarmanna.
Þeir útgerðarmenn, sem hafa í hyggju að leggja upp
síld til söltunar af skipum sínum á þessu sumri, þurfa
samkvæmt 8. grein laga nr. 74. frá 1934 að sækja um leyfi
til Síldarútvegsnefndar.
Útgerðarmenn þurfa í umsóknum sínum að taka fram
eftirfarandi: Nöfn skipa, stærð, einkennistölur. Áætlað
magn til söltunar og hjá hvaða saltenda síldin verður
söltuð.
Umsóknir þessar skulu sendar til skrifstofunnar á
Siglufirði og þurfa að vera komnar þangað fyrir 30. júní
1946.
Síldarútvegsnefnd.
Tilkynning
til síldarsaltenda.
Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld á þessu
sumri, þurfa samkvæmt 8. grein laga nr. 74 frá 1934 að
*sækja um leyfi til Síldarútvegsnefndar.
Saltendur þurfa að upplýsa eftirfarandi:
1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða.
2. Af hvaða skipum þeir fái síld til söltunar.
3. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni.
4. Hve margt síldarverkunarfólk vinnur á stöðinni.
5. Eigi umsækjendur tunnur og salt, þá hve mikið.
Þeir saltendur, sem óska að fá tómar tunnur og salt
frá Síldarútvegsnefnd sendi umsóknir til skrifstofu nefnd-
arinnar á Siglufirði fyrir 30. júní 1946.
Síldarútvegsnefnd.
Skömmtunarsedlum
fyrir tímabilið júlí—september 1946 verður úthlutað á
bæjarskrifstofunni föstudaginn 28. júní kl. 10—12 f. h.
kl. 1—3 og 4—6 e. h., laugardaginn 29. júní kl. 10—12 f. h.
og mánudaginn 1. júlí kl. 10—12 f. h. og 1—3 e. h.
Skömmtunarseðlarnir eru aðeins afhentir gegn stofn-
um af nú'gildandi matvælaseðlum, enda séu þeir greini-
lega útfylltir.
Isafirði, 24. júní 1946.
Skömmtunarskrifstofan.
i