Baldur - 30.08.1946, Blaðsíða 1
UTGEFANDI: SÖSlALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XIÍ. ÁRG.
ísaHörður, 30. ágúst 1946
23. tölublað.
Nýr herstöðvasamningur undirbúinn?
Dagur á Akureyri birtir Lundunafrétt um ákvörðun
Trumans í þá átt. .
Sérfræðingur Bandaríkjastjórnar í Norðurlandamálum
dvaldi fyrir nokkru í Reykjavík og átti leynilegar viðræð-
ur við áhrifamenn í íslenzkum stjórnmálum.
I Washington mun talið að úrslit kosninganna í sumar
hafi að minnsta kosti ekki torveldað að samningar takist.
Blaðið Dagur á Akureyri
birti 8. þ. m. einkafrétt frá
London undir fyrirsögninni
„Bandaríkin munu hcfja
samningaumleitanir um her-
stöðvar á Íslandi að nýju“
Aðalatriði fréttarinnar hljóð-
ar svo:
„Áreiðanlegir heimildar-
menn hér telja, að Banda-
ríkin muni hefja samninga-
umleitanir að nýju um her-
stöðvar á íslandi og á Azor-
eyjum. Þessa ákvörðun mun
Truman forseti og hernað-
arráðunautar hans hafa
tekið eftir að haf a kynnt sér
skýrslu Byrnes utanríkis-
ráðherra um síðasta utan-
ríkisráðherrafundinn í Par-
ís“.
1 sambandi við þessa skýrslu
Byrnes er frá því skýrt, að
Truman forseti hafi orðið fyr-
ir miklum vonbrigðum í sam-
bandi við afstöðu Rússa á ut-
anríkisráðherrafundinum, og
má fullkomlega skilja á frétt-
inni, að það sé gegn Sovétríkj-
unum sem þessi ákvörðun var
tekin. Siðan segir orðrétt:
„Áreiðanlegar fregnir
herma að eftir fundahöldin
með hernaðarráðunautum
sínum, hafi forsetinn nú
samþykkt að Bandaríkin
hafi frumkvæði að nýjum
samningaumleitunum um
herstöðvar á Islandi og
jafnframt verði hafnar
samningaumleitanir við
Portúgal um herstöðvar til
langs tíma á Azoreyjum.
Nákvæmar athuganir hafa
lcngi verið gerðar af hernað-
arsérfræðingum Bandarík j -
anna á fyrirhuguðu varnar-
kerfi þeirra og útkoman er í
stórum dráttum sú, að Banda-
ríkjamenn byggja á herstöðva-
kerfi, sem' liggi i hring um
Okinava, Aljutaeyjar, kanad-
isku heimskautalöndin til Is-
lands.' Næsti hlekkur austan
við Island verði Bretlandseyj-
ar og e. t. v. brezkar eyjar í
Atlantshafi, sem ekki hafa þeg-
ar verið leigðar Bandaríkjun-
um. Jafnframt gæti komið til
mála að Bandarikj amenn
reyndu að semja við Frakka
um herstöðvar á norðurströnd
Afríku.
I Washington mun talið
að úrslit kosninganna, sem
nýafstaðnar eru á Islandi,
hafi a. m. k. ekki spillt útlit-
inu fyrir Bandaríkjamönn-
um. En hér í London er tal-
ið fullvíst, að málaleitan
þeirra verði hafnað, þar
sem allir stjórnmálaflokkar
á íslandi hafa lýst sig and-
vígir herstöðvum. Von Is-
lendinga sé, að landi þeirra
verði veitt innganga í UNO
á komandi hausti og Kefla-
víkurflugvöllurinn og flota-
stöðin í Hvalfirði verði í
versta falli sett undir yfir-
ráð Sameinuðu þjóðánna“.
Þessi einkafrétt Dags stað-
festir þann ótta, sem margir
íslendingar bera i brjósti, að
Bandankj amenn hugsi til á-
framhaldandi • hersetu á Is-
landi. Þessi ótti minnkar held-
ur ekki við þá staðreynd, að
bandaríska setuliðið vinnur nú
að ýmsum framkvæmdum í
Hvalfirði, sem benda til þess
að það ætlar ekki að hverfa
þaðan bráðlega heldur þvert á
móti.
Þá er það ekki síður at-
hygglisvert, að einn slyng-
asti diplomat Bandaríkja-
stjórnar, Cummings, for-
stjóri við Norðurlandadeild
utanríkisráðuneytis Banda-
ríkjanna, kom fyrir
skömmu til Reykjavíkur og
dvaldi þar nokkra daga.
Hefur Þjóðviljinn upplýst,
og það ekki verið hrakið
með rökum, að þessi maður
hafi átt leynilegar viðræður
við áhrifamenn í íslenzkum
stjórnmálum, meðan hann
dvaldi hér. Hvað á þeim við-
ræðufundum hefur gerzt er
enn hulinn leyndardómur.
Eitt er þó víst. Slíkir menn
eyða ekki dýrmætum tíma
sínum að óþörfu og án þess
að vonast eftir einhverjum
árangri.
Fyrir Alþingiskosningarnar i
sumar varaði Sósíalistaflokk-
urinn við þeirri hættn, að
Bandaríkin myndu gera nýjar
kröfur til herstöðva hér á
landi, svo franiarlega sem
þjóðin ekki sneri baki við
þeim flokkum, sem lýstu ekki
Á bæjarstjórnarfundi, sem
haldinn var kvöldin 28. og 29.
þ. m. var í fundarlok sam-
þykkt, eftir einróma tillögu
hafnarnefndar, að Marzelíusi
Bernharðssyni yrði falin stjórn
og framkvæmd á byggingu
hafnaruppfyllingarinnar í
Neðstakaupstaðnnm og verk-
inu hraðað, svo sem frekast
eru tök á.
I fundargerð hafnarnefndar
frá 26. þ. m. er bókað um þessa
ákvörðun sem hér segir:
„Bæjarstjóri skýrði frá því,
að hann hefði samkvæmt sam-
þykkt síðasta fundar rætt við
Marzelíus Bernharðsson um að
taka að sér framkvæmd á
byggingu hafnarbakkans. —
INIarzelius telur sig geta útveg-
að efni í verkpalla og vill selja
það til verksins með lögboð-
inni álagningu. Þá gefur Marz-
elíus kost á því, að hann taki
að sér stjórn og framkvæmd
verksins á þeim grundvelli,
sem hann selur aðra vinnu, þ.
e. með álagningu, sem verð-
lagseftirlit ríkisins hefir leyft
ákveðinni andstöðu gegn þrá-
setu bandaríkja hersins hér og
leigu á herstöðvum til Banda-
ríkj anna.
Það er nú komið á daginn
að þessi aðvörun var ekki á-
stæðulaus. Bandaríkjastjórn
virðist telja úrslit kosninganna
sönnun þess, að henni sé ó-
hætt að leita að nýj u samninga
um herstöðvar, og allt bendir
til þess að hún ætli sér að nota
þessa aðstöðu.
Það er því fullkomin nanð-
syn nú, eins og áður, að þjóðin
sé á verði í þessu stórmáli. Að
mánuði liðnum á hið nýkjörna
Alþingi að koma samán til
reglulegra fundahalda, Þennan
tíma verður þjóðin að nota til
þess að sannfæra alþingismenn
um, að hún unir ekki sömu af-
greiðslu á herstöðvamálinu og
urðu á aukaþinginu í júli.
honum eða samþykkist af því,
ef breyting verður á því á
tímabilinu, sem verkið stendur
yfir. Þessi álagning er nú 25%
á vinnulaun. Undir álagning-
una fellur ekki: Dýpkunar-
skipsvinna, áhöfn þess og land-
fylling, sem gera þarf með bíl-
um, né heldur þeir verkamenn,
sem að henni vinna.
1 álagningu er innifalið:
Verkstjórn, skrifstofukostnað-
ur, slysatrygging, veikindadag-
ar af slysum, brunatrygging ef
með þarf, öll áhöld á verkstæð-
um, nema rambúkkar og afl á
þá, og hús stöðvarinnar eftir
þörfum. Þótt áhöld tapist eða
eyðileggist þarf verkkaupi ekki
að bera neinn kostnað af því.
Hafnarnefnd samþykkir að
ganga að framanskráðu tilboði
Marzelíusar og óskar að verk-
inu verði hraðað, svo sem frek-
ast eru tök á“.
Undir þessa fundargerð
skrifa allir nefndarmenn, fyr-
irvaralaust, en þeir voru Marz-
elíus Bernharðsson, Sigurður
(Framhald á 4. siðu).
Bygging hafnaruppfyllingar-
innar i Neðstakaupstaðnum.
Framkvæmdir verða hafnar nú þegar þrátt fyrir til-
raunir bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins að tefja málið.
Marzelíusi Bernharðssyni falin framkvæmd og stjórn
verksins samkvæmt einróma tillögu hafnarnefndar.