Baldur - 28.09.1946, Blaðsíða 3
B A L D U R
3
BALDUR
(Vikublað)
Árgangur kostar 10 krónur.
Gjalddagi 1. júlí.
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Halldór Ólafsson frá Gjögri.
Ritstjórn og afgreiðsla:
Smiðjugötu 13.
Sími 80. — Pósthólf 124.
Þið þekkið hann.
Það var hann, sem brosti
frajnan í ísfirzka kjósendur í
vor og sagði: — Það er enginn
erlendur her lengur á Islandi.
Það var hann, sem sagði i
þingræðu um samninginn við
Bandarikin 21. september s. 1.:
„Þetta mál er ekki það
mikils virði að það taki að
hafa um það þjóðarat-
kvæðagreiðslu“.
Isfirðingar áttu eitt sinn
þingmenn, er fremstir stóðu í
sj álfstæðisbaráttu þj óðarinn-
ar. — Nú er öldin önnur.
er andvíg öllu afsali réttinda
sinna. Það er líka vitað, að
þjóðin hefir aldrei falið þing-
mönnum sínum umboð til þess
að svifta bana og afkomendur
hennar landi og frelsi, og hún
er þess enda ekki umkomin.
Þrátt fyrir flutning þessa
máls, er ekki enn séð fyrir af-
drif þess. Með einhuga mót-
mælaöldu um allt land má enn
bjarga þjóðinni frá þeirri ó-
gæfu, sem samþykkt samnings-
ins hefði i för með sér.
Það er eitt, sem þeir aum-
ingjar eru hræddir við, sem nú
eftir nýafstaðnar kosningar
telja sig þess umkomna að
svíkja föðurland sitt. Þetta
eina er fylgi kjósendanna.
Isfirðingar, látið ekki ykkar
eftir liggja, rísið sem einn mað-
ur upp til andmæla. Mótmælið
allir.
Sigurður Thoroddsen.
-------0------
B A L D U R er 6 síður
að þessu sinni og er blaðið
eingöngu helgað baráttunni
gegn nýja herstöðvasamn-
ingnum. Greinal* um annað
efni bíða næsta blaðs.
Sjálfstæöi
Siðustu dagar hafa verið við-
burðaríkir. Alþingi hefur
skyndilega verið kvatt saman
til að ganga frá samningi við
annað riki, Bandaríkin, um
flugvöllinn í Keflavik og fram-
tíðarrekstur hans.
Svo virðist sem mörgum sé
dulið hve alvarlegur samning-
ur er hér á ferðinni, samning-
ur, sem fyrirsjáanlega mun
valda gjörl)reytingu í íslenzk-
um stjórnmálum inn á við og
út á við.
Margir eru þeirrar skoðun-
ar að þessi samningur við
Bandaríkin sé í raun og veru
óverulegt atriði og skipti litlu
máli liver niðurstaðan verði.
Svo er því miður ekki. Hér er
um alveg sérstæðan samning
að ræða. Hér er verið að semja
um stórmál — flugmál og þýð-
ingu Islands á því sviði — á
þann hátt, að Islendingar eru
raunverulega að svipta sig öll-
um umráðum þeirra, eftirlits-
og hvaðalaust í hendur Banda-
ríkjanna, og um leið að skerða
yfirráðarétt íslenzka ríkisins
yfir þýðingarmesta svæði
landsins, Reykj anessflugvellin-
um, án þess að fá nein réttindi
á móti, og án þess að nokkur
nauðsyn íslenzkra hagsmuna
réttlæti slíkt yfirráða afsal.
' Það er almennt viðurkennt,
að ríki, sjálfstætt og fullvalda,
ráði eitt landi sínu og því fólki,
sém þar býr eða dvelur. Allir,
sem í landinu dvelja, verða að
lúta lögum þess, boði og banni
og hera skatta og skyldur. Rík-
isvaldið ræður því hverjum
það veitir landvist og með
hvaða skilyrðum. Ríkið hefur
eitt yfirráðarétt yfir landi sínu,
landhelgi og lofthelgi, þeim
fjármunum og því fólki, sem
þar er. Takmörk landsvæðisins
eru einnig takmörk ríkisvalds-
ins, og hefur það því eigi vald
til að ráða meðferð manna og
málefna utan þeirra takmarka.
Þetta er þó ekki án undan-
tekninga.
Islenzka ríkið skortir sam-
kvæmt þjóðarétti vald yfir
sumum mönnum, sem í land-
inu dvelja, t? d. þjóðhöfðingj-
um annarra ríkja, starfsliði
dvelja hér á landi, sendiherr-
um annara ríkja, starfslið
þeirra og fjármunum, meðan
þeir gegng störfum og dvelja
hér og herskipum og herflokk-
um annara ríkja, er hingað
koma og eru undir löglegri
stj órn
Þá nær vald ríkisins út fyrir
landsvæði þess um ofannefnda
starfsmenn í öðrum löndum.
Þegar slíkum undantekning-
um sleppir, eru það staðartak-
mörk ríkisins, sem ráða vald-
sviði þess.
Víðtækari undantekningar
en hér eru greindar, hafa þó
tíðkast í hálfsiðuðum ríkjum,
r
Islands er
þannig að ræðismenn erlendra
ríkja hafa haft almenna lög-
sögu yfir þegnum síns ríkis,
þeim, er þar þar hafa dvalið.
Er það víðtækasta undantekn-
ingin frá þvi að hver þjóð hafi
lögsögu yfir þeim mönnum,
sem á landi hennar húa eða
dvelja. Aðeins fáum þjóðum
hefur verið boðið upp á slíkt,
og þá með þeirri röksemd, að
þær þjóðir væru ekki menn-
ingarlega og siðferðilega þeim
vanda vaxnar að fara með slikt
vald yfir erlendum mönnum.
— Nú er íslendingum boðið
upp á slíka kosti af „vinar-
þjóð“ og af þjóð, sem hefur
skýlaust viðurkennt fullveldi
og sjálfstæði landsins. Og Is-
lendingar virðast láta svo sem
þeim sé mikill sómi sýndur
með slíku hoði.
I samningsuppkástinu er
gert ráð fyrir, að allir bandar-
ískir starfsmenn — ótiltekinn
fjöldi — skuli undanþegnir
skyldum við íslenzkt ríkisvald,
lögsögu þess, skyldu til skatt-
greiðslu af tekjum sínum,'
skyldu til að greiða tolla eða
önnur gjöld af neyslu sinni og
efni því, útbúnaði, nauðsynj-
um eða vörum, sem þeir flytja
inn eða. út vegna starfsemi
sinnar. Þeir hafa ótakmarkaða
heimild til innflutnings á öll-
um þeim vörum og tækjum,
sem þeir telja sig þurfa að
nota. M. ö. o. hér er ríki í rík-
inu. Erlend þjóð fær leyfi til að
hafa í landi okkar ótiltekinn
fjölda þegna sinna, til þess að
vinna að framkvæmd hernað-
arskuldbindingar, sem Islandi
er algerlega óviðkomandi. Og
meira að segja húa um sig að
eigin geðþótta, umfram nauð-
syn þeirrar framkvæmdar, og
gera flugvöllinn að ægilegri á-
rásarmiðstöð í hugsanlegum
hernaði.
Þessi erlenda þjóð fær enn-
fremur afnot af tilteknu land-
svæði fyrir flugvélar, jafnt far-
þega- og póstflugvélar sem her-
flugvélar, án þess að greiða
lendingargjöld. Hún fær ótak-
markað og eftirlitslaust að
reisa þau mannvirki, sem
henni sýnist á íslenzku landi.
I samningnum eru fjölda
mörg atriði svo óljós, að
það hlýtur að valda deilum,
hvernig ber að skilja þau.
Þannig er talað um flugför,
rekin á vegum Bandaríkja-
stjórnar og um „umboðsmenn“
hennar. Hvað átt er við með
þessu orðalagi er ómögulegt að
segja og ógerlegt fyrir Islend-
inga að vita hvað af þessum á-
kvæðum kann að leiða. Þá eru
í samningnum atriði, sem
Bandaríkj arikj astj órn er al-
gerlega í sj álfsvald sett hvern-
ig framkvæmd verða eða hvort
þau verða framkvæmd, eins og
t. d. brottflutningur hersins,
í hættu.
þjálfun Islendinga í flugvallar-
tækni o. fl. I samningnum er
talað um reglugerð, sem stj órn-
ir Bandaríkj anna og Islands
eigi að koma sér saman um
viðvíkjandi afnotum flugvall-
arins og um grundvöll hvernig
slcipta beri kostnaði. Þetta eru
hvorttveggj a svo mikilsverð
atriði, ininnsta kosti fyrir Is-
lendinga, að stórhættulegt er
fyrir þá að eiga um þau nokk-
ur eftirkaup. Áð ekki sé talað
um þá móðgun, sem Islending-
um er sýnd með því að láta
annað ríki setja reglur um af-
not landsvæðis í þeirra eig-
in landi. — Þannig mætti
rekja áfram, en hér verður
staðar numið.
Það er ljóst, að þessi samn-
ingur er ekki gerður í þágu ís-,
lenzkra hagsmuna. Hann er
ekki gerður í anda yfirlýsingar
okkar um ævarandi hlutleysi
og vopnleysi. Ef við látum hafa
okkur til þess er það sama og
vígbúnaður íslenzku þjóðar-
innar sjáll'rar til árásarstyrj-
aldar, enda vafalaust þannig á
það litið af öðrum þjóðum.
Þeir menn, sem nú berjast
fyrir samþykkt þessa samn-
ings, eru vitandi eða óafvitandi
að stofna íslenzku sjálfstæði
og íslenzku þjóðinni allri í ó-
fyrirsj áanlega liættu. Þeir eru
að gera annan Gamla sáttmála.
Og hvaða Islendingur vill, að
afleiðingar þess sáttmála end-
urtaki sig.
0
Forsætirráðherra leggur
nýjan herstöðvasamning
fyrir Alþingi.
Framh. af 1. síðu.
tillagan aftur til umræðu. Stóð
sá fundur langt fram á aðfara-
nótt sunnudags og lauk með
því að málinu var vísað til ann-
arar umræðu með 28 atkv.
gegn 10 að viðhöfðu nafna-
kalli, 14 þingmenn voru fjar-
verandi. Með því að vísa mál-
inu til annarar umræðu voru:
Allir viðstaddir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, sex þing-
menn Framsóknarflokksins,
fimm þeirra með fyrirvara til
síðari umræðu og allir við-
staddir þingmenn Alþýðu-
flokksins. Á móti voru níu
þingmenn Sósíalistaflokksins,
Lúðvík Jósefsson var ekki
kominn til þings, og Hannibal
Valdimarsson. Málinu var sið-
an vísað til utanríkisnefndar.
Alþingi frestað.
I gær var reglulegu Alþingi
l'restað til 10. okt. Aukaþingið
heldur áfram til þess tíma. —
Mun ætlunin að samningsmál-
ið verði þá leyst. — Ameríku-
agentarnir hafa ])annig látið
undan síga og ríður nú á að
fast sé fylgt eftir.