Baldur - 17.06.1953, Qupperneq 1
& CQtS',
s
BALDUR
XIX. ÁRG.
Isafjörður, 17. júní 1953.
8. tölublað.
Marshallgjafirnar eru mútur
til hernámsflokkanna,
íslenzka þjóðin er látin borga þær.
Marshallflokkarnir þrír, íhaldið,
kratarnir og framsókn guma mik-
ið af hjálpsemi Bandaríkjanna í
garð okkar lslendinga. Og víst er
um það, að á pappírnum nema
Marshall-„gjafirnar“ miklum fjár-
hæðum, hvorki meira né minna en
480 miljónum króna.
Það er einkum tvennt, sem menn
verða að hafa hugfast í sambandi
við allt skrumið af hinum svoköll-
uðu gjöfum.
1 fyrsta lagi að hér er um hreina
mútustarfsemi að ræða. Vegna
„gjafanna“ hefur bandaríslta auð-
valdinu tekizt að binda þríflokk-
ana á klafa og — með hjálp þeirra
— að hafa bein áhrif á þróun efna-
liagsmálanna á Islandi.
Sem dæmi má nefna „gjöfina"
— 114 miljónir króna — sem rík-
isstjórnin fékk í ársbyrjun 1951.
Þeirri gjöf fylgdi það skilyrði, að
ríkisstjórnin léti hætta við að
greiða launauppbætur í samræmi
við hreyfanlega vísitölu. Þetta var
m.a. staðfest af Marshall-þing-
manninum Hannibal Vaklimars-
syni á Alþingi 1951.
1 öðru lagi, að hér er alls ekki
um neinar gjafir að ræða. íslend-
ingar sjálfir eru látnir greiða það
fé, sem þríflokkunum hefur verið
mútað með.
Þannig er mál með vexti að
bandaríska auðvaldið fyrirskipaði
þríflokkunum að Iækka gengi
krónunnar. Ein grein Marshall-
samningsins fjallaði um þessa
gengislækkun.
Á einu ári hækkaði gengi doll-
arsins úr kr. 6,50 upp í kr. 16,32.
Með þessari stórkostlegu lækkun
krónunnar græðir bandaríska auð-
valdið allar Marshall-„gjafirnar“ á
furðu skömmum tíma.
Árið 1947 var tímakaup Dags-
brúnarmanns, ef það er umreiknað
í dollara, 1 dollar og 40 cent. Hafn-
arverkamaður í New York hafði
þá sama kaup, 1 dollar og 40 cent
á tímann.
Nú er samsvarandi tímakaup
Dagsbrúnarmannsins aðeins ■ 89
cent, eða rúmur helmingur af því
sem það var 1947. Laun hafnar-
verkamannsins í New York hefur
hinsvegar hækkað upp í 2 dollara
og 10 cent á tímann.
Ameríska auðvaldið borgar nú
íslenzkum verkamanni á Suður-
nesjum 34,859 krónur á ári fyrir
8 tíma vinnu á dag, en yrði að
borga amerískum verkamanni
82.242 krónur. Það græðir því kr.
47.383 á hverjum íslenzknum
verkamanni — eingöngu vegna
þess að gengi krónunnar var lækk-
að.
Nú hafa Ameríkanar yfir 2500
Snorri Hjartarson:
M arz 1949.
Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein,
þér var ég gefinn barn á móðurkné;
ég lék hjá þér við læk og blóm og stein,
þú leiddir mig í orðs þíns háu vé.
Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein,
í dögun þeirri er líkn og stormhlé
og sókn og vaka: eining hörð og hrein,,
þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé.
Þú átt mig, ég er aðeins til í þér.
Örlagastundin nálgast grirnm og köld;
hiki ég þá og bregðist bý ég mér
bann þitt og útlegð fram á hinzta kvöld.
ísland, í lyftum heitum höndum ver
ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld.
íslenzka verkamenn í þjónustu
sinni. Ef ekki hefði komið til geng-
islækkananna hefðu Ameríkanar
þurft að greiða þessum verkamönn
um 205 milj. kr. á ári. En vegna
gengislækkunarinnar þurfa þeir
aðeins að greiða 87 milj. kr. Hreinn
gróði hinna bandarísku er því 118
milj. kr. á ári.
Það er alkunna, að Ameríkanar
ætla að stórfjölga í hernámsvinn-
unni, fá 5000 til 6000 íslenzka
verkamenn í þjónustu sína.
Og getur þá hver og einn reikn-
að út hve langan tíma það tekur
Ameríkanana að græða allar hin-
ar lofsungnu Marshall-„gjafir“!!
---------0--------
JÓN SIGURÐSSON.
4I1IIIIII!IIIIIIIIIIIIIII|II|||||||||||||IIIIIIIIIIIIIIIII|IIIII|IIIIIIIIIII|II|II|II|II|I||||||||||||||||||||!||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||1
Stefna Sósíalistaflokksins:
Sj álfstæðismálið.
Hernámsflokkarnir þrír hafa svikið land vort í
hendur amerísks hervalds með Keflavíkursamn-
ingnum:i Atlanzhafssamningnum og hernáminu.
Þeir hafa sett efnahagslíf vort undir yfirstjórn
amerísks auðvalds, sem þrengir í sífellu kosti alþýð-
unnar.
ÞAÐ SEM VIÐ VILJUM:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
Hernámssamningnum verði sagt upp og
ameríski herinn látinn fara af landi burt.
Atlanzhafssamningnum verði sagt upp.
ísland verði friðlýst land og ævarandi hlut-
láust í ófriði.
Landi og þjóð sé haldið utan við allan vígbún-
að og öll hernaðarbandalög.
Alþingi lýsi yfir því, að ísland ætli hvorki að
koma sér upp her né koma á herskyldu.
Landsmenn fái fullt frelsi til að verzla við
hvaða lönd sem er, byggja sér hús og efla at-
vinnulíf sitt, án þess að spyrja aðrar þjóðir.
Barizt sé fyrir því að létta fjötrum erlendra ;
einokunarhringa af þjóðinni og hindra að !
auðhringar nái tökum á auðlindum landsins. !
Full sakaruppgjöf og mannréttindi veitt þeim,;
er dæmdir voru vegna 30. marz 1949. !
Sósíalistaflokkurinn hefur barizt' einn allra
flokka gegn yfirráðum ameríska valdsins yfir landi
voru. Hernámsflokkarnir ætla að margfalda ítök
Ameríkanana á Islandi, sýkja þjóðina af pest her-
setunnar, þekja ísland með herstöðvum, ef þeir
komast klakklaust út úr kosningunum. Bíði þeir
ekki alvarlega hnekki munu þeir stofna íslenzkan
leppher. — Þjóðin þarf því að fylkja sér um Sósíal-
istaflokkinn og þá, sem með honum berjast, betur
en nokkru sinni fyrr.
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111