Baldur - 17.06.1953, Qupperneq 3

Baldur - 17.06.1953, Qupperneq 3
BALDUR 3 Guðný M. Björnsdóttir MINNIN G ARORÐ. Guðný Bjömsdóttir, kona Magn- úsar Sveinssonar kennara, andað- ist 5. júní s.l. í Sjúkrahúsi Isafjarð ar. Þangað fór hún 1. s.m. til að ala þar fyrsta bam sitt, sem tekið var með keisaraskurði sama dag. Heppnaðist sú vandasama skurð- aðgerð í alla staði vel, barnið ynd- aðgerð í alla staði vel, barnið, ynd- isleg stúlka, lík móður sinni, lifði fyrst á eftir með eðlilegum hætti. Fögnuði foreldranna verður ekki með orðum lýst. Lífið brosti nú við þeim bjartara og ríkara af vonum og fyrirheitum en nokkru sinni áður. En hér urðu snögg og sorgleg umskipti. Móðirin veiktist skyndilega og varð brátt heltekin. Allt var gert, sem í mannlegu valdi stóð, til að lina þjáningar hennar og bjarga lífi hennar, en sú barátta varð árangurslaus, dauðinn bar sigur af hólmi í þeirri viðureign. Guðný Margrét Björnsdóttir var fædd að Núpsdalstungu í Miðfirði 2. júní 1908. Foreldrar hennar voru hjónin Björn Jónsson og Ás- gerður Bjarnadóttir, sem þar bjuggu um 50 ára skeið. Hún var yngsta barn þeirra hjóna og kom í hennar hlut að vera aðstoð þeirra í ellinni, þegar hin systkin- in voru farin að heiman og höfðu stofnað eigin heimili. Foreldra sína yfirgaf Guðný ekki fyr en bæði voru dáin og síðustu æviár þeirra hvíldi forsjá heimilisins að mestu á hennar herðum. „Hún hafði óvenjulega hæfileika til mik- illar forstöðu. Hún var atorkusöm, skapstillt, fórnfús og umhyggju- söm svo af bar“, segir mágur hennar, Magnús F. Jónsson, í minningargrein um hana í Morg- unblaðinu 12. þ.m. Eftir kynni mín af Guðnýju veit ég með vissu, að þar er ekkert ofmælt, en hvert orð þessara ummæla er gullvægur sannleikur. Eftir lát foreldra sinna fluttist Guðný alfarin frá æskuheimili sínu og fór til Reykjavíkur. Bjó hún þar hjá bróður sínum dr. Birni Björnssyni, hagfræðing, og vann um skeið á bæjarskrifstofum Reykjavíkur. Störfin þar vann hún af þeirri prýði, sem henni var lag- in og ávann sér ást og hylli allra, sem hún umgekkst. Þann 12. september 1948 giftist Guðný eftirlifandi eiginmanni sín- um, Magnúsi Sveiríssyni, kennara við Gagnfræðaskólann á Isafirði. Sama haust fluttist hún með hon- um hingað til bæjarins og átti hér heima upp frá því. Það voru því greiðslur hefjast og hvar þær verða inntar af hendi. Landsbanki lslands. tæp 5 ár, sem hún var búsett hér, þó ekki óslitið, því að á hverju sumri dvöldu þau hjón fjarvistum úr bænum 2—3 mánuði í sumar- leyfi Magnúsar. Á þessum skamma tíma eignaðist Guðný marga vini, sem elskuðu hana og dáðu og það því meira sem þeir kynntust henni lengur og nánar. Ég kynntist Guðnýju undir eins og hún kom hingað. Eftir það kom ég svo að segja daglega á heimili hennar, stundum oft á dag og naut þar ætíð ógleymanlegra ánægju- stunda. Þau hjón voru bæði fram- úrskarandi gestrisin og sambúð þeirra ástúðleg á báðar hliðar. Guðný var búin öllum þeim kost- um, sem góða konu mega prýða. Hún var sérstaklega myndarleg húsfreyja, iðjusöm svo af bar, og allt, sem hún snerti hendi á, var unnið af alúð og vandvirkni. En það, sem gerði samvistir við hana ógleymanlegar öllum, sem þeirrar hamingju urðu aðnjótandi, var gleðin og hjartahlýjan, sem hún var svo rík af og var svo eðlilegt og ljúft að miðla öllum, sem ná- lægt henni voru. Aldrei heyrðist hún mæla last- eða styggðaryrði um eða til nokkurns manns og við- mót hennar var jafn ljúft og inni- legt við hvern sem í hlut átti. Hjartagæzka hennar kom þó bezt fram við þá, sem bágt áttu .og ekki voru sjálfbjarga. Mágur hennar lýsir í áðurnefndi grein hve ant hún lét sér um gamal- menni og unga fóstursystur sem voru á æskuheimili hennar, og allt, sem lífsanda dró, en var upp á aðra komið, átti hauk í horni þar sem hún var. Mér er líka í minni af hve einstakri umhyggju hún hjúkraði frænda séra Sigurðar Kristjánssonar, Ingólfi sál. Jóns- syni, skipstjóra, sem síðustu ævi- stundirnar varð að meðhöndla eins og ósjálfbjarga barn. En heim ili séra Sigurðar veitti Guðný for- stöðu ásamt sínu þau ár, sem hún átti hér heima, og gerði það með þeim myndarbrag og umhyggju- semi, sem henni var í blóð borin. Minningar- og kveðjuathöfn þessarar elskulegu konu, fór fram á heimili hennar og í ísafjarðar- kirkju 9. þ.m. Konur samstarfs- manna eiginmanns hennar og aðr- ar vinkonur hinnar látnu skreyttu kirkjuna blómum og fjölmennið, sem viðstatt var, sýndi hve djúp ítök hún átti í hjörtum allra, sem þekktu hana, og hve sárt hennar var saknað. Ekkert er eins átak- anlega sorglegt og þegar móðir deyr frá nýfæddu barni sínu. Sorg- in verður þó enn sárari, þegar á bak er að sjá annari eins konu og Guðnýju. Framhald á 4. síðu. Innköllun kröfulýsinga um bætur á sparifé. samkvæmt 13. gr. 1. nr. 22, 19. marz 1953 og bráðabirgðalögum 20. apríl 1953. Hér með er skorað á þá, sem telja sig eiga rétt til bóta samkvæmt ofangreindum lögum, að lýsa kröfum sínum fyrir 25. október 1953, að viðlögðum kröfumissi, til innlánsstofnunar (banka, sparisjóðs, innláns- deildar samvinnufélags) eða verzlunarfyrirtækis, þar sem innstæða var 31. desember 1941 og/eða 20. júní 1946. Eyðublöð undir kröfulýsingu verða afhent í ofangreindum stofnunum frá og með 25. júní 1953. LANDSBANKI ÍSLANDS. Arður til hluthafa Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands 6. júní 1953, var samþykkt að greiða 4% — fjóra af hundraði — í arð til hluthafa fyrir árið 1952. Arðmiðar verða innleystir í aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík og lijá afgreiðslumönnum félagsins um land allt. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS. Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu varðandi Lánadeild smáíbúðarhúsa. Þeir, sem kynnu að ætla að sækja um lán úr Lánadeild smáíbúðar- húsa á árinu 1953, skulu senda umsóknir sínar til félagsmálaráðuneyt- isins, Túngötu 18, Reykjavík, fyrir lok næstkomandi ágústmánaðar. Umsóknum um lán úr Lánadeildinni þurfa að fylgja eftirfarandi skil- ríki: 1. Afrit af lóðarsamningi eða yfirlýsing þess, er lóðina hefur látið á leigu, að umsækjandi hafi fengið útmælda lóð, sam- kvæmt skipulagsuppdrætti, ef slíkt er fyrir hendi. Sé um eignarlóð að ræða, þarf sönnun fyrir eignarrétti. 2. Uppdrátt af fyrirhugaðri byggingu, eða húsi því er sótt er um lán til. 3. Vottorð byggingarfulltrúa eða oddvita, hvað bygging sé komin langt, ef umsækjandi hefur þegar hafið byggingu. 4. Vottorð oddvita eða bæjarstjóra viðkomandi sveitarfélags um fjölskyldustærð. 5. Upplýsingar um húsnæðisástæður umsækjanda, s.s. stærð íbúðar í fermetrum. Ef um heilsuspillandi húsnæði er að ræða, þá þarf vottorð héraðslæknis (í Reykjavík borgar- læknis). 6. Veðbókarvottorð, ef bygging er eitthvað komin áleiðis. 7. Greinargerð umsækjanda varðandi fjárhagslega möguleika til að gera fyrirhugaða íbúð íokhelda. Þeir, sem sendu umsóknir um lán til Lánadeildarinnar á árinu 1952, . og eigi var hægt að sinna, þurfa að endurnýja umsóknir sínar, en vísað geta þeir til áðursendra upplýsinga. Eyðublöð undir umsóknir fást í Veðdeild Landsbankans í Reykjavík og útibúum hans, en hjá oddvitum og bæjarstjórum þar sem ekki er starfandi útibú frá Landsbankanum. FÉLAGSMALARAÐUNEYTIÐ, 22. maí 1953.

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.