Baldur - 23.12.1953, Side 12
llllllllll[||||1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||I|||||||II!!l||||||||||||Ili::i:il|||||||MI|||||||||!|||||||||||||||||||||||||||||t||t|l||!lll|||||||||||||||||l||l|ll|l|l||l|||p|||| 5 jilll||||||||||||||||||||||lllllllll|||llllll||||||||||lllll||||||1i|||||||!l||||tl|||||||||||||||||||!|||!|||||lllll||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||!l|||||||||llllllll||||lllll|||||;i
12
BALDUE
•IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIBIr^llBlllliailllllllllllIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIBUIIIIIIIIIIIIBIlBIIIIIBIIIIIBUailBllBIIIUHBIIIIIIllllllllBIIIIIBIIIUIIiatllIlllillllIllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllII !;|l
NÝJAR NOHÐR A BÆKUR
UNDIR TINDUM
Ævisöguþættir og sagnir Böðvars Magnúss. á Laugarvatni.
Jafnframt því að vera merk ævisaga hins umsvifamikla stór-
bónda, er gaf jörð sína til þess að hrinda fram stóru máli, þá
er þetta samfara því saga þess mesta framfaratímabils, sem
birzt hefir í íslenzku þjóðlífi til sjávar og sveitar. Verður
mörgum hugleikið að fá tækifæri til að ganga undir hönd
Böðvars á Laugarvatni, sjá og heyra umrót heillar aldar líða
yfir jörðina hans, heimasveitina, héraðið, landið og þjóðlíf þess.
HETJUR HVERSDAGSLIFSINS
Skrásett hefir Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Sérstæð bók. Eins konar myndasafn úr lífi alþýðunnar. Þú
heyrir raddir mannanna, sem plægja, sá og uppskera, sem
leggja stein við stein í byggingu framtíðarinnar, sem ryðja
vegina og byggja brýmar, sem fæða og ala nýjar kynslóðir
handa framtíðinni. Upp af svitadropum þessa fólks hafa vaxið
þau lífsgrös menningar, tækni og þæginda, sem við búum við
í dag.
VEGUR VAR YFIR
eftir Sigurð Magnússon, kennara.
Höfundur þessarar bókar er fyrir löngu þjóðkunnur vegna
ágætra útvarpserinda og snjallra greina. Hér segir hann m.a.
frá hópferðum íslendinga til Norðurlanda, kynnum af veiði-
mönnum á austurströnd Grænlands. Hann lýsir bardaga í Bang-
kok, hann strandar norður í Ishafi, er handtekinn í Síam,
stendur við dauðans dyr í Kína, fer til selja í Noregi o.m.fl.
BÓNDINN Á STÓRUVÖLLUM
Ævisöguþættir Páls H. Jónssonar, Stóruvöllum skráðir eftir
sögn hans sjálfs og öðrum heimildum af Jóni Sigurðssyni í
Yztafelli. Páll H. Jónsson, sem nú er orðinn 93 ára að aldri,
lýsir í bók þessari viðburðaríkri ævi og segir merka sögu nærri
heillar aldar, sem er í senn sérstæð og athyglisverð og lýsir,
baráttu og þreki þess fólks, sem byggt hefir einn sérstæðasta
dal þessa lands, Bárðardal, í jaðri Ódáðahrauns, þar sem tröll
og útilegumenn hafa lifað sitt fegursta í þjóðtrú Islendinga.
ÞREK I ÞRAUTUM
Guðmundur G. Hagalín skrásetti.
I þessari bók birtast sannar sögur af konum og körlum, sem
lent hafa í miklum þrautum og þrekraunum. Hjá þeim koma
fram þeir eðliskostir Islendinga, sem um aldir hafa reynzt þeim
vopn og verjur í stríði við harða náttúru og við öfl erlendrar
og innlendrar kúgunar. Þessir kostir eru óbilandi þrek og
þrautsegja, óbilug trúmennska og trú á hulin máttarvöld.
Þetta er efnismikil bók, þrungin hrífandi atburðum og átakan-
legum, sem seint munu gleymast.
HRAKNINGAR OG HEIÐARVEGIR, 3. bindi.
Skráð hafa Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson.
Þrátt fyrir marglofaða tækni nútímans fara menn sér enn að
voða á heiðarvegum og öræfum þessa lands. Bókin flytur fjöl-
marga örlagaþrungna þætti af fangbrögðum Islendinga við
hina harðráðu og svipulu náttúru landsins. Kjarni hinna þjóð-
legu spakmæla að „enginn ræður sínum næturstað“ gengur sem
rauður þráður gegnum bókina. Þetta er þjóðleg bók í beztu
merkingu þeirra orða.
GÖNGUR OG RÉTTIR, 5. bindi.
Bragi Sigurjónsson bjó til prentunar.
Með þessu bindi lýkur stærsta og sérstæðasta heimildarritinu
um íslenzka þjóðhætti. Alls er ritsafnið orðið 1.462 bls. að
stærð. Göngur og réttir njóta sívaxandi vinsælda enda geymir
ritið merkar heimildir um einn hugstæðasta þátt í búskapar-
sögu þjóðarinnar um aldaraðir, hætti og siði feðra vorra, ör-
nefni á afréttum og lýsingar á ýmsum landsvæðum, auk fjölda
mynda hvaðanæva af landinu.
BENNI ISKÓLA
Ýmsir þeirra, sem lesið hafa Benna-bækurnar hafa látið í ljós
þá ósk við höfundinn, W. E. Johns, höfuðsmann, að hann segði
eitthvað frá unglingsárum Benna. Hefir höf. orðið við þeirri
beiðni og segir í bók þessari frá skólaárum Benna. Ævintýrin
elta hann á röndum þá eins og síðar á lífsleiðinni. Það gerast
alltaf óvæntir atburðir og spennandi í návist Benna.
Merkar bækur og; athyglisverðar VINSÆLUSTU BÆKUR ÁRSINS Sérstæðar bækur og skemmtilegar I
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll||||||||||||||||||||||||||||||llll!ll|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||!llllllllllll!llllllllllllllllll!illll!lllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllllllllllllll!l!llll||||;illli;i|[;|l||||||:|.:i;:| ;l::ii:|,;i!irillllllll!i ;i;igi;
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIH . IIIIIIIIIIIIIIIII1111IIIII1111IIIIIIIIIIIIIIIIIIII1111IIIIIIIIIIIIIIIII1111IIIIIIIII 11,1111111II11111! IIIIIIIII1111II1111IIIIIIII | III || | II1111 III I I
Frá bankaútibúunum
Engin afgreiðsla í alinennum sparisjóðsbókum
milli jóla og nýjárs.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS H.F. LANDSBANKI ISLANDS
útibúið á Isafirði. útibúið á ísafirði.
ú s iF ii uc © ii m <rr» iu iH! ni F
| óskar öllum Isfirðingum, viðskiptavinum =
| og starfsfólki til lands og sjávar, |
| gleðilegra jóla 1
= og hamingjuríks komandi árs. |
| iiiiiitiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iii iiii =
Prentstofan ísrún h.f.
| óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla, |
| góðs komandi árs |
og þakkar viðskiptin á líðandi ári. |
= iii:iiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiii!II!Iiiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiii ■ ii i i .1 i ii i iiiii.iiiiiiiiiiiiiiiiinii 1.11111111111 ~
GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT NÝTT AR!
Sósíalistafélag Isafjarðar.
,I.II.II.II.II.IIIII.II.II.II.MIII.II.II.IIIII.II.II.IIIIIII1.IIIII.II.II.II.II.III>1III.IIIII.III1I.II.II.II.II.II.IIIIIIII1II.II.IIII,.II.II1II.IIIII.IIIII.II !llllll!lllllllllIIII!IIIIIIJ|l!lil||i||l|ílll!|ll|ll|ll||||lll!l|:i|i!| .l | | | | ■ ■ | .............. .................II I I I I I I IIIIIIIII | II lllllll. 1