Baldur - 19.04.1958, Qupperneq 2
2
BALDUR
Þinggjöld 1958
Samkvæmt ákvörðun fjármálaráðuneytis í reglugerðum ber
að greiða fyrirfram upp í þinggjöld 1958 upphæð, sem nemur
helmingi þinggjalds hvers gjaldanda 1957.
Fyrirframgreiðslan skal fara fram í fernu lagi: í marz, 1.
apríl, 1. maí og 1. júní.
Verði vanskil á greiðslu er þinggjaldshlutur allur þegar fall-
inn í gjalddaga.
Hérmeð er skorað á skattgreiðendur að greiða í bæjarfógeta-
skirfstofuna fyrirframgreiðslur samkv. framansögðu og atvinnu-
rekendur að greiða reglulega af kaupi starfsmanna sinna.
Bæjarfógetinn á ísafirði 25. marz 1958.
Utll>UUIlUIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIilllllUllllllll{|UIUilllllllllUUllUinillHllllll!lilllllUUilllllUIIIIIIIIIIIIUIUillllllUIIIIIIIUIUI
( Starfsstúlkur
| óskast á Elliheimili ísafjarðar. Forstöðu- |
| konan gefur upplýsingar. |
ísafirði, 9. apríl 1958. |
| BÆJABSTJÓBI. |
íiiiiuiitiiiiuiiM.iiiiiuiiiitiiiiiiiiuiiiiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiujiiiiiiaiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiaiiiiiií
Frá bæjarstjórn.
Framhald af 4. síðu.
gjald. Ákvörðun vár frestað, þar
sem upplýst var, að Barnaverndar-
félag Isafjarðar væri að undirbúa
rekstur dagheimilis í sumar, og
vegna örðugleika á því að fá stór-
an bíl til flutninga á börnum út
fyrir bæinn, hefði félagið hug á
að semja við bæjarstjóm um
rekstur dagheimilisins á barna-
leikvellinum.
Á bæjarstjórnarfundi 16. þ. m.
var aðalmálið erindi um útsvars-
ívilnun til giftra kvenna, sem
vinna í hraðfrystihúsum og rækju-
verksmiðjum.
Samþ. var með 5:4 atkv., „að
beina þeim tilinæluin til niður-
jöfnunarnefndar, að við álagn-
ingu útsvara á þá gjaldendur,
þar sem tekjur eiginkvenna,
vegna vinnu þelrra í hraðfrysti-
húsum og rækjuverksmiðjum,
bætast við tekjur eiiginmannsins
til álagningar, verði veittur frá-
dráttur af útsvari, sem nemi 5
af hundraði af tekjum konunn-
ar.“
Sjálfstæðismenn lögðu til, „að
húsmæður þær, sem að fram-
leiðslustörfum vinna, svo og aðr-
ar húsmæður, sem vinna utan
heimilis, fái þá ívilnun í álagn-
ingu útsvars, að niður verði fellt
af útsvarsupphæð þeiirra % af
því, sem lagt er á fyrir vanhöld-
um.“
Þessi tillaga var felld með 5:4
atkv. Um báðar tillögumar var
nafnakall. Þetta mál verður nánar
rætt í næsta blaði.
Aðrar samþ. fundarins voru m.
a.: Guðm. Halldórsson, verkfræði-
nemi, verði ráðir.n til starfa hjá
Hus tíl sölu
Ibúðarhúsið Seljalandsvegur 84A
er til sölu, ef viðunandi tilboð fæst.
Nánari upplýsingar gefur undir-
ritaður.
Haraldur Stígsson.
Gjafir og áheit í Björgunar-
sjóð Vestfjarða.
Til minningar um Ólaf Jónsson
fyrv. skólastjóra í Súðavík, gefið
á 65 ára afmæli Ólafs 27. marz
1958 af skólabörnum í Súðavík kr.
1240,00. — Frá H. E. ísafirði kr.
65,00. — Gjöf frá Sölva Guðnasyni
ísafirði kr. 100,00. —Alls kr.
1405,00.
Kærar þakkir fyrir þessar gjaf-
ir og allt fé, sem Björgunarsjón-
um hefir borist í mínar hendur.
Framvegis tekur Guðjón Jóhanns-
son, Tangagötu 15, ísafirði, við
gjöfum og áheitum til Björgunar-
sjóðsins. Minnist sjóðsins ykkar.
Hans er ávalt þörf. Verk hans
geta orðið mörgum til blessunar, í
nútíð og framtíð.
Lifið öll heil og sæl.
Kr. Kristjánsson,
Sólgötu 2, ísafirði.
bænum í sumar. Auglýst verði eft-
ir bæjarverkfræðingi með umsókn-
arfresti til 15. maí n.k. Út af er-
indi fólksbílaeigenda um stað fyr-
ir bifreiðaafgreiðslu við Hafnar-
stræti móti Landsbankanum, var
samþ. að beina til þeirra tilmælum
um að semja við vörubílaeigendur
um sameiginlega stöð.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður haldinn
í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní
1958 og hefst kl. 1,30 eftir hádegi.
I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á hðnu
starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og á-
stæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoð-
aða rekstursreikninga til 31. des. 1957 og efnahagsreikning
með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjómarinnar og
tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjómarinnar um skiptingu árs-
arðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem
úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna
að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dag-
ana 3.—5. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð
til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu
komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er,
10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 28. maí 1958.
Reykjavík, 10. janúar 1958.
STJÓBNIN.
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Tilkpning
Nr. 2/1958.
Innflutningsskrifstofan hefir ákveðið hámarksverð á harð-
fiski, sem hér segir:
Þorskur Ýsa Steinbítur.
Ópakkaður fiskur: Heilds. Smás. Heilds. Smás. Heilds. Smás.
kr. kg kr. kg kr. kg kr. kg kr. kg kr. kg
a) óbarinn 26,25 34,00 28,90 37,50 34,80 45,00
b) barinn 32,00 41,50 35,40 46,00 42,50 55,00
Pakkaður f iskur: a) óbarinn 29,00 38,00 32,00 41,50 38,40 50,00
b) barinn 34,80 45,00 38,50 50,00 46,00 60,00
Smápakkar 100 gr. eða minna: a) óbarinn 36,55 47,50 40,00 52,00 47,00 61,00
b) barinn 42,30 55,00 46,55 60,00 54,65 71,00
| Séu aðrar fisktegundir en hér greinir seldar í verzlunum, ber
| að leita staðfestingar verðlagsstjóra á útsöluverði þeirra.
| Reykjavík, 19. marz 1958.
I VEBÐLAGSSTJÖBINN.
jiiii ii r||iiiini iii ii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111.
B A L D U R
Ritst. og ábyrgðarm.: Halldór Ólafsson.
Prentstofan ísrún h.f., ísafirði.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii