Baldur - 10.04.1959, Side 4
BALDUR
Mesntaskóli á Isafirði
Þriðjudaginn 17. marz s.l. var haldinn á Isafirði almennur
borgarafundur til þess að ræða um stofnun menntaskóla á Isa-
l'irði. Til fundarins var boðað af nefnd, sem ýms félagssamtök
í bænum höfðu kosið og undirbúið hafði málið. Er hugmyndin
að þegar á þessu ári, verði stofnuð við gagnl'ræðaskólann á Isa-
firði framhaldsdeild, sem svarar til 1. bekkjar menntaskóla, og
síðar, þegar ástæður leyfa, verði stofnaður menntaskóli, sem
hafi réttindi til að veita stúdentsmenntun og stúdentspróf.
Nýir borgarar.
Sigrún ósk, fædd á ísafirði 20.
des. 1958, skírð 21. marz 1959.
Foreldrar: Erla Lúðvíksdóttir og
Sigurður Gunnarsson, Hlíðarv. 29,
Isafirði.
Sigríður, fædd á Isafirði 2. febr.
1959, skírð 26. marz 1959. Foreldr-
ar: Steinunn Gunnlaugsdóttir og
Árni Guðjónsson, fulltrúi, Isafirði.
Jóna Sigurbjörg, fædd á ísafirði
16. febrúar 1959. Foreldrar: Þur-
íður H. Kristjánsdóttir og Bjami
Jónsson, Sundstræti 14, ísafirði.
Jósef Sigmar, fæddur á Isafirði
19. jan. 1959. Foreldrar: Sigríður
Gísladóttir og Jósef Hálfdánarson,
Engjav. 28, ísafirði.
Bæði skírð 28. marz 1959.
Anna ólafía, fædd á ísafirði 7.
febrúar 1959. Foreldrar: Amdís
ólafsdóttir og Sigurður Ingvars-
son, Grundarg. 6, Isafirði.
Hallvarður Einar, fæddur á Isa-
firði 28. nóv. 1958. Foreldrar:
Agnes Hallvarðsdóttir og Karl
Aspelund, Aðalstræti 22, ísafirði.
Þóra, fædd á ísafirði 16. des.
1958. Foreldrar: Guðrún Dóra
Hermannsdóttir og Þórir Þórisson,
Mjógötu 3, Isafirði.
Guðmundína Margrét, fædd á
Isafirði 12. nóv. 1958. Foreldrar:
Sigríður ósk óskarsdóttir og Her-
mann V. Sigfússon, Túngötu 13,
Isafirði.
ÖU skírð 29. marz 1959.
Hjúskapur.
Eftirtalin brúðhjón hafa verið
gefin saman í hjónaband af sókn-
arpresti, séra Sigurði Kristjáns-
syni:
Erla Lúðvíksdóttir og Sigurður
Gunnarsson, 21. marz s.l. Heimili
þeirra er á Hlíðarv. 29, Isafirði.
Sigríður ósk óskarsdóttir og
Hermann V. Sigfússon, heimili
Túngata 13, ísafirði, og Helga Þór-
dís Gunnarsdóttir og Jóhann R.
Símonarson, heimili Hlíðarv. 32,
Isafirði. Bæði gefin saman 29.
marz s.l.
Dánarfregnir.
Sigurður Ólafsson frá Bæjum,
andaðist 23. f. m. Hann var fædd-
ur 12. maí ’82 í Tröð í Álftaf. Ár-
ið 1904 kvæntist hann Maríu Ólafs-
dóttur, bjuggu þau lengst af á
Bæjum á Snæfjallaströnd og eign-
uðust 15 börn, eru 12 þeirra á lífi.
Til Isafjarðar fluttust þau 1944.
Sigurður var jarðsettur frá Unaðs-
dalskirkju 2. þ. m.
Sigurður Pétursson, andaðist 26.
f. m. Hann var fæddur 9. ágúst
1890 í Hnífsdal. Eftirlifandi kona
hans er Ólöf Júlíusdóttir.
Eiín Magnúsdóttir, Hnífsdalsv.
3, andaðist 19. f. m. Hún var fædd
Framhaldsdeild, eins og sú, sem
nú er farið fram á að stofnuð
verði, starfið hér við gagnfræða-
skólann með ágætum árangri á ár-
unum 1949—1952, en lagðist þá
niður aðallega vegna þess að laga-
heimild vantaði fyrir starfsemi
hennar. Þessi deild starfaði í sam-
ráði \ið Menntaskólann í Reykja-
vík, og Menntaskólann á Akmeyri
hafði fyrir sitt leyti samþykkt að
veita nemendum úr heimi móttöku
án inntökuprófs.
Frummælendur á fundinum voru
þeir Björgvin Sighvatsson, for-
maður fræðsluráðs Isafjarðar og
Guðjón Kristinsson, skólastjóri.
Auk þeirra tóku til máls: Gústaf
Lárusson, kennari, Jón H. Guð-
mundsson, skólastjóri, Rögnvaldur
Jónsson, kaupmaður og Marías Þ.
Guðmundsson, skrifstofumaður.
Fundurinn samþykkti einróma
eftirfarandi tillögur:
„Almennur borgarafundur hald-
imi á lsafirði 17. marz 1959 leyfir
sér hér með að skora á bæjarstjórn
ísaf jarðar og Alþingismenn Vest-
firðinga að vinna að því við
fræðslumálastjórnina, ríkisstjórn-
ina og Alþingi, að stofnuð verði á
þessu ári framhaldsdeild við gagn-
fræðaskólann hér, og í því skyni
verði lögum um menntaskóla nr.
58/1946 breytt í þá átt, að heimilt
verði að stofna deildina og
menntaskóla á Isafirði, þegar
ástæður leyfa.
„Almennur borgarafundur hald-
inn á lsafirði 17. marz 1959 leyfir
sér hér með að skora á fræðslu-
málastjórnina, ríkisstjórn Islands
27. maí 1884 á Sæbóli í Sléttu-
hreppi.
Bjarni Einar Einarsson frá ög-
umesi andaðist 28. f. m. Hann
var fæddur 4. febrúar 1874 í
Reykjarfirði í Reykjarfjarðar-
hreppi. Bjarni var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans Sesselja, dóttir
séra Þórarins Kristjánssonar í
Vatnsfirði, andaðist eftir fárra ára
hjónaband, seinni kona hans, Hall-
dóra Sæmundsdóttir frá Hörgs-
hlíð, lifir mann sinn. Þau eignuð-
ust 10 börn, sem öll eru á lífi.
Þórunn ólafsdóttir, Mjógötu 5,
andaðist 14. f. m. Hún var fædd
27. marz 1887 á ísafirði.
og Alþingi, að stofnað verði á
þessu ári til framhaldsdeildar við
Gagnfræðaskólann á lsafirði, sem
svari til 1. bekltjar menntaskóla,
og síðar, strax og ástæður leyfa
verði stofnaður menntaskóli á ísa-
firði með réttindum til að veita
stúdentsmenntun og stúdents-
próf.“
1 greinargerð er fylgdi tillögun-
um segir m. a.:
Enn er mikill áhugi hér í bæn-
um og víðar á Vestfjörðum á því,
að slík deild taki til starfa á ný,
enda mikið hagsmuna- og menn-
ingarmál fyrir Vestfirðinga alla.
Láta mun nærri, að milli 20—30
nemendur Ijúki nú landsprófi mið-
skóla á hverju vori hér í Vestfirð-
ingafjórðungi, þ. e. við Gagnfræða-
skólann á Isafirði og héraðsskól-
ann á Núpi. Hér er því grundvöll-
ur fyrir hendi til starfrækslu
slíkrar deildar og stofnunar
menntaskóla. Benda má á þá stað-
reynd, að margir ágætir menn hér
vestra hafa heldur kosið að flytja
búferlum til staða, þar sem
menntaskólar eru starfandi en
senda börn sín frá sér í skóla. Slík-
ur brottflutningur hefur verið til-
finnanleg blóðtaka fyrir Vestfirði.
Og enn aðrir foreldrar hafa ekki
séð sér fært að kosta börn sín í
skóla í öðrum byggðarlögum.
Hugmyndin er sú, að fá hér
fyrst um sinn starfræktar fram-
haldsdeildir við gagnfræðaskólann
á Isafirði, en þegar fjórar
menntaskóladeildir eru þannig
komnar á laggirnar, teljum við
sjálfsagt og eðlilegt, að stofnaður
yrði sérstakur menntaskóli, sem
yrði undir sérstakri stjórn. Eng-
inn vafi mun á því, að slíkur skóli
mundi verða sóttur af nemendum
héðan úr bænum, úr öðrum byggð-
um Vestfirðingafjórðungs og jafn-
vel víðar að.
Vitað er, að áform eru uppi um
að hefja byggingu nýs mennta-
skóla í Reykjavík. Segja má, þeg-
ar rætt er svo mikið sem nú um
jafnvægi í byggð landsins, að það
sé misráðið að byggja einn stór-
an skóla þar, í stað þess að byggja
smærri skóla á fleiri stöðum. Einn-
ig sannar reynslan, að fjölmenn-
ir skólar eru oftast óheppilegri,
uppeldislega séð, en fámennir skól-
ar.
Málverkasýning
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal hafði málverkasýningu í
Skátaheimilinu 25.-—30. f. m. Sýn-
inguna sóttu um 800 manns og
margar myndir seldust.
* # *
10 ár í félagi ....
Framhald af 1. síðu.
ummæli fimmmenninganna um
hlutleysi og hervernd.
Fyrir vopnlausa smáþjóð, eins
og Islendinga, er yfirlýst hlutleysi
eina vörnin. Hervernd og þátttaka
í hemaðarbandalagi bjóða hætt-
unni heim, það er að leiða þjóðina
vitandi vits í opinn dauðann, ef til
ófriðar dregur. Það má vel vera, að
yfirlýst Iilutleysi dugi heldur ekki,
en það er að minnsta kosti það
eina, sem til mála kemur.
íslendingar voru fyrir 10 árum
flæktir inn í Atlanzhafsbandalagið
með ofbeldi og blekkingum, fyrir
tæpum 7 árum vom stjórnarskrá
þeirra og lýðræðisreglur þver-
brotin, til þess að koma inn i land-
ið erlendum her, og nú eru þeir
beittir votnuðu ofbeldi og ránum
af einu voldugasta samstarfsríki
þeirra. Þetta þrennt, auk alls ann-
ars, ætti að vera nægileg ástæða
til þess að segja skilið við þetta
bandalag nýlendukúgara og ræn-
ingja.
Það má og færa fram sem rök í
þessu máli, að viðhorf margra
efnilegra nemenda á Vestfjörðum
til framhaldsnáms mundi ger-
breytast, ef þeir vissu, að þeir
gætu stundað menntaskólanám
hér á staðnum. Á sama hátt
mundu og foreldrar í nærliggjandi
kauptúnum og sveitum fremur
kjósa að senda börn sín stutt en
langt. Slíkt menntasetur yrði
menningarleg lyftistöng fyrir
Vestfirði og yrði til þess að breyta
viðhorfi nemenda almennt til
náms.
Það hefur komið fram í skýrsl-
um, að Vestfirðir gjalda harðlega
einangrunar sinnar, og virðist
ósanngjarnt, að ytri aðstæður,
svo sem það, hvar menn séu bú-
settir á landinu, ráði hverjir hafi
tök á að njóta æðri menntunar.
Skýrslur sýna greinilega, að frá
þeim tveimur kaupstöðum, sem
eru menntaskólasetur, koma að
tiltölu flestir embættismenn þjóð-
arinnar, og byggðarlög í grennd
við fyrrnefnda staði njóta sömu
forréttinda.
Framangreind rök sanna, að
sanngjarnt og sjálfsagt er, að hér
verði komið á fót menntaskóla
fyrir Vestfjarðafjórðung, og eigi
má dragast lengur, að því máli
verði hrundið í framkvæmd.“
Fundarstjóri var Jóhann Gunn-
ar ólafsson, bæjarfógeti og fund-
arritari Guðmundur Ludvigsson,
skrifstofustjóri.