Ingjaldur - 11.12.1932, Blaðsíða 4
4
ING J.A L D U R
Skegtan og Linnet
í 3ja tölubl. Ingjalds 3. júlí þ. á.
auglýsir Linnat ritstjóri skektu
sína til sölu og hefur án heimild-
ar minnar auglýst meðmæli mín
með skektu þessari. Hefði mátt
vænta þess að ritstjörinn hefði
fengið sér upplýsingar hjá bæjar-
íógetanum að Blíkt sem þetta er
bannað, eins og fleira.
Ég skil vel, að ritstjórinn gjörir
lítið úr mör sem formanni, en
því er til að svara ; Við sjómenn
viljum réttlátan dóm, sem stenst
fyrir æðstá rétti.
Ég hefði gaman að bjóða herra
Linnet, ritstjóra út í kappróður á
næstu fjóðhátið, ef við lifum
báðir, ósagt hver sigurinn bæri,
og enn óvíssara hver tæki sig
betur út, ég eða Linnet, ef ég
væri i uníforminum, en Linnet í
skinnstaknum.
Pórarínn i Berjanesi.
Ath.
Hr. Éór. Einarsson hefur látið
lesa það illa fyiir sig sein „Ingjald-
ur* sagði, þar var formensku hans
hrósað og að maklegleikum. Veit
það og allur lýður að hann er
ekki síðri en Ingjaldur til þess að
róa einn, hvort sem er í skinn-
stakki eða skinnfeidi og færist
ritstj undan að þreyta þann róður,
sem er fyrirfram vitað að hann
beri í lægri hlut.
Hitl ðg þetta.
Austurgata
heitir vegur sá, sem áður hét
og enn er víst oftast nefndur
Vilborgarstaðav. Ég var í nefnd
þeirri, sem áttl að gera tillögur
um götuheiti i Vestmaauaeyjum
og vildi láta götuna heita Vil-
borgarveg eða þá gamla heitlð
óbreytt. Ég sting upp á því að
þesau sé kipt i lag og ekki sé
verið að stæla götuheiti íRvik,
Kaupmannahöfn eða öðrum bæj-
um. Er endilega nauðsynlegt að
apa oftir öðrum ekki frumlegri
heiti en þetta ?
ömpustekkir.
Ég veit ekki hvort menn vita
upptök þessa örnefnis. En ég
hefl hugsað mér þau þessi.
Ég hygg að það sé dregið af
nafninu Arnbjörg. Elns og Ingl-
björg varð að Imbu elne hafl
Arnbjörg einhverntíma orðið að
Ömbu. Arnbjörg var í dag-
legu tali kölluð Amba. Eigi ör-
nefnið því að réttu lagi aö vera
Ömbustelckir. Á sama hátt þykir
mér ekki ósennilegt að Vilborg
hafl verlð kölluð Vilba og að
rétta heltiö á Vilpu sé einmitt
Vilba og eigi rót sína að rekja
til Vilborgar, sem Vilborgarstaðir
eru kendir við.
Glettni lifsins.
þegur einn bardaginn var
um kindurnar nefndi ég við
Guðjón á Oddstöðum að þeir
mættu nú bændurnir, virða það
við mig að ég ætlaði að
leggja hlunnindi annara jarða til
þeirra. „Hvað ætli það dugi
þegar við verðum dauðir“ sagði
Guðjón"„hvað ætli við fáum þá“.
,Líkkistu“ sagði ég.
«það er nú líka gott“ sagði
Guðjón.
Bannlögín
í Bandaríkjunum er komin
fram uppástunga um að afnema
bannl. án þjóðaratkvæðis og án
þess að þurfi að breyta stjórnar-
skránni. Skuli það gert með þvi
að lækka fjárveitingur.a tii þess
að halda þeim við niður í einn
dollar.
Mér dettur í hug hvort bann-
menn auri þá ekki saman nokkr-
um miljónum til þess að halda
lífinu í þessu ástfóstri sínu. Við
því mætti búast við af orSum
þeirra. Reyndar láta þeir tilfinn-
ingar s’nar fyrir þeim aðallega í
ljós á þenna ódýra máta. En hver
veit ?
Lögrétta
4.-5. hofti er komin út.
Er þar margsn skemtiiegan fróð-
leik að finna eins og vant er.
T. d. má nefna úr kaflanum
Um víða veröld eftlr Vilhj. þ.
Gíslason: norðurljós og geim-
geisiun, rannsóknir 1 Herculaneum
eignarnám stórjarða á Spáni.
Sami segir frá viðræðum sagnfr.
Ludwig og þeirra einræðismann-
ana Stalrn og Múisolini. ,Skemt:-
log ritgerð um Bóiu-Bjálmar cr
þar eftir þorst. Gíslason og
m. fl. Kaupið Lögréttu.
Kreppan.
það er kominn stór nýr SKetr.ti-
staður f Höfn, þar sem fjöldi
manns getur dansað inni í
fallegu og skemtilegu umhverfí
og fengið sér löglegan bjór eða
„sjúss“ milli þatta. Staður sem
vissulega er þannig, • að sumt
ungt fólk mun hvorki geta hugs-
að sér himnariki ánægjulegra né
óska sér þess. Ég slángraði þang-
að inn í sumar fyrir forvitnis-
sakir þó að það væri nú ekkert
himnariki fyrir mig. Ég furðaðí
mig að eins á einu. Ég furðaði
mig á, að það skyldi vera önn-
ureins kreppa þarna í allri krepp-
unni. Ég fór út eins fljótt og ég
gat troðið mér gegnum mann-
þrönglna. Mér fannst ég vera að
fá „kreppu" sótt. Datt mér þá í
hug vísa, sem annar frómur mað-
ifr orktl undir svipuðum, en þó
ösvipuðum kringumstæðum:
Andskotinn og árar hans
eru í þessu skarði.
Komlst hefur í „krappan dans*
klerkurinn frá Birðl.
Útgef. og ábyrgðarm Kr. Linnet.
Kaupféiag Eyjabúa
............ i i ii ■■ i ■ ■■!!» i ■nmipm i —i■—
hefir ekki ráð á því, að augiýsa allar þær vörur, sem það
hefur á boðstólnum, en vill minna fólk á, að félagið heflr
allar helstu nauðsynjavörur.
Við ábyrgjumst að selja aðeins I. fl. vörur
Verð er þó hvergi lægra.
Vestmanneyingar : Veszlið við KAUPFÉLAG EYJABÚA,
þvi þá hafið þér tryggingu fyrir því, að þér verjið pening-
um yðar á réttan hátt.
senóum alít samstunóis fíaim
'sag- sími 155
Munið
Kaupfélag Eyjabúa
Skiftafundir
verða haldnir á skrifstofu embættisins í þessum þrotabúum:
Kristins Jónssonar, Drangey, þriðjudaginn 13. þ. m. kl. 10,
Sigurðar Bjarnas. o. fl. — Fylkir — miðv.daginn 14. þ- m. ki. 10
Jóns Elnarsson fimtudaginn 15. þ. m. kl. 10.
þorsteins Jóhnssonar föstudaginn 10. þ. m. kl. 10,
þorsteins Jóhnsson & Co. föstudaginn 10. þ. m. kl. 11
Sigurðar Sveinssonar laugardaginn 10. þ. m. kl. 10,
Fei'd. Carlssonar mánudaginn 19. þ. m. kl. 10
Jóhanns P. Jónssonar þriðjudaginn 20. þ. m. kl. 10.
Jóns Jónssonar HKð miðvikudaginn 21. þ. m. kl. 10,
Olafs Ingvarssonar fimtudaginn 22. þ. m. kl. 10
Aliir fyrir hádegi.
Bæjarfógetaskrifstofan í Vestmannaeyjum, 7. des. 1932
Verzlunin
h. f. Björk
Vestmannabraut 48, Simi 112
Nýkomið:
Dömusokkar, margar teg.
Barnasokkar, margar teg,
Alpahúfur.
Kvennfatnaður, einnig barna.
Appelsínur og ávextir
í dósum
Einnig allar nauðsynjavörur.
Hreiniætisvörur
Allt selt með lægsta verði.
Soffta þórðard.
Eyjaprentem. h.f.
Kr. Linnet
þeir
sem hafa not;ið Akrasmjör-
líkið í rauðu umbúðunum
segja, að það taki Cllu öðru
smjörlíki fram að bragði og gæð-
um.
feir sem ekki hafa notað Akra
ættu sjálfs síns vegna að reyna
gæði þess.
Fæst hjá:
K. f, Bjarma
K. f, Verkamanna
K, f. Alþýdu
Verzl. Gudl. Loftsson.