Ný dagsbrún - 01.07.1973, Page 2
2
NY DAGSBR0N
JttLÍ 1973
NÝ DAGSBRÚN
Utgefandi: Sósíalistafélag Reykjavíkur
Ábyrgðarmaður: Runólfur Björnsson.
Ilitstjóm og afgreiösla: Tryggvagötu 10 - Geykjavik
Simi 17510 ■ Pósthólf 314
VcrÖ blaðsins er kr. 20.00 eintakið
Setning: Prentiðjan Skipholti 9
Prentun: Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
m m m m •* m m # » n
Iferðbólgan og
lcaupg/afcflð
Allar ríkisstjórnir síðustu áratuga hafa auglýst
það sem fyrsta og helzta verkefni sitt að vinna gegn
verðbólgu og dýrtíð. Allar stjórnarráðstafanir gegn
verðbólgunni hafa fyrst og fremst beinst að því að
koma í veg fyrir kauphækkanir og sér í lagi gegn
verðlagsuppbótum á kaup. ,,Viðreisnar“-stjórnin af-
nam þær og núverandi stjórn einnig um skeið. Báð'
ar settu verðstöðvunarlög, sem í reynd náðu ekki að
nokkru ráði til annars en kaupgjalds og landbúnað-
arvöruverðs. Röksemdirnar fyrir þessum ráðstöfun-
um voru þær, að frumorsök verðbólgunnar væri
„kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags“. Að þetta
er falskenning sannar sú staðreynd að verðbólgan
óx jafnt og þétt þrátt fyrir „verðstöðvanir“ stjórn-
arvalda. Öllum sem fylgjast með þróun þessara mála
er einnig ljóst að kauphækkanir hafa aðeins komið
í kjölfar verðhækkana en ekki farið fram úr þeim.
Og þrátt fyrir hinar slitróttu verðlagsuppbætur hef-
ur kaup oft og einatt dregist langt aftur úr verðlag-
inu.
Orsakir verðbólgunnar eru því hvorki einfaldlega
„kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags", né heldur
einangrað íslenzkt fyrirbæri. Verðbólgan gengur yf-
ir allan auðvaldsheiminn, enda er frumorsakir henn-
ar að finna í sjálfum framleiðsluháttum auðvalds-
skipulagsins og fylgir því eins og skugginn.
Tímabundin og staðbundin verðbólgutímabil
þekktust á frumstigi auðvaldsframleiðsluháttanna,
en með tilkomu einokunar og hringavalds hefur
verðbólguástand orðið varanlegt.
Meginorsök verðbólgunnar er hamslaus sókn stór-
auðvaldsins eftir hámarksgróða. Einokunaraðstaða
þess veitir því möguleika til þess að halda verðinu
uppi jafnvel á tímum kreppu og sölutregðu, sem ætíð
koma annað veifið. Afleiðingin er meiri gróði, meiri
upphleðsla auðmagns og samdráttur þess á færri
hendur.
Frá gróðasjónarmiði auðvaldsins séð má kaup-
gjaldið fyrir engan mun hækka í hlutfalli við verð-
lagið, því að það skerðir gróðann. Hér er því komið
að því skeri sem auðvaldsframleiðsluhættirnir að
lokum stranda á, mótsetningunni milli einkaeignar
á framleiðslutækjunum og afurðunum annars vegar
og félagslegs eðlis vinnunnar hins vegar. Sú mótsetn-
ing verður sífellt dýpri og verður ekki leyst nema
með sósíaliskum framleiðsluháttum.
Hlutverk auðvaldsríkisins er að halda arðráns-
kerfinu gangandi. Það er því eitt frumatriðið í
stjórnlist allra borgaralegra ríkisstjórna, að halda
kaupi verkamanna niðri. Þess vegna hafa allar ís-
lenzkar ríkisstjórnir streitzt við að svipta verkalýð-
inn þeirri takmörkuðu tryggingu gegn sífelldri kaup-
lækkun sem felst í verðlagsuppbótum. Núverandi
stjórn hefur sýnt fullan vilja til þess, þó að henni
tækist ekki að afnema vísitölugreiðslurnar í vetur
sökum innbyrðis torstreitu stjórnarflokkanna. Nú
er stjórnin að láta vinna að endurskoðun vísitölu-
kerfisins, þ. e. „hagræðingu“ þess með það fyrir aug-
um að verðlagsuppbætur verði sem minnstar. Mun
einn helzti hagfræðingur Alþýðubandalagsins vinna
að þessu á vegum viðskiptaráðherra.
Verkamenn verða því að fylkja liði og berjast gegn
sífellri kjaraskerðingu af völdum verðbólgunnar
eins og þeir hafa alltaf þurft að gera. Þeir geta að
engu leyti treyst á loforð ríkisstjórnarinnar um að
vinna gegn verðbólgu og auka kaupmátt launa. Það
Innfæddir verkamenn í
Suður-Afríku eru réttlausir
Tveir þriðju hlutar verka-
mannastéttarinnar í Suður-Af-
ríku eru innfæddir menn (svert-
ingjar). Aðskilnaðarstefna stjórn-
arinnar veldur því að þeir hafa
enga löglega möguleika til þess
að fá kröfum sínum um kaup og
kjör framgengt. Verkföll af
þeirra hálfu varða við lög. Mikill
meirihluti stéttarinnar er þannig
utan við verkalýðssamtökin og
veldur það vaxandi áhrifaleysi
þeirra. Af þeim ástæðum hefur
mikill meirihluti félagsbundinna
verkamanna, hvítir sem litaðir,
farið þess á leit við stjórnina að
innfæddum verkamönnum sé
leyft að vera í verkalýðsfélögum.
Ekkert félagsfrelsi.
Lög þau sem nú gilda í Suður-
Afríku viðurkenna ekki innfædda
menn sem eiginlega verkamenn,
þeir eru ekki „ráðnir". Félög
þeirra hafa því ekki lagalega
viðurkenningu og geta ekki gert
gilda samninga fyrir félaga sína.
Afríkumenn geta tekið þátt í
vinnustaðanefndum og fjallað
um minniháttar mál. Slíkar
nefndir eru þó ekki algengar.
Þær eru alls 135 í yfir 200.000
skrásettum verksmiðjum í Suð-
ur-Afríku.
Enginn verkfallsréttur.
Káup og önnur kjör ákveður
verkamálaráðherrann að fengnu
áliti svonefnds launamálaráðs,
en í því sitja eingöngu hvítir
menn, sem ráðherra tilnefnir
sjálfur. í nokkrum tilvikum eru
samningar einnig látnir gilda
fyrir svarta verkamenn, en þeir
taka aldrei þátt í samningum og
hafa engin áhrif á þá.
Til eru félög svartra verka-
manna, en forustumenn þeirra
hafa enga lagavernd og eru
venjulega fangelsaðir óðara en
félagið sýnir minnstu viðleitni til
aðgerða.
Fangelsanir og
skothríð.
Pó að innfæddum verkamönn-
um sé bannað að heyja verkföll,
gera þeir það samt og hafa verk-
föll þeirra orðið tíðari hin síðari
ár.
1 júní 1972 gerðu meir en 300
bílstjórar í Jóhannesarborg verk-
fall. Þrátt fyrir fjöldahandtökur
tókst þeim að hækka kaup sitt.
Fangarnir voru látnir lausir eftir
miklar mótmælagöngur.
Hafnarverkamenn í Durban
lögðu niður vinnu í október í
fyrra. 1 febrúar síðastliðnum
hófu 30.000 iðnverkamenn verk-
fall. Borgarstarfsmenn fóru að
dæmi þeirra. Eftir hörð átök,
kröfugöngur og fangelsanir voru
launin hækkuð um 15 prósent.
I í Nambíu háðu 13000 verka-
menn verkfall gegn þeirri ill-
ræmdu vinnutilhögun sem við-
gengst í landinu, að þvæla verka-
mönnunum stað úr stað langt frá
heimilum þeirra. Lögreglan
skaut á verkfallsmenn og margir
féllu. Enn fleiri voru dæmdir til
langrar fangelsisvistar. Aðeins
minniháttar lagfæringar fengust
fram með verkfallinu, svo sem
Innfæddir menn í Suður-Afríku
eru réttindalausir. Þeir hafa ekki
leyfi til þess að mynda verka-
lýðsfélög og þeir eru dæmdir
sem glæpamenn ef þeir gera
verkfall. Aðskilnaðurinn (apart-
heit) þvingar þá til þess að
vinna í námum og verksmiðjum
hvítra manna í mikilli fjarlægð
frá heimilum sínum.
það að samningsrof er ekki leng-
ur talið hegningarlagabrot. En í
heild er vinnutilhögunin óbreytt
með öllu því ófremdarástandi
sem leiðir af henni. Tugþúsundir
innfæddra verkamanna eru
dæmdir til að vera fjarri heim-
ilum sínum mánuðum saman og
búa í lélegustu skálum á búgörð-
um og í verksmiðjum hvítra
mánna.
(Eftir skýrslum Alþjóða-
vinnumálaskrifstofunnar).
Varið ykkur á sólinni
Margar staðreyndir benda til i
þess, að sólblettir geti haft í för
með sér meiriháttar skaða á
heilsufari manna, ekki síður en
hollu áhrifin, sem frá sólinni
stafa. Þetta kemur fram í bók,
sem Nauka útgáfufyrirtækið
sendi frá sér ekki alls fyrir
löngu.
í bókinni, sem ber nafnið „Sól-
in, andrúmsloftið og heilsufar
fólks" eru samankomnar rann-
sóknir, sem gerðar hafa verið á
heilsuspillandi áhrifum sólar á
fólk, sem þjáist af sérstökum
króniskum sjúkdómum.
Fyrsta kerfisbundna rannsókn-
in, sem gerð var á þeim mögu-
leika, að eitthvert samband væri
milli verkunar sólar og dauðs-
falla af hjartaæðasjúkdómum,
var gerð af Klöru Novikovu í
Sverdlofsk. Þar sem hún var yfir
heilsugæzlu borgarinnar var hún
í einstakri aðstöðu til að gera at-
huganir á sambandi sólarinnar
og heilsufars milljóna manna. I
' I samvinnu við Nínu Tokarevu
frá læknisstofnun Sverdlofsk-
borgar, rannsakaði hún öll dauðs
föll af völdum hjartaæðasjúk-
dóma á 26 ára tímabili.
Skýrslurnar sýndu bratta línu-
ritstinda við bakgrunn eðlilegrar
dauðsfallalínu.
í fyrstu virtist engin ástæða
fyrir þessuni „farsóttatímabil-
um", en á ráðstefnu, sem haldin
var í júlí árið 1965, réð stjarn-
eðlisfræðingurinn Gnevjshef, til
að rannsaka jafnhliða skýrslur
um sólbletti.
Skýrslur frá árunum 1960—
1968, sýndu að dauðsföllum af
völdum hjartaæðasjúkdóma
fjölgaði mjög ört í hvert skipti
sem segulstormar geisuðu á jörð-
inni.
Vitað er að þessir stormar
stafa af auknu geislaútstreymi
frá sólu.
Tilraunir með ferskt blóð
sýndu að í sumum tilfellum
Iminnkaði hæfni til að leysa upp
blóðsiga, en í öðrum tilvikum
hvarf blóðsigamyndun með öllu.
Tilraunirnar voru endurtekn-
ar hvað eftir annað ti lað útiloka
möguleikann á því að aðrar or-
sakir lægju að baki, en það virð-
ist algerlega öruggt að sólblett-
um sé um að kenna.
Rannsóknir, sem gerðar hafa
verið af öðrum aðilum í Lenin-
grad, Vilnius og Ashkhabad, leiða
til sömu niðurstöðu.
Nýlega gerðu vísindamenn við
stjarneðlisfræðistofnunina í Kíef
hliðstæða rannsókn. Til hennar
var gerður sérstkaur lágtíðniraf-
all, sem getur líkt eftir segul-
stormi.
Hundar, kanínur og mýs voru
settar innfyrir áhrifasvæði hans
og annar rannsóknarhópur hafð-
ur utan við.
Rannsóknin leiddi í Ijós að
samskonar líffræðilegar breyting
ar áttu sér stað í dýrunum og
mörgu fólki meðan segulstorm-
ar geisa.
Samt sem áður hefur ekki enn
verið hægt að ákvarða hver hin
raunverulega orsök líkamsbreyt-
inganna er.
Vísindamenn segja að ef til
vill sé orsakanna að leita í því
að breytilegt segulsvið orsaki
truflanir á vökvastreymi til frum
anna. Eða þá að segulstormar
geti stórlega truflað taugaboðin.
Þessi atriði verka einkum
sterkt á fólk, sem er veikt fyrir,
þunglynt eða einfaldlega of
þreytt.
(Samkvæmt APN).
hefur sýnt sig að þau loforð voru fals eitt, eins og
vænta mátti.
Hvar er nú 20% kaupmáttaraukningin á tveim
árum, sem stjórnin lofaði? Jaxnvel forseti Alþýðu-
sambandsins hefur viðurkennt að það loforð hafi
ekki verið efnt. Enginn leikur með tölur, eins og
stjórnarblöðin iðka, færir verkalýðnum kjarabætur,
heldur barátta hans sjálfs.
R. B.