Ný dagsbrún - 10.11.1977, Qupperneq 2
2
NÝ DAGSBRÚN
Nóvember 1977
j NÝ DAGSBRÚN 1
t Otgefandi Sósíalistafélag Rcykjavíkur f
I ÁbyrgÖarmaÖur Runólfur Bjömsson f
) Ritstjóm og afgreiðsla Tryggvagötu 10 Reykjavík (
) Sími 17510 - Pósthólf 314 j
f Verð blaðsins er kr. 50,00 eintakið ^
( Setning: Prentiðjan, Skipholti 9 J
Byltingar-
afmælið
Sextíu ár eru nú liðin síðan rússneskir verka-
menn og bændur steyptu af stóli einveldi aðals
og auðvalds í landi sínu undir forustu Kommún-
istaflokksins og hófu þegar á fyrstu valdadögum
að leggja grunninn að sósíalistisku þjóðfélagi með
þjóðnýtingu alls lands, banka og stórfyrirtækja.
Rússneska byltingin og stofnun Sovétríkjanna
er án alls efa afdrifaríkasti stjórmálaviðburð-
ur tuttugustu aldarinnar. Pyrir verkalýðshreyf-
ingu alls heims hefur hún hliðstæða þýðingu og
franska byltingin fyrir borgarabyltinganna á 18.
og 19. öld og stofnun þjóðríkja.
Enginn getur sagt með neinni nákvæmni
hvernig heimurinn liti út í dag ef bylting öreig-
anna í Rússlandi hefði mistekist eins og fyrri ör-
eigabyltingar. En eitt er víst, auðvald og imperial-
ismi hefði mun sterkari tök í heiminum en nú
er og verkalýður og alþýða að sama skapi veikari.
Þetta er mjög hófleg fullyrðing, því vel má vera
að verkalýður og alþýða hefði hvergi náð völdum
á þessu 60 ára tímabili. Svo þýðingarmikil var
reynsla rússnesku byltingarinnar, einkum sú
reynsla sem sannaði að sá hlekkur heimsauðvalds-
ins brestur, sem veikastur er, þar sem alþjóð-
legar, þjóðlegar, félagslegar og pólitískar mót-
hverfur rekast á og skerpast við sértsakar að-
ur.
Svo mikil. sem áhrif byltingarinnar hafa verið á
verkalýðshreyfinguna í heiminum á liðnum 60 ár-
um hafa þau þó síst verið minni á frelsisbarattu
undirokaðra þjóða. Alls staðar er sjálfstæðisbar-
átta þjóða borin uppi af alþýðu, verkamönnum
og bændum og hvergi hefur hún orðið sigursæl
nema undir merkjum sósíalismans. Völd borgara-
stéttanna þýða leppstjórnir heimsvaldasinna.
Sovétríkin hafa síður en svo setið á friðstóli
í 60 ára sögu sinni. Innrásarstyrjöldin, harðvít-
ug innanlandsátök og heimsstyrjöldin síðari
hafa hamlað mjög uppbyggingu hins nýja þjóðfé-
lags og ef til vill mótað það meir en æskilegt hefði
verið. Árásarhættan sem alltaf vofir yfir veldur
því að Sovétríkin kappkosta að tryggja sig hern-
aðarlega og verja til þess miklu fé og mannafla.
En friðarstefna Sovétríkjanna frá upphafi er
staðreynd, sem aðeins öskurapar auðvaldsins og
aðrir, sem telja sig hafa ástæðu til að troða ill-
sakir við Sovétríkin, neita. Allur heimur nema
ef til vill að undanteknum fámennum hópi stríðs-
þyrstra heimsvaldasinna, óttast kjarnorkustríð.
Sovétríkin eru kjarnorkuveldi, en stjórn þeirra
hefur nú á 60 ára afmælinu gert sitt til að létta
fargi óttans af mannkyninu með tillögu sinni um
algert bann við framleiðslu kjarnorkuvopna og
eyðingu birgðanna sem fyrir eru, í áföngum. Allt
mannkyn myndi fagna þessari tillögu — ef hún
kæmi frá öðrum en Sovétstjórninni.
íslenskur verkalýður á rússnesku byltingunni
mikið að þakka. Það var að ekki litlu leyti hún
sem blés þeim í brjóst baráttuvilja og framtíðar-
sýn þegar harðast kreppti að og enn eimir
eftir af þeim anda þrátt fyrir áratuga niðurrifs-
starfssemi. Og íslenska borgararíkið og þjóðin
60 ára þróun..
Samsetning þjóðfélagsins
er nú þessi: Af hverjum
10 íbúum eru 6 verka-
menn, 3 vinna andleg
störf og 1 er bóndi. Hlut-
fallsleg orkunotkun á
hvem verkamann í land-
búnaði hefur 36 faldast
frá því fyrir byltinguna
og hefur það leitt til
fækkunar starfsliðs við
hinn vélvædda landbún-
að. Auknar fjárfestingar í
landbúnaði hafa orðið til
þess að brúa bilið milli
borgar og sveitar.
Ein ástæðan fyrir öfl-
ugri þróun landsins er stöð
ugar framfarir á sviði
bættra lífskjara, mennt-
unar og menningar. Raun-
tekjur verkamanna hafa
nálega tífaldast á sl. 60 ár
um og rauntekjur bænda
meira en 14 faldast. I Rúss
landi fyrir byltinguna
voru þrír fjórðu íbúanna
ólæsir og innan við 200
þúsund mamnns höfðu
hlotið æðri menntun.
Krafa tímans er nú fram-
haldsmenntun fyrir full-
orðna sem mun verða
skapandi starfsemi þjóð-
arinnar öflug hvatning.
Frekari þjóðfélagsþróun
á enn meiri möguíeika í
sambandi við vaxandi
sjálfstýringu, sem gert er
ráð fyrir í nýju stjómar-
skránni.
Aukning pólitískra og
þjóðfélagslegra réttinda
borgaranna felst í því að
draga eins margt fólk og
unnt er inn í stjórnun
ríkisins og málefna al-
mennings. Virk og áhuga-
söm afstaða borgaranna
til umfjöllunar um sérstök
mál er varða líf þeirra,
mun hjálpa til að virkja
orku og skapandi leit
milljónanna. Framkvæmd
réttarins til þess að hver
og einn kjósi sér starf ein-
ungis í samræmi við hæfi-
leika sína og þjálfun,
eins og kveðið er á um í
nýju stjórnarskránni, mun
auka mjög framleiðni og
afköst í starfi
Fjöldi ráðstefna sem
rekja má til aukins lýð-
ræðis og þroskaðs sósíal-
isma mun bæta andlegt og
sálfræðilegt andrúmsloft
á vinnustöðum, í stjórn-
málum og opinberu lífi.
Hin mikla umhyggja
þjóðfélagsins fyrir mann-
inum, sem lýsir sér í réttti
til húnæðis, heilsugæslu, í
auknum réttindum og
möguleikum borgara til
þess að taka þátt í stjóm-
un ríkisins, o.m.fl., auka
þjóðfélagslegan trúnað
þjóðarinnar og skapa á-
byrgðartilfinningu fyrir
þörfum þjóðfélagsins.
Við höldum því alls ekki
fram, að á 60 árum hafi
okkur tekist að uppala fyr-
irmyndar manninn. I þjóð
félagi okkar finnast dæmi
um græðgi, skriffinnsku,
fimbulfamb og aðrar leifar
liðins tíma. En æ fleira
fólk lifir í samræmi við
siðferðislögmál sósíalísks
þjóðfélags, þar sem um-
hyggja fyrir hagsmunum
einstaklingsins og um-
hyggja einstaklingsins
fyrir hagsmunum heildar-
innar eru ríkjandi.
Byltingarfórnir þeirrar
kynslóðar, sem kollvarpaði
gamla skipulaginu, hafa
gefið eftirkomandi kyn-
slóðum jákvæðan styrk.
Þegar ekki bara einstakl-
ingar heldur þúsundir og
aftur þúsundir manna
snúa sér að erfiðari verk-
efnum og störfum á þeim
sviðum, sem dregist hafa
aftur úr, eða halda til
vinnu við byggingafram-
kvæmdir í austur héruð-
um landsins eða lengst á
norðurslóðum, þá þýðir
það, að þeir líta á hags-
muni þjóðfélagsins sem
sína eigin hagsmuni.
Þetta sýnir einnig styi'k
hins sósíalíska samfélags,
sem ekki hyggur á ró-
legri sé hæggengari lífs-
háttu heldur stefnir, líkt
og fyrir 60 árum, að bylt-
ingarkenndum breyting-
um á öllum sviðum hins
efnahagslega-, félagslega-,
pólitíska og menningar-
lega lífs. Þetta er hinn
sigursæli máttur þroskaðs
sósíalisma, sem sækir fram
til sigurs í krafti eigin for
dæmis.
*
Símaskráin 1978
Símnotendur í Reykjavík, Seltjarnarnesi,
Kópavogi, Garða- og Bessastaðahreppi
og Hafnarfirði.
Vegna útgáfu nýrrar símaskrár er nauðsynlegí
að senda skriflegar breytingar, ef einhverjar eru,
fyrir 15. nóv. n.k. til Skrifstofu símaskrárinnar,
Landsímahúsinu við Austurvöll.
Nauðsynlegt er að viðkomandi rétthafi símanúmers
tilkynni skriflega um breytingar, ef einhverjar eru.
Athugið að skrifa greinilega.
Athygli skal nánar vakin á auglýsingu um breyting-
ar í símaskrána á baksíðu kápu símaskrár 1977,
innanverðri.
Atvinnnu- og viðskiptaskráin verður prentuð í gul-
um lit og geta símnotendur birt smáauglýsingar þar,
sem eru ódýrari en auglýsingar í nafnaskrá, enda
takmarkaður fjöldi auglýsinga, sem hægt er að birta
í nafnaskránni.
Nánari upplýsingar í símum 22356 og 26000 og á
skrifstofu símaskrárinnar.
Ritstjóri símaskrárvmwr.
framleiðslusamvinnu-
félag iðnaðarmanna
Símar: 28-022 og 21-700
í heild þarf ekki yfir neinu að kvarta í samskipt-
um við Sovétríkin í 60 ár. Þau hafa ekki látið Is-
land gjalda þess á neinn hátt að það hefur skipað
sér í fjanndmannaflokk þeirra.
Áskrifendur Nýrrar
Dagsbrúnar eru beðnir
að tilkynna breytt
heimilisföng.
R.B.
Pósthólf 314