Stormur - 30.05.1934, Qupperneq 4
4
S TORMUR
blikandi, skæra stjarna á himni vona okkar — næst
á eftir Jónasi Jónssyni. — Nú er þessi vonarstjarna
hröpuð af himni niður, svo við eygjum hana ekki
lengur. Hamingjan má vita, hvort hún nokkru sinni
: fær risið á loft upp aftur. (Auðk. hér).
Eftir þessu að dæma, hefir Jónas verið Stóri vagninn
en Tryggvi Litli vagninn á Framsóknarhimninum. En síst
er að furða, þótt vesalings 'framsókn'arbændurnir færi villir
vegar, þegar slíkir hrævareldar og mýr.aljós urðu í augum
þeirra að lýsandi stjömum á festingu himinsins.
Greinarhöfundur þakkar síðan Tryggva íyrir ljósið,
sem hann gaf þeim á meðan hann var Litli vagninn, en
segir svo:
ó „En nú skiftast leiðir. — Þótt nafn Tr. Þ. hafi
látið vel í eyrum okkar bænda áður fyr, þá má eng-
ihh láta það villa sér sýn, eins og nú er komið. Nú
eV það ekki lengur hinn gamli, góði Tryggvi, sem
talar til lýðsins, heldur hin hrapandi st jarna — hinn
. ffillni engill. (Auðk. hér).
|Er nu lýsingin á bændavininum Tryggva Þórhaltssyni
heldur farin að kárna, því að hér er honum blátt áfram líkt
við sjálfan djöfulinn, en um leið er Jónas gerður að ímynd
guðs almáttugs. — Mun sumum sýnast svo, að hér kenni
nokkurra öfga og telja, að ekki muni skemmra á milli guðs
og Jónasar en djöfulsins og Tryggva.
Síðan heldur greinarhöfundur áfram og segir:
„Mættum við bændur hafa ráð á einni ósk handa
Tr. Þ., þá myndum við samt, þrátt fyrir alt, óska
þess að hann nú þegar yfirgæfi þá stefnu, er hann
illu heilli hefir upp tekið, og að hann gengi heill og
* óakiftur inn í Framsóknarflokkinn, þar sem hann
. áður var. Myndi eigi standa á framréttum höndum
e fyiverandi vina og flokksbræðrá, hvenær sem ein-
> lægni er sýnd og full samúð.
Er það meiri sæmd góðum drengjum að kann-
ast við eigin yfirsjónir, og bæta fyrir þær, heldur
en sífelt berja höfðinu við steininn og hljóta meiðsli
af á meðal almenningsálitsins.
Þetta vil eg að Tr. Þ. athugi.
Ef Tr. Þ. vildi af einlægum hug sveigja aftur
inn á íornar slóðir, myndi eigi verða minst þess,
er á milli hefir borið um stund, en fagnaður okkar
framsóknarbænda og annara gamalla samherja,
verða að sínu leyti eins og góðu englanna, sem
gieðjast yfir einum syndugum, sem bætir ráð sitt.“
Þeim, sem þennan útdrátt hefir gert, þykir það ekki
ósennileg-t, að von bóndans, sem grein þessa hefir skrifað,
eigi eftir að rætast. — Að bæði hann og aðrir eigi eftir að
sjá þá mikilfenglegu og dýrðlegu sýn, er Tryggvi Þórhalls-
son lyftist úr undirdjúpunum og verður aftur Litli vagninn
-- hin síblikandi stjarna — næst á eftir Hriflu Jónasi.
Trygglð hjá
(slenzki fáiagi
Kaupið og lesið
STORM.
Wickströms
Hótorspil, ■ótor-RaflIðsavjelar,
Báta & Landmátorar,
mörgum stærðum. Afbragðsvélar með góðu verðf.
og þægilegum greiðsluskilmálum.
Margar vélar eru nú þegar seldar til íslands.
Allar upplýsingar gefa neðantaldir umboðsmenn.
BBTNJA, Versl. Reykjavík.
Bræðraborg, verslun, Akranesi.
Kaupfélag önfirðinga, Flateyri.
Vöruhús Vestmannaeyia, Vestmannaevium.
G argoyle JMobiloil er jafn göm bifreidinni — og jafn ung sídusti ul fyrsttí i gerdinn*
G arg’oy Mobil H. BENEDIKTSSON le oil1 & COJ