Stormur - 28.07.1942, Page 3
S T 0 R M U R
UNDRALÖND
Hann hefir samið stefnuskrá í fimm liðum, sem fjallar
um þessi fimm atriði: Aukinn heimilisiðnaður (spuni),-
hvernig bæta eigi kjör þeirra, er búa í smáþorpum.Ög verk
leg kensla í skólum, meiri þrifnaður, jafnrétti fyrir hina út-
skúfuðu, og umfram allt aukinn iðnaður. Hann beitir sér af
alefli fyrir bættri áburðarnýtingu og hagnýtingu á afurðum
nautpeningsins. Að vísu mundi þess enginn kostur að fá
Hindúa til þess -að slátra belju, því að kýr eru heilagar í
Indlandi, en Gandhi reynir að fá þorpsbúa til þess að hag-
nýta sér kjötið af þeim kúm sem deyja eðlilegum dauðdaga,
en til þess eru þeir afar tregir.
Gandhi þarf lítið á peningum að halda, því að honum er
gefið alt, sem hann þarf til heimilis síns. Auðugir vinir hans
sjá fyrir þessu. Fésýslumaður er hann enginn, og hefir hin-
um yngri jafnaðarmönnum í Kongressflokknum gramist það
mjög að hann skuli virða allar hagfræðikenningar vettugi.
Hann sagði eitt sinn við einn vin sinn, sem var jafnaðarmað-
ur, að hann væri bæði fylgjandi eignarrétti einstaklinganna
og þjóðnýtingu. „Eg kaupi t. d. verksmiðju“, sagði hann, og
launa starfsfólkinu vel, það er sósíalismi“.
Bréf hans eru mjög stuttorð og sérkennileg. Eftirfar-
andi samúðarskeyti sendi hann vini sínum Pandit Jawa-
hariae Nehrum, er hann missti móður sína:
„Móðir lifði göfugmannlega, dó fagurlega. Móðir.
Engin sorg. Látið konur vorar fara að dæmi hennar.
Kær kveðja. Bapu“.
Vinir hans og nánustu samverkamenn kalla-hann Bapu,
sem þýðir faðir. Er hann var yngri var hann nefndur Bhai
= bróðir. Fremur eru það fáir í Indlandi, sem nefna hann
„Matatma“, enda er honum lítið gefið um það nafn. Venju-
legast er hann nefndur „Gandhiji“ „ji“, er viðbótarending,
sem ekki er hægt að þýða, en merkir nánast „herra“, en
jafnframt felst í henni tilbeiðsla eða lotning. Stundum er
hann nefndur „Bapaji“, eða „Mahatmaji“. Er ég kom til
Indlands og talaði'við þjóðernissinnana furðaði ég mig á því
hve oft „foringinn" var nefndur, en það var Gandhi.
Hann er heilsuhraustur en of hár blóðþrýstingur amar
hann þó öðru hvoru. I útliti er hann líkastur, því, sem hann
.væri gerður úr gúmmí, en annars er hann ekki neitt svipað
því eins hrörlegur og ljósmyndir af honum gefa í skyn. Hann
samsvarar sér vel og hefir stælta vöðva. Einka læknir hans,
dr. Roy, sem er einn af bestu læknum Indverja, sagði mér að
hann væri „óvenjulega heilsugóður“. En hann viðurkendi
þó, að honum gæti dottið í hug, að gera ýmislegt, er engum
sem er eins og fólk er flest, gæti látið sér til hugar koma.
Fösturnar hafa veitt honum mikið vald yfir líkama sín-
um. — Eitt sinn vóg hann aðeins níutíu og sjö pund og
neytti þó fjögur hundruð hitaeininga á dag. Dr. Roy sagði
honum, að hann yrði að þyngjast um sjö pund og til þess
þyrfti hann að neyta tvöfalt fleiri hitaeininga. Gandhi hlust-
aði rólegur á þetta en neitaði að breyta til um mataræði. —
Hann fullyrti að hann gæti bætt við sig þessum sjö pundum
á einni viku, án þess að bæta við sig hitaeiningu, og það gerði
hann.
Hann segir: „Eg fer inn og sef í 25 mínútur“. Hann sofn-
ar samstundis og sefur þennan tiltekna tíma, hvorki meira
eða minna. Eitt sinn svaf hann í bifreið er hann var að koma
heim frá jarðarför. Vagninn valt um og Gandhi kastaðist út
úr honum. Vinir hans þustu óttaslegnir til hans, en sáu þá,
að hann var sofnaður aftur.
Hann á Roy og öðrum læknum mikið að þakka, en hann
3
ASÍU
er mjög mótfallinn öllum meðölum og læknavísindum vorra
tíma — Eitt sinn hélt hann því fram í fúlustu alvöru að
læknavísindiin ykju meira kynsjúkdóma en lækningunum
næmi. Eitt sinn stundaði hann hjúkrun og sjálfur hefpr
hann fundið upp meðal eða ráð við harðlífi, en lækningin
er sú, að leggja feit mold við kviðinn.
Gandhi er ekki svipað því eins alvörugefinn og hátíð-
legur, sem almennt er haldið. Honum fellur vel hlátur og
það dillar eða hlakkar í honum, þegar talað er við hann. —
Hann hefir sagt einum vini sínum, að hann mundi hafa
framið sjálfsmorð fyrir löngu, ef kímni hans hefði ekki aftr-
að honum frá því.
Hann elskar konu sína heitt. Hún er lítil, feitlagin og
glaðleg kona og andlitið minnir á andlit á postu-
línsbrúðu. Þau eru tengd mjög traustum böndum, en hún
er hlédræg og lætur hann ráða. Hann talar mjög opinskátt
um hinn mikla gáfna og menningarmun þeirra og segist vita,
að henni sé mjög um geð margt sem hann aðhefst. „Hún hefir
einn dásamlegan eiginleika. . . . Og hann er sá, að hún vit-
andi eða óafvitandi, viljandi eða gegn vilja sínum, hefir æ
talið það náðargjöf, að fá leyfi til þess að feta í fótspor mín.
Hún hefir aldrei reynt að draga úr þeirri viðleitni minni að
lifa hófsamlega". Hann hefir ennfremur komist svo að orði
um hana. „Eg get hvorki lýst tilfinningum mínum gagnvart
Hindúatrúnni eða konu minni. Hún vekur tilfinningar hjá
mér sem engin önnur kona í veröldinni myndi geta vakið.
Því er ekki þannig varið, að ég telji að hún hafi enga galla,
og ég er meira að segja viss um, að hún hefir marga fleiri
en ég hefi tekið eftir. En ég finn að þau bónd sem tengja
okkur saman verða aldrei slitin“.
Gandhi á fjóra sonu og margt barna-barna. í ævisögu
sinni ávítar hann sjálfan sig mjög fyrir að hafa ekki veitt
þeim betra uppeldi en hann gerði.
Einn sona hans hefir valdið honum mikilla vonbrigða,
tveir eru frægir blaðamenn, en sá fjórði kvæntist dóttur
Rajagopala Charia, forsætisráðherrans í Madvas., sem er
Brahmatrúar.
TILKYNNING
Hin hollu og bætiefnaríku brauð úr heilmöluðu hveiti
eru ávallt til í brauðsölum mínum, fyrir utan allar
þær brauðategundir, sem ég áður hefi bakað, og
hafa farið sigurför um borgina.
FÁST Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Blómvallagötu 10 — Bræðraborgarstíg 16
Bræðraborgarstíg 29 (Jafet). — Vesturgötu 27
Reykjavíkurvegi 19 (J. Bergmann)
Laugarnesvegi 50 (Kirkjubergi) — Njálsgötu 40.
Jón Símonarson
Bræðraborgarstíg 16. — Sími 2273.