Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1933, Blaðsíða 12
12
Lög Læknafélags íslands.
1. gr. Félagið heitir Læknafélag íslands.
2. gr. Tilgangur félagsins er að efla hag og sóma islenzkrar
læknastéttar, samvinnu meðal lækna i heilbrigðismálum þjóð-
arinnar og glæða áhuga lækna fyrir öllu, er að starfi þeirra lýtur.
3. gr. Allir islenzkir læknar, sem tekið hafa fullkomið lækna-
próf, eiga kost á að gerasl félagar, hvort sem þeir eru búsettir
hér á landi eða erlendis, með þeim takmörkunum, sem taldar
eru í 6. og 11. gr. Þó hafa Iæknar, sem búsettir eru erlendis,
að eins tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt.
4. gr. í stjórn félagsins eru 3 læknar, sem búsettir eru í
Reykjavík, eða nágrenni bæjarins. Þó skal kosinn einn varamað-
ur, og tekur hann sæti í stjórninni, ef einhver úr henni deyr
eða forfallast.
Sá er formaður, sem fær flest atkvæði, en séu þau jöfn, ræð-
ur hlutkesti. Að öðru leyti skifta stjórnendur verkum milli sín.
Iíosning fer skriflega fram á aðalfundi, og gildir til næsta
aðalfundar. Fjarstaddir félagar geta sent fundinum atkvæði sín
skriflega.
5. gr. Læknar í S., A., V. og Norðlendinga fjórðungi, kjósa
einn fulltrúa, hvorir fyrir sinn fjórðung, stjórninni til aðstoð-
ar. Gildir sú kosning til 2ja ára, og fer fram á þann hátt, að
læknar i hverjum fjórðungi senda fulltrúa sínum skrifleg at-
kvæði sin, en hann aftur formanni, fyrir aðalfund, og lýsir for-
maður þá kosningu.
6. gr. Stjórnin sér um allar framkvæmdir félagsins. Hún skal
hafa vakandi auga á öllum þeim málum, sem varða læknastétt-
ina eða heilbrigði almennings. Hún sendir að jafnaði læknum,
er próf taka, áskorun um að gerast félagar. Rétt hefir hún þó
til að neita læknum um inntöku í félagið og visa þeim úr því
um stundarsakir, ef ástæða þykir til. í ársbyrjun gefur hún
skýrslu um allan hag félagsins og framkvæmdir þess siðastliðið ár.
Fjórðungs-fulltrúar skulu hafa vakandi auga á öllum lækna-
og heilbrigðismálum í sínum fjórðungi og leiðbeina stjórninni
i öllu slíku, er hún æskir þess.
7. gr. Félagið heldur, að forfallalausu, aðalfund á ári hverju
í júní, júli eða ágústmánuði. Skal stjórnin boða til fundar með
6 vikna fyrirvara, og auglýsa umræðuefni. Þeir ,sem hafa i hyggju,
að bera fram mikilsvarðandi mál, skulu hafa tilkynt formanni
það eigi síðar en 2 mánuðum fyrir fund. Aðalfundur ræður
fundarstað.
Aukafund má halda, ef ekki færri en 5 félagar utan Reykja-
vikur senda stjórninni áskorun um það.