Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1933, Síða 15
15
ar, í mánuðunum október til maí, og aukafundi þegar stjórnin
telur þess þörf eða að minnsta kosti 4 félagsmenn óska þess.
Fundarefni reglulegra funda skal auglýsa félagsmönnum með
minnst 3ja daga fyrirvara, en aukafunda eftir þvi sem ástæður
leyfa.
Fundurinn er því að eins lögmætur, að hann sé löglega boð-
aður, og ályktunarfær ef % félagsmanna eru á fundi.
Nú reynist fundur ekki ályktunarfær, og getur þá stjórnin
kvatt til aukafundar, þó ekki fyrr en eftir viku, og skulu þá að
eins hin sömu mál á dagskrá. Sá fundur er ætíð ályktunarfær.
5. gr. — Aðalfundur skal haldinn í mars ár hvert. — Þessi
eru skyldustörf hans:
1. Stjórnin skýrir frá störfum siðasta árs.
2. Gjaldlceri leggur fram endurskoðaða reikninga.
3. Lagabreytingar, ef til kemur.
4. Stjórnarkosning. — Hver stjórnarmeðlimur skal kosinn sér-
staldega. Nú fær enginn, i hvert starfið sem er, meira en
helming greiddra atkvæða, og skal þá kosið aftur bundnum
kosningum um þá tvo, er flest fengu atkvæði. Hlutkesti ræð-
ur, ef atkvæði reynast þá jöfn.
5. Kosnir tveir endurskoðendur allra reikninga félagsins.
6. Árstillag ákveðið fyrir eitt ár i senn. — Reikningsárið er
almanaksárið.
7. Læknablaðið. — Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
Læknablaðsins, kosið i ritstjórn þess (samkv. 6. gr.).
8. Ekknasjóður. — Lagðir fram endurskoðaðir reikningar Ekkna-
sjóðsins og kosið i stjórn hans.
6. gr. — Félagið gefur út „Læknablaðið“. Ritstjórn þess annast
3 menn, kosnir á aðalfundi til þriggja ára i senn, og gengur
einn úr hvert ár, eftir starfsaldri. Ritstjórnin skiftir með sér
störfum. Nú forfallast einn eða fleiri úr ritstjórninni, og er þá
félagsstjórnin skyld að sjá fyrir varamanni eða mönnum.
Læknablaðið skal að jafnaði koma út einu sinni i mánuði
hverjum. Verð þess skal ákveðið á aðalfundi hverjum til eins
árs í senn, en reikningsár þess er almanaksárið.
7. gr. — Félagið styður að viðhaldi og eflingu „Ekknasjóðs-
ins“, svo sem ákveðið er í skipulagsskrá hans.
8. gr. — Félagið beitir sér fyrir almenningsfræðslu um heil-
brigðismál og ákveður októberfundurinn nánar um það fyrir
hvert starfsár.
9. gr. — Félagið sér um læknavörð að næturþeli og á helgi-
dögum um sumarmánuðina, júní til september. Sltyldir til að taka
þátt i varðlæknisstörfum eru allir þeir félagsmenn, sem stunda