Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1933, Side 17
17
Skipulag styrktarsjóðs ekkna
og munaðarlausra barna íslenzkra lækna.
1. gr. Tilgangur sjóðsins er að styrkja þurfandi ekkjur ís-
lenzkra lækna og munaðarlaus börn þeirra.
2. gr. Sjóðurinn er stofnaður af Læknafélagi Reykjavikur,
enda leggur félagið fram 1000 — eitt þúsund — krónur sem stofn-
fé og árlega þriðjung af greiddum félagsgjöldum um næstu 10 ár.
Stofnféð má aldrei slterða.
3. gr. Stjórn sjóðsins hafa á hendi 3 læknar og kýs Lækna-
félag Reykjavíkur þá á aðalfundi, einn þeirra úr flokki héraðs-
lækna.
Stjórnin skiftir með sér störfum, en öll ber hún ábyrgð á
sjóðnum.
Stjórnin skal kosin til 3ja ára i senn, en þó svo, að einn fer
úr stjórninni ár hvert, hin fyrstu árin eftir hlutkesti, er Lækna-
félagið lætur fara fram, en siðan sá, er lengst hefir verið í stjórn.
— Endurkosning á stjórnarmönnum má fram fara.
Stjórnin vinnur endurgjaldslaust, en nauðsynleg útgjöld fær
hún endurgreidd.
4. gr. Tekjur sjóðsins eru árleg tillög lækna svo og annara,
er sjóðinn vilja styrkja. Ennfremur gjafir, áheit og aðrar tekj-
ur, er sjóðnum kunna að berast.
Stjórnin tekur og fé til geymslu og ávaxtar aðra sjóði (legöt),
er ánafnaðir kunna að verða í þvi skyni, að styrkja ekkjur ís-
lenzkra lækna og munaðarlaus börn þeirra, og úthlutar styrk
þeirra eftir settum reglum.
5. gr. Til styrktar þurfandi ekkjum og munaðarlausum börn-
um skal úthluta árlega % •— tveim þriðju hlutum — af greidd-
um tillögum liðins árs, svo og % — tveim þriðju hlutum —
af vöxtum af stofnsjóði. Einn þriðja hluta greiddra árstillaga
svo og einn þriðja hluta vaxta af stofnsjóði, skal leggja við
stofnsjóð og ávaxta með honum.
Allar gjafir, áheit og aðrar tekjur sjóðsins skulu leggjast við
stofnsjóð, nema gefendur ákveði öðruvísi.
Styrkurinn skal að jafnaði vera ekki minni en 300 krónur
handa hverri ekkju, sem styrk fær af sjóðnum, og ekki minni
en 100 krónur handa hverju barni.
Telji sjóðstjórnin eltki þörf á að úthluta allri þeirri fjárhæð,
sem heimilt er að veita, skal fé það, sem umfram er, lagt i
stofnsjóð.
6. gr. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Skal sjóðstjórn-
in fyrir lok marsmánaðar ár hvert hafa gert reikningsskil fyrir
2