Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1933, Page 34
34
2) Að undanþiggja samlagið, að meira eða minna leyti, þeirri
skyldu að sjá félögum sínum fyrir læknishjálp, lyfjum og
sjúkrahúsvist.
Ákvarðanir slíkra funda öðlast þó ekki gildi fyrr en þær hafa
verið staðfestar af stjórnarráði Islands, og hefir það vald til að
breyta þeim, ef nauðsynlegt þykir.
6. gr. — Stjórnarráðið semur fyrirmynd að samþykktum handa
sjúkrasamlögum.
7. gr. — Ef sjúkrasamlag hættir að gegna þeim skilyrðum, sem
sett eru í 3. gr., þá fellur niður styrkurinn úr landssjóði og af-
skipti stjórnarráðsins af sjúkrasamlaginu.
8. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ýmsar stofnanir.
Slysatrygging Ríkisins.
Læknisskoðun og læknisvottorð fyrir slasaða menn.
Tryggingin gefur út eyðublöð fyrir lækna, til að gefa á vott-
orð um lælcnisskoðun þeirra slasaðra manna, sem slysatrygðir
eru. — Eyðublöð þessi þurfa allir læknar að hafa jafnan við
hendi eða eiga greiðan aðgang að þeim, — þau fást hjá lög-
reglustjórum og á skrifstofu trygginganna. — Samkvæmt samn-
ingi við Læknafélag íslands, greiðir Slysatryggingin læknum
tiltekið gjald fyrir hverja skoðun slysatrygðra manna, sem vott-
uð er á eyðublöð þessi.
Af eyðublöðunum eru 4 tegundir:
1. Læknisvottorð I.
Vottorð á þetta eyðublað er gefið um fyrstu skoðun eftir að
slys hefir viljað til. Vottorðið á að fylgja tilkynning atviunu-
rekandans um slysið til viðkomandi lögreglustjóra (eða hrepp-
stjóra). Þýðingarlaust er að gefa vottorð á hin önnur eyðublöð
tryggingarinnar samtímis þessu vottorði. — Tryggingin greiðir
5 krónur fyrir vottorðið.
2. Læknisvottorð um kviðslit.
Sé um að ræða kviðslit, gefur læknirinn vottorð á þetta eyðu-
blað, í stað læknisvottorð I. — Vottorðið fylgi tilkynningunni
um slysið. — Tryggingin greiðir 5 krónur fyrir vottorðið.
3. Læknisvottorð (dagpeningavottorð).
Á þetta eyðublað ritar læknirinn lýsingu á ásiglcomulagi hins
slasaða, eftir að fyrsta skoðun hefir farið fram, þar til sýnt þykir,
hvort slysið muni valda varanlegum orkumissi. Eftir þessu vottorði
metur tryggingin rétt slasaðra til dagpeninga. Það er að vísu hægt,
að úrskurða um dagpeninga eftir „Læknisvottorði 1“ og „Ör-