Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1933, Page 36
36
Barnahæli I. O. O. F. við Silungapol!.
Hælið tók til starfa 1931 og starfar aðeins að sumrinu. Það er
«etlað 60 börnum, þegar það er komið í fullt lag, en enn er þar
ekki rúm nema fyrir 30. Starfsemin er góðgerðastarfsemi og með-
lag er ekkert. Eingöngu tekin fátæk og veikluð börn (framfara-
laus, lystarlítil, með kirtlabólgur o. s. frv.) á aldrinum 5—12 ára,
en mega ekki hafa smitandi sjúkdóma. Börnin þurfa ekkert að
hafa með sér, nema eigin fatnað, þó hefir börnunum verið gef-
inn ýmislegur fatnaður (einkum skófatnaður), ef þörf var. Að-
eins börn úr lögsagnarumdæmi Reykjavíkur koma til greina, og
eru þau valin i samráði við iækni og fátækrastjórn Reykjavíkur
(venjulega borgarstjóra) af þar til valinni nefnd innan I.O.O.F.-
reglunnar.
Barnaheimilið „Sólheimar"
tók til starfa á árinu 1931. Hælið er reist á jörðinni Hverakot
í Grímsnesi, sem er eign Prestafélags íslands, en hælið á ungfrú
Sesselja Sigmundsdóttir, sem sjálf rekur það. Tekur það á móti
börnum á öllum aldri til skemmri eða lengri dvalar, einnig til
fulls uppeldis. Meðgjöfin er 60 kr. á mánuði og leggur hælið
barninu allt til, einnig kennslu og læknishjálp. Vottorð þarf að
fylgja barni um, að það hafi engan smitandi sjúkdóm.
Sjúkrahús Hvítabandsins.
Félagið hefir nú reist þrílyft steinsteypuhús 18% X 14% m. að
stærð, á Skólavörðustíg 37. Ætlar félagið að reka þar sjúkrahús
fyrir allskonar sjúkl., nema farsóttarsjúkl. Húsið er áætlað að
rúmi um 50 sjúkl. í húsinu er sérstök skurðarstofa með verk-
færaskáp, sterilisationsherbergi o. s. frv. Prakt. læknum er heim-
ilt að leggja inn sjúkl. og stunda þá J>ar. Óvíst er um, hvenær
hægt verður að byrja starfræksluna, en ráðgert að það verði
snemma á þessu ári. Daggjöld sjúkl. og annað, er það snertir,
er enn óákveðið.
Formaður félagsins er Ingveldur Guðmundsdóttir frá Kópa-
vogi, Bergi við Laugaveg.
Dagheimili Barnavinafélagsins „Sumargjöf“.
Félagið tekur börn til pössunar yfir daginn, sumarmánuðina
mai—sept. Hefir húsnæði og leikvelli i Grænuborg við Laufás-
veg. Börn eru tekin á aldrinum 3—12 ára og koma á heimilið
kl. 9 að morgni og fara heim aftur kl. 6 að kveldi. Á heimilinu
fá þau mat og alla umönnun yfir daginn. Læknir er látinn skoða