Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1940, Page 42
42
Widals-próf oftast jákvætt. Til að gera það nægir 1 ccm
af blóði, sem ekki þarf að vera sterilt tekið, og má taka úr
eyra, ef erfiðleikar eru á að ná úr venu. Stundum finnast
sýldarnir í saur eða þvagi, áður en Widal verður -)-, en
þótt taugaveikissýklar finnist ekki, má ekki af því draga
þá ályktun, að sjúkl. hafi ekki taugaveiki, því að stundum
þarf margítrekaða rannsókn til að finna sýklana í saur
eða þvagi.
Eftir að taugaveikissjúklingur er orðinn hitalaus, verð-
ur að rannsaka tvívegis — með nokkurra daga millibili —
saur og þvag (eftir smitburði).
Sérstök hylki undir saur og þvag til taugaveikisrann-
sókna fást á rannsóknastofunni.
Barnaveiki. Ef greinileg skán er mynduð, má taka úr
sárbarminum ögn af exsudati og smyrja út á gler og lita
fyrir B.D. Alltaf ættu menn þó að láta rækta frá hálsin-
um, og fá til þess serumglös í rannsóknastofunni. Svar
eftir 16—24 klst.
Gonorrhoe. Ofturlítil ögn af exsudati er smurt þunnt á
gler. Frá konum þarf að taka bæði frá urethra og cervix
uteri. Ekki treystandi að sjúkl. sé batnað, fyrr en rann-
sóknin hefir verið neikvæð þrisvar sinnum í röð með viku
millibili.
BlóSsótt (dysenteri). Sýklana má rækta, ef saurinn
kemur alveg ferskur til rannsóknar. Til blóðsóttarrann-
sóknanna þarf nokkurn undirbúning, svo að nauðsynlegt er
að gera rannsóknastofunni viðvart degi áður en hægt er að
setja sýklaræktunina í gang.
Meningitis epidemica. Nauðsynlegt er að gera rannsókna-
stofunni viðvart, áður en unnt er að rækta sýklana úr
mænuvökvanum. Ekki við að búast, að ræktunin takist, ef
ekki er hægt að sá út á sama sólarhringnum og mænu-
vökvinn er tekinn frá sjúkl.
Ýmsar rannsóknir. Stykki, sem send eru til vefjarann-
sókna, verður að láta í 4% formalín, sem er búið þannig
til, að formaldehydum officinale er þynnt með einum hluta
móti 9 hlutum vatns. Um að gera, að vefsstykkið sé ekki
látið spillast, áður en það er sett í formolblönduna. Þess