Baldursbrá - 19.10.1934, Blaðsíða 2
2.
UNGMENNABLAÐ ÞJÓÐRÆKNISFéLAGSINS
BALDURSBRÁ
Ungmennablaö Þjóðræknisfélagsins
Ritstjóri: Sig. Júl. Jóhannesson
218 Sherburn St. Winnipeg, Man.
Ráðsmaður: B. E. Johnson
1016 Dominion St. Winnipeg, Man.
því móti aðeins getur það varðveizt
hér um alllangan aldur; annars er
það dauðadæmt fyr en skyldi.
Þess er einnig vænst að hafa
megi nokkurn stuðning af þessu
litla blaði við lestur í sambandi við
íslenzku kenslu' Þjóðræknisfélags-
ins. Er því fastlega skorað á allar
deildir þs s að koma á slíkri kenslu
hver í sínu héraði, þar sem því
verður við komið, og að gangast
fyrir útbreiðslu blaðsins.
Þetta litla blað er eign Þjóðrækn-
isfélagsins; kostað af því að öllu
ieyti; er þar vitanlega lagt út í tals-
verða óvissu fjárhagslega, en hætt-
an verður eftir því minni sem betur
er unnið að útbreiðslu blaðsins.
Fyrst um sinn er ákveðið að
þetta litla blað komi út vikulega í
26 vikur af árinu. Það er að segja
þann tíma, sem kensla Þjóðræknis-
félagsins stendu'r yfir. En ef svo
vel skipast með útbreiðslu blaðsins
og kaupendafjölda að tiltækilegt
virðist að gefa það út í hverri viku
alt árið, þá verður það athugað og
ef til vill gert.
Verðið er svo lágt að ekki ein-
ungis ætti blaðið að geta komist inn
á hvert einasta heimili; heldur
jafnvel ætti það að ge>ta orðið sér-
eign hvers einasta ungmennis, sem
af íslenzku bergi er brotið.
Nefnd þá, sem Þjóðræknisfélagið
kaus þessu máli til framkvæmda,
skipa þessir menn:
Á. P. Jóhannsson
J. J. Bíldfell
B. E. Johnson
Hefir sú nefnd farið þess á leit
við mig að eg hefði á hendi rit-
stjórn þessa litla blaðs fyrst um
sinn og hefi eg lofast til að gera
það. Ráðsmaður blaðsins og fjár-
heimtumaður verðu'r B. E. Johnson,
en öll nefndin, auk margra annara
dugandi manna og kvenna, vinna
að útgáfu þess og útbreiðslu á ýms-
an hátt.
Öll störf við blaðið verða unnin
endurgjaldslaust; það er ekki gróða-
fyrirtæki neins félags eða einstakra
manna, heldur lörlítil fórn fúslega
frambcrin og lögð á altari íslenzkr-
ar þjcðrækni.
—Winnipeg, 15. október, 1934.
í umboði nefndarinnar
Sig. Júl. Jóhannesson.
“BALDURSBRÁ”
Börn og Ungmenni:
Þetta litla blað er gefið út fyrir
ykku'r: “Heimskringla” og “Lög-
berg” eru blöð fu'llorðna fólksins,
en þetta á að verða blaðiö ykkar.
Þið vitið sjálfsagt öll hvað “Heims-
kringla” og “Lögberg” þýðir. —
“Heimskringla” þýðir: allur hnött-
urinn, allur heimurinn. Það táknar
að blaðið á að flytja fréttir frá öll-
um löndum heimsins. Lögberg er
naín á kletti eða bergi á íslandi þar
sem Alþingi var haldið og lögin
voru lesin. Alþingi var þá nafn á
þinginu á íslandi og er enn. Lög-
berg” þýðir því staðurinn þar sem
komið er saman til þess að ræða og
afgreiða öll mikilsverð mál; þar er
skrifað um alt mögulegt.
Þið sjáið á þessu að nöfnin á ís-
lenzkum blöðum eru ekki út í blá-