Baldursbrá - 19.10.1934, Blaðsíða 4
4.
BALDURSBRÁ
FINNIÐ ÞIÐ ORÐIN, SEM VANTAR
Einu sinni út á.........
aleinn reri ..........;
fjörutíu ..........dró,
...........gerðu betur.
Hvergi finn eg hvolpinn......
........er týndur, greyið:
eflaust......... auminginn
úti í snjónum ............
Senn er.......... sumartíð,
senn er..........vetur:
þeir, sem eiga að þola......
þurfa að klæðast ..........
S. J. J.
GÖMLU BÖRNIN
íslenzkur málsháttur er til, sem
hljóðar á þessa leið: “Tvisvar verð-
ur gamall maður barn.”
Það er sannleikur að gamalt fólk
verður eins og börn að sumu leyti.
Víða eru stofnuð heimili handa
munaðarlausu'm börnum; þau eru
kölluð barnaheimili. Svo eru líka
stofnuð heimili handa gömlu fólki
og kölluð gamalmennaheimili hérna
hjá okkur, en elliheimili á íslandi.
Þau eru eiginlega nokkurs konar
barna heimili—heimili handa göml-
um börnum.
Sum af þessum gömlu börnum
geta skrifað skemtilega fyrir ungu
börnin, og eg er viss um að þau
skrifa einhvern tíma eitthvað í
Baldursbrá.
Eitt af þessum gömlu börnum,
sem á heima vestur í Alberta, heit-
ir Sigurður Jónsson frá Víðimýri;
hann er rétt að segja hálfníræður
og hefir verið í rúminu í nokkur ár.
En hann var einn með þeim fyrstu
að panta Baldursbrá og senda pen-
inga fyrir hana.
Og hann sendi líka heilmikið af
vísum; sumar þeirra eru gullfalleg-
ar. Hér birtast tvær og fleiri koma
kannske seinna:
Vermir strindi, vötn og haf
vor með yndisblíðu;
fjallatindum fannir af
fella vindar þíðu'.
Blíðan fangi vefur vang,
vorblóm, anga um haga;
signir tanga og svalan drang
sólskins langa daga.
Baldursbrá segir ykkur öðru
hvoru eitthvað um gömlu börnin.
G Á T U R
I.
Tveir menn fóru á samkomu. —
Þegar þeir koniu heim voru þeir
spurðir livor í sínu lagi hvernig
samkoman hafði verið sótt: “Hún
var vel sótt,” svaraði annar, “húsið
var hálffult.” “Hún var illa gótt,”
svaraði hinn, “húsið var hálftómt”.
Gátu þeir báðir sagt satt?
II.
Þrjú börn, sem hétu: Jakob, Elín
og Haraldur, skiftu þannig á milli
sín frímerkjum að Jakob fékk einu
íleira en helminginn, Elin fékk einu
fleira en helminginn af því sem þá
var eftir, og svo voru eftir þrjú
handa Haraldi. Hversu mörg voru
frímerkin upphaflega? Hversu rnörg
fékk Jakob og Elin hvort urn sig?