Baldursbrá - 14.08.1937, Side 1
3. Ár. || Winnipeg, Manitoba, 14. ágúst 1937
Nr. 22.
Leðurblakan, sem vildi
læra að syngja.
Leðurblöku fjölskylda átti heima
uppi í háum birkitrjám. Það voru
æfa gömul leðurblökuhjón og eitt
barn þeirra.
Þessi leðurblöku fjölskylda var af
fjarska háum ættum og stórefnuð.
Þau voru öll í síðum regnkápum og
höfðu engar samgöngur nema með
heldri fuglum, svo sem gamalli og
grárri uglu.
Þau áttu sérlega fínan bústað uppi
yfir g’ugganum í kirkjuturninum,
sem var hálf hruninn.
Þessi bústaður var ekki skrautleg-
ur á að líta að utan, en það var bara
til þess að þjófar kæmu þangað ekki,
sérstaklega smáfuglar, þegar þeir
sáu það að bústaður leðurblakanna
var svona fátæklegur, héldu þeir að
þar væri engu að stela; en þar
skjátlaðist þeim; því bústaður leð-
urblakanna var óásjálegur að utan,
en þeim mun fínni að innan. Og þar
að auki höfðu þær miklar birgðir
af ormum. Leðurblökurnar höfðu
skeljar fyrir diska og smá kúfunga
fyrir bolla, en mannshári höfðu þær
náð til þess að búa til sængur.
“Hvers vegna höfum við manns-
hár í rúmfötin okkar?” spurði litla
leðurblakan, sem var tuttugu ára
gömul, en ósköp heimsk.
Faðir hennar klappaði á kollinn á
henni og sagði: “Það stendur þannig
á því, að í gamla daga trúðu börn
mannanna því, að við réðumst á þau
og reittum af þeim hárið; og svo
voru þau dauðhrædd við okkur. Á
meðan börnin trúðu þessu, notuðu
forfeður okkar sér það og reittu
virkilega af þeim hárið; en þegar
þau urðu skynsamari og hættu að
trúa því, þá hættu þeir líka, og það
litla hár er við höfum eftir, höfum
við erft frá forfeðrum vorum.”
“Hí, hí,” heyrðist ýlfrað úti fyrir.
Það var uglan, sem kom að heim-
sækja leðurblökurnar.
“Flýttu þér og þvoðu þér í fram-
an, stelpa mín,” sagði leðurblöku-
móðirin við dóttur sína. “Uglu
herrann er kominn að heimsækja
okkur. Þvoðu þér um fæturna líka.”
“Hí, hí,” sagði uglan um leið og
hún kom inn og hneigði sig. “Hvern-
ig líður þér, nágranna kona, núna?”
“Þakka þér fyrir; mér og okkur
líður ágætlega,” svaraði leðurblakan.
“Eg hefi bara dálitla gigt í hægri