Hádegisblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Hádegisblaðið - 17.02.1933, Qupperneq 2

Hádegisblaðið - 17.02.1933, Qupperneq 2
2 HADEGTSBLAÐIÐ Spilavíti í Reykjavík. Blöun þegja. — Lögreglan horfir á. I. Hjer hafa verið á tveim stöðum í bænum settir upp kassar, »auto- matísk lotteri«, ef svo mætti að orði komast, þar sem börn og ung- lingar geta vanist á hina skaðlegu og hættulegu fjárhættuspilafýsn. Eigandi þessará áhalda er Gunnar nokkur Halldórsson. Hefir hann billiarðstofu á Vesturgötu, en hefir 8vo fengið leyfi hins virðulega gestgjafa, Jóhannesar Jósefssonar á Hótel Borg til þess að hafa ann an kassann 1 fordyri hótelsins Sennilega græðir Jóhannes á þessu, eins og mðrgu öðru, og um ágóða eiganda kassanna efast enginn af þeim, er til þekkir. Þrátt fyrir það, þótt kassar þess- ir sjeu starfræktir að fullu eins og þeim er ætlað, sem þó er ekkert öryggi fyrir, þar sem þetta er gjör- samlega eftirlitslaust af hinu opin- b'jxa, þá virðist þetta, er vel er aO gætt, heldur sóðaleg atvinna, því hjer venjast börn og ungling ar Reykjavíkur beinlínis á að 8pila fjárhættuspil með allri þeirri siðspillingu og jafnvel glæpum, sem því eru fylgjandi. Kassar þessir eru þannig út- búnir, að tuttugu og fimm eyring er stungið inn í þar til gert gat, síðan er snúið sveif og ef hepnin ef með^getur eigandi 25 eyrings- ins fengið það, sem í kassanum er að frádregnum ágóða kassans, sem eigandi 25-eyringsins hefir enga hugmynd ] um~hver er, því hann veit ekki um hve mikið er búið að láta í kassann á undan honum. Sem von er eru börn og unglingar mjög fíkin í að reyna gæfu sína við kassa þessa. Þau fara með aura þangað, láta 25 aura í, snúa sveifinni,- en fá ekki neitt. Láta annan, alt fer á sömu leið. Svona gengur koll af kolli, þar til aurarnir eru búnir. Þau standa hjá og horfa á fjelaga sína endurtaka saina leikim Alt í einu kemur einhver og lætur 25 aura i kassan, snýr sveifinni og, — hann fær heil mikla upphæð úr kass- anum — að minsta kosti í hlut- falli við það, sem hann hefir lát- ið. — Hjá börnum þeim og ung- lingum, sem hjá standa, vaknar auðvirað sú spurning: hvers vegna að þau hafi ekki alveg eins getað unnið eins og þessi og spilafýsnin er vakin til lifs. Hjá þeim vakn- ar óslökkvandi þorsti, — sem ein- kennir spilafýsnina, — þoisti eftir að spila, spila og vinna. Ef til vill fara börnin til foreldra sinna eða vina og biðju. þá um að gefa, sjer aura, en þ.ið sorglega er, að þau gera það ekki altaf, heldur sitja um að hnupla aurum frá foreldr- um eða kunningjum, til þess að fara með og reyna gæfuna við kassann. Allmörg börn i bænum vinna sjer inn aura með þvi að selja blöð og innheimta reikninga. Mörg dæmi eru þess, að börn þessi fara með þá aura, sem þau fá fyrir þetta, beint að kassanum og verða af með þá þar og þess mun finn- ast dæmi og líklega fleiri en æski- legt er, að börn og unglingar hafi eytt meiru heldur en þau áttu við kassa þessa í von um vinning og að þau þá með honum gætu end- urgreitt þáð, er þau hefðu missjeð sig á. Hvað langsjaldnast hepnast ekki, enda vafasamt, hvort það væri æskilegt, því ef þau á þenn- an hátt ynnu, er mjög líklegt að þau myndu endurtaka þetta aftur, ef slíkt stæði á og gæti þá svo farið, að þau eyddu meira fje þá, ranglega fengnu, en bæru ekkert úr býtum. Hins vegar er líklegt, að börnin gerðu það ekki aftur, ef þau væru búin að reka sig á. En börn eru fljót að gleyma, hjá þeim fyrnist venjulega fljótt yfir smá yfirsjónir og gæti þá svo far- ið, að þau gripu aftur til peninga, sem þau ekki ættu, með þeirri hugsun, að vel gæti verið að þau innu nú, þótt þau hefðu ekki hepn- ina í fyrra skiftið. Er þetta enn hættulegra, því það sýnir, að börn- in eru að verða ofurseld hinni sið- ferðislausu spilafíkn. II. Það má merkilegt heita, að lög- reglan hefir látið mál þetta af- skiftalaust. Slik fjárgróðafyrirtæki sem þessi, eiga ekki og mega ekki þrífast hjer á landi. Úr því til eru menn hjer, sem geta haft sig til þess að gera að atvinnú sinni, að græða fje á þennan hátt, er það skylda vaídhafana, að fyrir byggja að slikt eigi sjer stað. Fyrst og fremst með því, að banna að starf- rækja kassa þessa, sem nú eru í notkun, helst að eyðileggja þá og f öðru lagi banna innflutning á þeim um aldur og æfi. Hjer er um menningarmál að ræða, mál sem ekki má láta afskiftalaust. Hinir fullorðnu Reykvfkingar mega ekki horfa á það, að verið sje að spilla siðferði barna þeirra og ung- linga, með þvf að venja þau á fjárhættuspilamensku. Því fjár- hættuspil er þetta og ekkert ann- að, þótt f smáum stil sje. Það virð- ist vera nóg hjer f bænum af sið- spillingu, sem fyrir börnum og unglingum er höfð, þótt eigi sje bætt við það fjárhættuspilamensku. Það er all einkennilegt, að bæjar- blöðin hafa verið merkilega sam- taka um að minnast ekki á þetta einu orði eða finna að þessu. Vafa- laust h.afa þau oft varið rúmi sfnu ver heldur en þau hefðu gert, ef þau hefðu ráðist á slikan ósóma. En ef til vill hefir blöðunum ver- ið skipað að þegja, þar sem í hlut áttu bróðir Pjeturs Halldórssonar þingmanns og hóteleigandi, þó eigi sje nema að nafni, Jóhannes á

x

Hádegisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hádegisblaðið
https://timarit.is/publication/1053

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.