Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2007, Blaðsíða 8
MIÐVIKudagur 17. OKTÓBEr 20078 Fréttir DV
Deila stjórnvalda á Spáni og sjávar-
könnunarfélagsins Odysseys tóku á
sig nýja mynd í gær er skipi félags-
ins, Odyssey Explorer, var fylgt til
spænskrar hafnar af tveimur varð-
bátum spænsku landhelgisgæsl-
unnar. Forsaga deilunnar er sú að
í maí síðastliðnum fann félagið
skipsflak úti fyrir strönd Cornwall á
Bretlandi. Um var að ræða galeiðu
frá sautjándu öld og fengurinn
var hálf milljón gull- og silfurpen-
inga og er hann metinn á um fimm
hundruð milljónir bandaríkjadala.
Odyssey hefur haldið staðsetningu
flaksins leyndri, að sögn til að verja
það ágangi ræningja.
Skipið hefur ekki verið nafn-
greint ennþá, en Richard Larn, sem
er sérfræðingur í skipsflökum og
sagnfræðingur, hefur leitt líkur að
því að um sé að ræða breskt skip,
Merchant Royal, sem sökk á svip-
uðum slóðum árið 1641. Skipið hef-
ur verið kallað Svarti svanurinn.
En yfirvöld á Spáni eru ekki sann-
færð. Þau grunar að um sé að ræða
spænska galeiðu og að flakið liggi
jafnvel innan spænskrar landhelgi.
Gott samband við stjórnvöld
Odyssey-félagið hefur átt gott
samstarf við yfirvöld á Spáni í ára-
tug, en með deilunni virðist hafa
hlaupið snurða á þráðinn, því nú er
svo komið að spænska ríkið stend-
ur í málaferlum við félagið vegna
skipsflaksins. Er þar meðal ann-
ars tekist á um eignarrétt yfir fjár-
sjóðnum, en hann hefur verið flutt-
ur til Flórída í Bandaríkjunum og er
geymdur þar í leynilegri geymslu.
Greg Stemm, einn af stofnendum
Odysseys, sagði að ávallt hefði ver-
ið um gott samstarf að ræða milli
félagsins og spænskra stjórnvalda
og félagið hafi borið virðingu fyr-
ir hagsmunum Spánar í menningu
sem lýtur að sjóferðasögu landsins.
En skugga hefur borið á samskiptin
undanfarna mánuði og í júlí stöðv-
uðu spænsk yfirvöld og fóru um
borð í annað skip félagsins þegar
það fór frá Gíbraltar og lagt var hald
á eina tölvu. Í viðtali við fréttastofu
BBC sagði félagið að það myndi
krefja Spán um bætur vegna fjár-
hagslegs tjóns vegna afskipta ríkis-
ins af starfsemi þeirra.
Áhrifa gætir víðar
Slagurinn um Svarta svan-
inn hefur nú stofnað í hættu öðru
gróðavænlegu verkefni. Bresk
stjórnvöld hafa í samvinnu við Od-
yssey unnið að björgun bresks her-
skips sem talið er að Odyssey hafi
fundið í vestanverðu Miðjarðarhafi.
Þar er um að ræða herskipið HMS
Sussex, sem sökk undan Gíbralt-
ar í stormi árið 1694. Samkvæmt
bresku fornleifanefndinni var til-
gangur ferðar skipsins að koma
fjárstuðningi til hertogans af Savoy
þegar stríðið gegn Loðvíki fjórtánda
stóð yfir. Fornleifanefndin telur að
um borð í skipinu hafi verið gull-
stangir að verðmæti fimm milljarða
bandaríkjadala. Herskipið liggur á
hafsvæði sem hvort tveggja Gíbralt-
ar og Bretland fullyrða að sé alþjóð-
legt, en Spánn gerir tilkall til þess.
Samningaviðræður áttu sér stað
fyrr á þessu ári og komust deiluað-
ilar að samkomulagi, en nú virðist
sem verkinu hafi verið frestað. Er
það mat manna að deila Odysseys
og spænska ríkisins skuli verða leyst
áður en lengra er haldið.
Úlfar í sauðagæru
Margir sérfræðingar eru þeirr-
ar skoðunar að gefið sé slæmt for-
dæmi ef einkaaðilum verði gert
kleift að hagnast á sögulegum
skipsflökum og telja að fjársjóðs-
leitarmenn feli viðskiptalegan til-
gang sinn með því að setja leit-
ina undir formerki fornleifafræði.
Á Spáni hefur starfsemi Odysseys
verið líkt við sjórán nútímans. Fé-
lagið fer enda ekki í neinar grafgöt-
ur með það að aðalmarkmið þess
séu viðskiptalegs eðlis, en leggur
þó áherslu á að stunda góða forn-
leifafræði og starfsemi þess stand-
ist ströngustu kröfur og á snærum
þess séu sérfræðingar og forn-
leifafræðingar. „Samningur okkar
við breska ríkið er skínandi dæmi
um hvernig samvinna hins opin-
bera og einkaaðila getur haft í för
með sér framúrskarandi vinnu í
fornleifafræði,“ sagði Greg Stemm.
Hann taldi ekkert því til fyrirstöðu
að viðlíka samstarf tækist með öðr-
um löndum, til dæmis Spáni.
Kostar skildinginn
Starfsemi Odysseys er ekki ódýr.
Aðgerðirnar kosta margar milljón-
ir bandaríkjadala og krefjast þró-
aðrar tækni svo hægt sé að kanna
SJÓRÁN EÐA FORNLEIFAFRÆÐI
Fengurinn var hálf
milljón gull- og silf-
urpeninga og er hann
metinn á um fimm
hundruð milljónir
bandaríkjadala.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
odyssey explorer
Skip félagsins var fært
til hafnar á Spáni.