Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2007, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2007, Blaðsíða 17
DV Sport MIÐVIKudagur 17. OKTÓBEr 2007 17 Bridges til Sydney Fyrrverandi framherji Leeds og Sunderland, Michael Bridges, hefur ákveðið að söðla um og fara til Ástralíu og leika með Sydney. Hinn 29 ára gamli Bridges fetar þar með í fótspor dwight Yorke sem lék við góðan orðstír hjá liðinu. Fyrir hjá Sydney er Juninho sem lék með Middlesbrough og atletico Madrid. „Ég er búinn að tala við Yorke um lífið í Sydney og hann lofsamaði það mikið. Ég ætlaði að fara til Carlisle en stjórinn vildi ekki fá mig strax til baka. Sydney vildi svar og ég ákvað bara að kýla á þetta. Þetta verður mikið ævintýri og að spila með leikmanni eins og Juninho verður frábært. Ég tek konuna og tvíburana með mér þangað og við hlökkum öll mikið til að eyða jólunum á ströndinni. Ég ætla samt ekki að klára ferilinn þarna. Enskur fótbolti hefur ekki séð það síðasta frá mér.“ Cole frá í þrjá mánuði Búist er við að Ashley Cole, leikmaður Chelsea, verði frá keppni vegna meiðsla í þrjá mánuði. Cole lenti í samstuði í leik Englands og Eistlands á laugardaginn og fór í læknisskoðun á mánudaginn. Þar kom í ljós að hann er ekki brotinn en liðbönd og vöðvar í ökklanum sködduðust. Ef Cole verður frá í þrjá mánuði mun hann missa af leik Englands og Króatíu, restinni af leikjum Chelsea í riðlakeppni Meistaradeildar- innar og jólatörninni, en margir leikir eru háðir um jólin í ensku úrvalsdeild- inni. Tvær vikur í Ballack Hans-Wilhelm Muller-Wohlfahrt, læknir þýska landsliðsins, segir að enn séu tvær vikur í að Michael Ballack, leikmaður Chelsea, verði klár í slaginn. „Ég hef haft samráð við ensku læknana og ég tel að hann geti byrjað að æfa í náinni framtíð,“ segir Muller- Wohlfahrt. Tíðindin koma Oliver Bierhoff, sem er í þjálfarateymi Þýskalands, í opna skjöldu. „Þetta kemur mér á óvart. Fyrir tveimur dögum ræddi ég við Michael í síma og hann var mjög bjartsýnn,“ segir Bierhoff. Ballack hefur ekkert spilað frá í apríl vegna ökklameiðsla. Rússar of sterkir fyrir Englendinga Alexander Hleb, leikmaður arsenal, segir að rússar verði of sterkir fyrir Englendinga þegar liðin mætast í undankeppni EM í kvöld. England vann rússland 3–0 á Wembley í síðasta mánuði en Hleb telur að það hafi gefið ranga mynd af styrkleika rússa. „Eftir fyrsta markið voru rússar hungraðir í að jafna og við það misstu þeir einbeitingu og gerðu mörg mistök. Fyrir vikið fengu Englendingar mikið svæði í vítateig rússa og nýttu sín færi vel. andrei arshavin og alexander Kerzhakov eru lykilmenn hjá rússum og ég tel að þeir muni leiða liðið til sigurs. Leikurinn fer fram á gervigrasi og rússar munu njóta góðs af því og vinna nauman 2–1 sigur,“ segir Hleb. EnSki BolTinn Leikur Englendinga og Rússa fer fram á gervigrasi á Luzhniki-vellin- um í Moskvu. Umræðan um leikinn hefur að mestu snúist um það og ljóst að enskir eru ekki allt of hrifn- ir af því að spila á þannig velli. Ljóst er að aðrir vellir með alvörugras eru í lagi en Rússarnir vildu hins vegar spila á svona velli. John Terry verður að öllum lík- indum með í leiknum og mun verða félagi Rios Ferdinand í hjarta varnarinnar. Joleon Lescott verður væntanlega vinstri bakvörður í stað hins meidda Ashley Cole. Englendingar æfðu á mánudag og var liðinu stillt upp í leikkerfið 4-4-2 þar sem Shaun Wright-Phill- ips og Joe Cole voru á köntunum og þeir Steven Gerrard og Frank Lampard á miðri miðjunni. Englendingar unnu Rússa sann- færandi 3–0 þegar liðin mættust fyrir rétt rúmum mánuði en Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússa, segir að hans lið muni sækja til sig- urs. Annað sé ekki í boði því annars er liðið endanlega dottið úr keppn- inni. „Við vitum hvað við þurfum að gera gegn Englandi. Við munum ekki setja hápressu á þá frá byrjun því leikurinn er í 90 mínútur. En við munum taka nokkra áhættu í leikn- um og reyna að vinna. Englendingar hafa mikla reynslu í sínu liði á meðan við erum með ungt og óreynt lið. Allir búast við því að þeir vinni þennan leik þannig að við förum í þennan leik án allrar pressu. Við höfum engu að tapa en allt að vinna.“ Terry Venables, aðstoðarlands- liðsþjálfari Englands, sagði að hann væri ekkert hræddur við gervigras- ið. „Við trúum því að við getum spil- að góðan fótbolta á hvaða undirlagi sem er þannig að þessi umræða má ekki ná til leikmanna. Við höfum æft á vellinum og hann er allt í lagi. Það eina sem við ætlum okkur er sigur og ekkert annað. Við eigum enn möguleika ef við töpum en við erum ekkert að hugsa um það. Við ætlum okkur sigur þannig að við getum farið afslappaðir í Króata- leikinn í nóvember.“ benni@dv.is Sigur og ekkert annað hjá enskum Enskir hafa tuðað mikið vegna Rússaleiksins í dag en leikurinn fer fram á gervigrasi. Byrjar væntanlega inn á Frank Lampard byrjar væntanlega inn á í dag. Baulað var á hann þegar hann kom inn á á laugardaginn. MIKILVÆGT AÐ KLÁRA MÓTIÐ MEÐ REISN Íslenska knattspyrnulandsliðið spilar við Liechtenstein í dag. Mikilvægt er fyrir liðið að rífa sig upp eftir vonbrigðin á móti Lettum: Ísland mætir Liechtenstein í und- ankeppni Evrópumótsins í knatt- spyrnu klukkan 16:00. Þetta er leikur tveggja neðstu liðanna í riðl- inum en með sigri geta Íslendingar bætt stöðu sína og komist upp fyr- ir Letta. Liechtenstein er sýnd veiði en ekki gefin eins og Íslendingar fengu að finna fyrir á Laugardagsvelli í júní síðastliðnum þar sem liðin gerðu jafntefli 1–1. Liechtenstein er í neðsta sæti í riðlinum með 4 stig en auk þess að ná jafntefli á móti Íslandi sigr- aði það Lettland á heimavelli 1–0. Á laugardaginn spiluðu þeir við Svía og stóðu í þeim þótt þeir hafi á end- anum tapað með þremur mörkum gegn engu. Búist er við fínum aðstæðum til knattspyrnuiðkunar í leiknum en hitinn er í kringum 20 stig og heima- völlur liðsins, Rheinpark, er í höfuð- borginni Vaduz. Liechtenstein er sem stendur í 142. sæti á FIFA-listanum en Ísland er í 80. sæti. Íslendingar hafa þrívegis spilað áður við Liechtenstein en auk jafnteflisins í júní áttust liðin tvívegis við árið 1997. Í bæði skiptin enduðu leikar 4–0 Íslandi í hag. Íslendingar eiga ærið verkefni fyr- ir höndum en íslenskt landslið hefur aldrei unnið útileik í októbermánuði. Eyjólfur á ýmsa möguleika Í gær var rólegur dagur hjá ís- lenska liðinu þar sem liðið tók stutta æfingu og skoðaði sig um í fjallarík- inu. Fastlega er búist við því að Eyj- ólfur Sverrisson landsliðsþjálfari geri einhverjar breytingar á byrjunarlið- inu. Ljóst er að hann neyðist til þess þar sem Grétar Rafn Steinsson er meiddur í baki eftir ljóta tæklingu frá varnarmanni Letta á laugardag. Það setur Eyjólf í erfiða stöðu þar sem enginn leikmaður í hópnum er van- ur hægri kantmaður þó einhverjir geti leyst þá stöðu. Spurning er hvort Eyjólfur haldi sig við Kára Árnason á kantinum hægra megin en vinstri bakvarðarstaðan hjá Liechtenstein er þess veikasti hlekkur og mikilvægt fyrir íslenska liðið að nýta sér það. Eyjólfur á einnig þann möguleika að setja Emil Hallfreðsson í hægri kantmannsstöðuna og láta Indriða Sigurðsson spila þess í stað á vinstri kantinum en hann hefur reynslu af því að spila þá stöðu og getur ógnað sóknarlega. Sérstaklega þegar and- stæðingurinn er veikur líkt og á við í þessu tilviki en Liechtensteinar eru vafalítið meðal lökustu knattspyrnu- þjóða í Evrópu. Ármann Smára í framlínuna? Mikill fengur er fyrir íslenska liðið að fá inn Hermann Hreiðars- son en hann mun líklega reyna að sækja fram kantinn í þessum leik og á góðum degi getur hann ógnað þar. Samvinna hans og Emils verður því lykillinn að góðu uppspili þar sem Brynjar Björn og Jóhannes Karl eru mistækir í þeim efnum á miðjunni. Athyglisvert verður að sjá hvern- ig íslenska liðinu gengur að stjórna leiknum að þessu sinni. Fram til þessa hefur íslenska liðinu reynst það erfitt undir stjórn Eyjólfs. Lykil- maður í sóknarleiknum er að sjálf- sögðu Eiður Smári Guðjohnsen en hann á það til að hanga of lengi á boltanum þegar andstæðingarn- ir eiga fyrirfram að vera lakari. Á góðum degi getur hann hins vegar klárað leik af þessu tagi. Meðspil- ari Eiðs í þessum leik verður ann- aðhvort Ármann Smári Björnsson eða Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Ef Gunnar verður notaður er afar mik- ilvægt að íslenska liðið nái að spila knettinum í fætur hans en Ármann Smári veitir annars konar mögu- leika og það gæti verið klókt hjá Eyjólfi að hafa hávaxinn mann sem getur ógnað þegar fyrirgjafir berast fyrir markið. Ekki náðist í Eyjólf Sverrisson við vinnslu þessarar fréttar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. ViðAr GuðjónSSon blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Emil á hægri kantinn? Eyjólfur Sverrisson þarf að finna leiðir í gegnum vörn Liechtenstein. Eyjólfur Sverrisson Íslenska landsliðið í knattspyrnu spilar við Liechtenstein í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.