Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2007, Blaðsíða 21
Fótgönguliðar í áróðursdeild
íhaldsins, jafnt innan fjölmiðla sem
utan, leggja sig mjög fram þessa
dagana við að ráðast að framsókn-
armönnum vegna hremminga sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn Reykja-
víkur. Það er eitt dæmið enn um
smjörklípuaðferðina sem Davíð
kenndi þeim.
Eitt af því sem áróðursdeildin
fæst við er að útmála framsóknar-
menn fyrir meinta spillingu í REI-
málinu. Þar er því meðal annars
haldið fram að Björn Ingi hafi gengið
erinda peningamanna í röðum fram-
sóknarmanna til að gera þá enn rík-
ari. Allt sé það í þágu spillingar. En
hvað er til í þessu?
Í blaðinu 24 stundir í gær er yfir-
lit yfir þá aðila sem eiga hlutdeild í
REI, eftir sameiningu Geysis Green
Energy og REI. Það er athyglisverð
lesning, sem sýnir fram á bullið í
íhaldinu. Ég veit ekki til þess að all-
ir þeir einstaklingar sem þar eru til-
greindir séu framsóknarmenn og ég
er viss um að sumum þeirra líkar það
alls ekki að vera bendlaðir við stjórn-
málaflokka. Þeir einu sem ég veit til
að séu tengdir Framsóknarflokknum
eru nokkrir einstaklingar sem tengj-
ast 2,23% eignaraðild í Geysi Green
Energy, en hlutur Geysis Green En-
ergy er 60,37% í sameinuðu fyrirtæki
REI. Þetta er öll spillingin í augum
íhaldsins. Þeir tala ekki um innvígða
sjálfstæðismenn sem tengjast í reynd
mun stærri eignarhlutum í fyrirtæk-
inu. Má ekki túlka það sem spillingu
að Vilhjálmur og félagar hafi verið að
hygla þessum ágætu flokksfélögum
sínum? Það voru jú sjálfstæðismenn
sem höfðu mest völd í OR og REI og
höfðu mest um þróun mála að segja
sem slíkir.
Ég held að sjálfstæðismenn ættu
að líta í eigin barm í þessu dæma-
lausa klúðri þeirra. Það er augljóst
að nú hafa brotist fram innri átök
í Sjálfstæðisflokknum, milli valda-
klíka og áhrifahópa, sem berast á
banaspjót. Það er augljóst að ákveð-
inn hópur innan flokksins ætlaði að
svíkja Vilhjálm, koma honum út úr
áhrifastöðu og koma þóknanleg-
um einstaklingum til valda í borgar-
stjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins.
Geir Haarde, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefur ítrekað fjallað um
innri vanda í Framsóknarflokknum
og að við framsóknarmenn ættum
að einbeita okkur að því að leysa úr
honum. Nú ætti Geir að hætta að hafa
áhyggjur af því en horfa til eigin flokks
í staðinn. Atburðir síðustu daga sýna
að það er mikil upplausn og innri
vandi í Sjálfstæðisflokknum. Ætli það
sé ekki ærið verkefni fyrir Geir að
vinna í þeim málum áður en ákveðn-
ar klíkur í Sjálfstæðisflokknum laska
hann það mikið sem formann að það
fari að fjara undan honum.
Sandkassinn
Gamla klisjuvanGaveltan um af
hverju okkur Íslendingum gengur
yfirleitt svona illa
í knattspyrnu-
landsleikjum
á móti þjóð-
um sem eru
lakari en við á
pappírunum,
en náum svo
fínum árangri
á móti sterk-
ari þjóðum, hefur verið að ásækja
mig frá því Lettaleiknum lauk um
síðustu helgi. Við náðum jafntefli
gegn Spánverjum, eða kannski er
réttara að segja að þeir hafi náð
jafntefli gegn okkur, og svo töpum
við á móti Lettum. Þetta er aðeins
nýlegasta dæmið af mörgum. Þessi
plága hefur plagað íslenska karla-
landsliðið frá því ég man eftir mér. Í
dag eigum við leik á móti Liecht-
ensteinum. Þeir eru númer 142 á
styrkleikalista FIFA, við númer 80.
Slæm tíðindi.
ÉG er með huGmynd sem ég vil
gauka að þér, Eyjólfur. Leggðu leik-
inn upp eins og andstæðingurinn sé
Brasilía, Þýskaland, England – jafn-
vel heimsúrvalið. Cech er í markinu,
hægri kantmaðurinn er Ronaldo,
Makalele er djúpur á miðjunni, Wa-
yne Rooney og Thierry Henry eru
frammi (eða eitthvað í þá veru). Lát-
um þá stjórna leiknum. Við hrein-
lega kunnum það ekki. Liggjum í
vörn. Spilum 8-1-1, 9-1-0, 10-0-0.
Bara eitthvað sem hefur virkað svo
vel gegn risaþjóðunum. Þetta getur
varla verið svo erfitt.
Í stað þess að synGja „Ó guð vors
land“ o.s.frv. þegar þjóðsöngurinn
verður spilaður fyrir leikinn, segðu
þá strákunum að endurtaka í sí-
fellu: „Þeir eru betri, þeir eru betri,
þeir eru betri.“ Skrifaðu „Davíð“ á
allar íslensku landsliðstreyjurnar,
„Golíat“ á treyjur Liechtenstein-
anna. Sannfærðu þá um að Liecht-
enstein sé risi sem sé að vakna.
Verðandi stórveldi í alþjóðaknatt-
spyrnu. Við séum í rauninni bara
skíturinn undir skónum þeirra,
grasgrænan á
sokkunum, svit-
inn í handar-
krikunum.
ef þetta virk-
ar ekki þá er
Guðjón Þórð-
arson í síma-
skránni.
Kristján Hrafn Guðmundsson
er með hugmynd fyrir
Eyjólf Sverrisson.
Íhaldið og spillingin
MaGnúS
StEfánSSon
þingmaður skrifar
„Þetta er öll spillingin í
augum íhaldsins. Þeir
tala ekki um innvígða
sjálfstæðismenn sem
tengjast í reynd mun
stærri eignarhlutum
í fyrirtækinu.“
DV Umræða MIÐVIKudagur 17. OKTÓBEr 2007 21
Slegið á létta strengi dagur B. Eggertsson, borgarstjóri reykjavíkur, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson slógu
á létta strengi þegar Vilhjálmur afhenti degi lyklavöldin að skrifstofu borgarstjóra fyrir framan fjölmiðla.
DV-MYND STEFÁN
myndin
miðvikudagurinn 17. október 2007
afmælisbörn dagsins
DV fyrir
25 árum
spurningin
„Ég hélt að Brútus væri að finna í
Valhöll,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, for-
maður borgarráðs, um ásakanir
sjálfstæðismanna í borgarstjórn um að
hann sé svikahrappur.
Ert þú Brútus?
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
fyrrverandi borgarstjóri, fær
plúsinn fyrir það hreinlega að koma
standandi út úr þeirri orrahríð sem hann
hefur staðið í síðustu daga og vikur.
Vilhjálmur hyggst láta til sín taka í
minnihlutanum í borgarstjórn á ný.
80 ára í dag
Ólafur jÓhannsson
fyrrv. aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á
Siglufirði
n Ólafur fæddist á Skeiði í Fljótum.
Hann lauk prófum frá Lögregluskólan-
um 1963 og starfaði við löggæslu á
Siglufirði síðan. Hann var formaður
Starfsmannafélags Siglufjarðarkaup-
staðar, gegndi trúnaðarstörfum innan
Lögreglufélags Norðurlands vestra og
var formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar
og stjórnarformaður Siglufjarðardeildar
KEa.
n Eiginkona Ólafs var anna Björnsdóttir,
f. 1921, húsmóðir.
n Börn Ólafs og Önnu eru Björn
Sigurður, f. 17.6. 1952; Kjartan Smári, f.
24.4. 1954; Sigrún gunnhildur, f. 27.5.
1956; Sigríður Elva, f. 9.11. 1958; Jónína
Sóley, f. 9.12. 1960; Ólafur Ásgeir, f. 10.7.
1963.
n Sonur Ólafs og Sólveigar Márusdóttur
er Ómar, f. 24.5. 1951, d. 4.8. 2002.
n Sambýliskona Ólafs er Sigríður Kristín
Björnsdóttir, f. 11.7. 1940, saumakona
við Sjúkrahús Siglufjarðar.
n Foreldrar Ólafs voru Jóhann
Benediktsson, f. 1894, d. 1964, bóndi á
Skeiði og víðar í Fljótum, og k.h.,
Sigríður Jónsdóttir, f. 1890, d. 1939,
húsfreyja.
n Ólafur verður að heiman á afmælis-
daginn.
50 ára í dag
jÓhann maGnússon
verktaki í Þorlákshöfn
n Jóhann fæddist í Vestmannaeyjum og
ólst þar upp en hefur átt heima í
Þorlákshöfn frá 1969. Jóhann hefur
lengst af verið verktaki við húsasmíðar.
n Eiginkona Jóhanns er Sigríður
Karlsdóttir, f. 1961. Synir Jóhanns og
Sigríðar eru auðunn, f. 1980, húsasmið-
ur í Þorlákshöfn; Jóhann arnar, f. 1986,
smiður í Þorlákshöfn; Svavar Berg, f.
1996, nemi. Jóhann og Sigríður eiga tvö
barnabörn.
n Foreldar Jóhanns eru Magnús
Sigurðsson, vörubílstjóri í Þorlákshöfn,
og k.h. anna Jóhannsdóttir húsmóðir.
n Jóhann og Sigríður taka á móti
gestum í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn
laugardaginn 20.10. frá kl. 19.00.
40 ára í dag
Bjarni danÍel danÍelsson
búfræðingur og umsjónarmaður
n Bjarni fæddist í reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk búrfræðiprófi frá
Hvanneyri 1988. Hann er nú umsjónar-
maður orlofssvæðis Félags bókagerðar-
manna í Laugardal, golfvallarstjóri og
skólabílstjóri, búsettur að Midal í
Laugardal.
n Börn Bjarna daníels eru Þorsteinn, f.
1991; daníela Karen, f. 1993, og Bjarni
Smári, f. 2003.
n Foreldrar Bjarna: daníel Kjartansson, f.
1940, teppalagningarmaður í
Hveragerði, og Theodóra Kristinsdóttir,
f. 1940, d. 2006, sagnfræðingur.
n Í dag hefst undirbúningstímabil að
stórafmæli sem verður haldið 17.
október 2008.
50 ára í dag
AleksAnder ZAikin
Andrius BertAvicius
Björn kArl ÞórðArson
ceZAry Antoni GAdulA
eddA BárA siGurBjörnsdóttir
einAr HAfsteinsson
Guðmundur rAGnAr ólAfsson
HArAldur siGurðsson
HelGA óskArsdóttir
jóHAnnA AmelíA kjArtAnsdóttir
jónA BjörG siGurðArdóttir
jörundur Guðmundsson
kristín HAllA dAníelsdóttir
lAHcen jónAs AnBAri
miroslAwA sylwiA BoreckA
rAGnHildur B. siGtryGGsdóttir
rúnAr j. AðAlsteinsson
siGurlAuG sveinsdóttir
stefAníA siGríður BjArnAdóttir
ástA Pétursdóttir
P
lús
eð
a m
ínu
s