Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Side 21
FJÁRMÁL
Stjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga
Á fundi fulltrúaráðs sambandsins 10. júní sl. voru bæj-
arstjórarnir Sigurgeir Sigurðsson á Seltjarnarnesi og
Snorri Bjöm Sigurðsson á Sauðárkróki kosnir í stjóm
Innheimtustofnunar sveitarfélaga til fjögurra ára. Félags-
málaráðherra hefur skipað í stjórnina Húnboga Þor-
steinsson, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu.
Varamenn fulltrúa sambandsins í sömu röð og aðalmenn
voru kosnir sveitarstjórarnir Jóhanna Reynisdóttir í
Vatnsleysustrandarhreppi og Stefán Gíslason í Hólma-
víkurhreppi.
Varafulltrúi Húnboga Þorsteinssonar er Sesselja Áma-
dóttir, deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu.
Sem endurskoðendur Innheimtustofnunar sveitarfé-
laga til fjögurra ára vom kosnir bæjarstjóramir Jóhann
Sigurjónsson í Mosfellsbæ og Einar Mathiesen í Hvera-
gerði og sem varafulltrúar þeirra þau Signður Jensdóttir,
forseti bæjarstjórnar á Selfossi, og Jón Pétur Líndal,
sveitarstjóri í Kjalameshreppi.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þakkaði Sigurjóni Péturs-
syni, fráfarandi stjórnarmanni, fyrir vel unnin störf í
stjóm Innheimtustofnunarinnar en hann hafði átt sæti í
stjórn stofnunarinnar frá ársbyrjun 1989 sem fulltrúi
sambandsins.
Aðsetur Innheimtustofnunar sveitarfélaga er að
Lágmúla 9 í Reykjavík. Forstjóri hennar er Árni
Guðjónsson lögfræðingur.
Áhugamenn um sveitarstiórnarmál!
✓
Ut eru komnir Sveitarsjóðareikningar 1993
I ritinu er gerð grein fyrir fjárhagslegri afkomu sveitarfélaga árið 1993, bæði í heild og eftir
íbúafjölda. Tekjum, gjöldum, eignum og skuldum sveitar-
félaga er skipt eftir kjördæmum, kaupstöðum og sýslum.
Einnig er fjallað um þjónustu hvers sveitarfélags á sviði
dagvistar, félagsmála, fjárhagsaðstoðar o.fl.
Ymislegt athyglisvert kemur fram eins og að:
Áriðl993 voru gjöld sveitarfélaga 5,7 milljarðar umfram
tekjur og er það rösklega tvöfalt meiri halli en árið áður.
Heimili sem nutu fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga 1993 voru
tæplega 4.800 og hafði fjölgað um 20% frá árinu áður.
í árslok 1993 var peningaleg staða sveitarfélaga
neikvæðari eftir því sem þau voru fjölmennari.
Ritið kemur út árlega, er um 350 bls. og kostar 1.500 kr.
Hagstofa íslands, Skuggasundi 3, 150 Reykjavík Sími: 560 9860 Bréfasími: 562 3312
1 47