Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Blaðsíða 53
FRA LAN DSHLUTASAMTOKUNUM
Kveðja til Jóhanns T. Bjamasonar
Starfslok 31. mars 1995
Heiðursmann horskan nefni
hæverskan, vitran mann.
Loforð það ljúft ég efni
að letra fá orð um hann.
Ihugull öðrum fremri
útséður maður sá
með frístundir flestum skemmri
en fullnustu verk hans ná.
Viðkynning veitti þeim gildi,
sem voru í nálægð við hann.
Veitandi öðrum hann vildi
vera, það sérhver fann.
Hann átti í útistöðum
eigi við nokkum mann
þótt stæði í straumsveipi hröðum
stefnufast hvergi rann.
Með viðmótu Ijúfu gat laðað
liðsmenn til fylgis við sig.
Hiklaust gat verkum þeim hraðað
sem hrint höfðu aðrir á svig.
Sálfræðikreppu og kveini
og krossferðum sinnti ekki hót.
Hann innvígðist orku í leyni
í uppvexti úr vestfirskri rót.
Með hugró í heimanfylgju
hugrakkur veg sinn gekk.
Umhverfisvelgju og ylgju
sá athafnamaður fékk.
Með stuðningi staðfastra manna
var stefna á verkefnið sett
af kunnáttu lét hann svo kanna
kjama og lögbundinn rétt.
Stórvirki og stefnumál kynnti
stjómsýslumiðstöðvar sá
því áformi af atorku sinnti
og árangur liðsmenn nú sjá.
Og vita svo Vestfirðingar
hver vakti upp jarðgangagerð
og hafði þar hugmyndir slyngar
og handlék þar skjöld og sverð.
Hamingju og heillaveginn
þú hlýtur þá ósk og von.
Játning með jarteikn er dregin
Jóhann T. Bjarnason.
Þróttmikill flokkur hér þingar
þögn er og tilfinning klökk.
Vinir og Vestfirðingar
þér virðingu tjá og þökk.
Hjörtur Þórarinsson.
Eiríkur Finnur Greipsson framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Vestfirðinga
Eiríkur Finnur Greipsson, oddviti
Flateyrarhrepps, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga (FV) frá 1. apríl
sl. Jóhann T. Bjarnason, sem verið
hefur framkvæmdastjóri sambands-
ins frá 1. ágúst 1972, hefur látið af
störfum að eigin ósk.
Eiríkur er fæddur á Flateyri 20. október 1953. Foreldr-
ar hans eru Guðfinna P. Hinriksdóttir og Greipur Þ.
Guðbjartsson, fv. kaupmaður á Flateyri. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1973,
stundaði nám í verkfræðideild Háskóla íslands eftir
stúdentspróf og lauk prófi frá Tækniskóla Islands árið
1980 sem byggingatæknifræðingur.
Að loknu námi starfaði Eiríkur við tæknistörf og
kennslu á Flateyri til ársins 1983 en þá hóf hann störf hjá
Hjálmi hf. á Flateyri, fyrst við skrifstofustörf en síðar
sem framkvæmdastjóri. Við sameiningu Hjálms hf. og
Fiskvinnslunnar Kambs hf. árið 1994 varð hann aðstoð-
arframkvæmdastjóri Kambs hf. uns hann var ráðinn til
FV.
Eiríkur sat í hreppsnefnd Flateyrarhrepps frá árinu
1982 til júní 1995, þar af sem oddviti 1982 til 1986 og
frá 1990 til 1995. Hann hefur verið formaður stjómar
Orkubús Vestfjarða frá árinu 1988.
Eiríkur er kvæntur Guðlaugu Auðunsdóttur og eiga
þau þrjá syni.
1 79