Sveitarstjórnarmál - 01.09.1995, Side 60
UMHVERFISMÁL
Mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda
Þóroddur F Þóroddsson, sérfrœðingur í mati á umhverfis-
áhrifum, Skipulagi ríkisins
Athygli er vakin á því að sam-
kvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 63/1993, er skylt að
meta umhverfisáhrif tiltekinna
framkvæmda. Nú eru að koma út
hjá Skipulagi ríkisins leiðbeiningar
um mat á umhverfisáhrifum og
hvemig að því skuli standa og fást
þær á skrifstofu Skipulagsins.
Matsskyldar framkvæmdir þarf
að tilkynna til embættis skipulags-
stjóra ríkisins til athugunar ásamt
matsskýrslu og óska úrskurðar
skipulagsstjóra áður en fram-
kvæmdaleyfi er veitt. í matsskýrslu
er gefið yfirlit yfir framkvæmdina
og umhverfisáhrif hennar metin. Að
undanförnu hafa margar fram-
kvæmdir verið tilkynntar til embætt-
is skipulagsstjóra en jafnframt er
kunnugt um ýmsar framkvæmdir
þar sem mat á umhverfisáhrifum er
í vinnslu. A það bæði við um fram-
kvæmdir sem ljúka á á þessu ári en
einnig 1996 eða síðar.
Þegar unnið er mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmdar er í mörgum
tilfellum nauðsynlegt að nota sum-
arið til þess að afla gagna, svo sem
um námur, náttúrufar, fomleifar og
fleira. Því er mikilvægt að huga að
mati í tíma. Þess skal og gætt að
framkvæmdaraðilar kunna að þurfa
á aðstoð ýmissa sérfræðinga að
halda við undirbúning matsins, svo
sem við framangreinda upplýsinga-
söfnun. Hvatt er til þess að farið sé
tímanlega af stað því ýmsar kannan-
ir eru árstíðabundnar og krefjast
vinnu sérfræðinga sem framkvæmd-
araðilinn verður að tryggja sér í
tíma.
Eftirfarandi framkvæmdir eru
ávallt matsskyldar samkvæmt 5. gr.
laga um mat á umhverfisáhrifum:
1. Vatnsorkuvirkjanir með uppsett
afl 10 MW eða meira eða vatns-
miðlanir þar sem meira en 3 km2
lands fara undir vatn vegna stíflu-
mannvirkja og/eða breytinga á ár-
farvegi.
2. Jarðvarmavirkjanir með varma-
afl 25 MW eða meira að hráorku
eða 10 MW uppsett afl eða meira og
önnur varmaorkuver með 10 MW
uppsett afl eða meira.
3. Lagning háspennulínu með 33
kV spennu eða hærri.
4. Éfnistökustaðir (malarnám) á
landi 50.000 m2 eða stærri að flatar-
máli eða þar sem fyrirhuguð efn-
istaka er meiri en 150.000 m3.
5. Þjónustumiðstöðvar fyrir ferða-
menn utan byggða.
6. Förgunarstöðvar fyrir eitraðan
og hættulegan úrgang og almennar
sorpeyðingarstöðvar þar sem skipu-
leg förgun eða urðun á sorpi og úr-
gangi fer fram.
7. Verksmiðjur þar sem fram fer
frum- eða endurbræðsla á steypu-
jámi, stáli og áli.
8. Efnaverksmiðjur.
9. Lagning nýrra vega, jámbrauta
og flugvalla.
10. Hafnir sem skip stærri en 1.350
tonn geta siglt um.
Þá getur umhverfisráðherra
ákveðið að tiltekin framkvæmd eða
framkvæmdir, sem kunna að hafa í
för með sér umtalsverð áhrif á um-
hverfi, náttúruauðlindir og samfé-
lag, en ekki er getið hér að framan,
verði háðar mati samkvæmt lögun-
um. Aður en slík ákvörðun er tekin
skal ráðherra leita álits skipulags-
stjóra og umsagnar framkvæmdar-
aðila, leyfisveitanda og hlutaðeig-
andi sveitarstjóma. Hver sem er get-
ur vísað fyrirhugaðri framkvæmd til
umhverfisráðherra og óskað úr-
skurðar hans.
Embætti skipulagsstjóra veitir all-
ar nánari upplýsingar um mat á um-
hverfisáhrifum framkvæmda og
hvetur til að þjónusta þess sé nýtt.
UMFERÐARMÁL
Fræðslufundir fyrir
skólabílstjóra
Umferðarráð hefur tekið höndum
saman við Samband sveitarfélaga í
Norðurlandskjördæmi vestra
(SSNV) og EYÞING Samband
sveitarfélaga í Norðurlandskjör-
dæmi eystra um fræðslufundi fyrir
skólabflstjóra. Fundimir em haldnir
í samstarfi við fræðsluskrifstofur
kjördæmanna. Hinn fyrri verður
haldinn á Hótel Blönduósi laugar-
daginn 26. ágúst og hinn síðari í
Stórutjarnaskóla laugardaginn 2.
september.
A báðum fræðslufundunum verða
flutt erindi meðal annars um skóla-
akstur, reglur um hann og um sam-
skipti skólastjóra og skólabflstjóra,
um hlutverk og ábyrgð skólabíl-
stjórans, um upphaf skólaaksturs að
hausti, um viðhorf skólabílstjóra,
viðhorf og skoðanir foreldra, um
búnað, viðhald og tryggingar bif-
reiða, ökuréttindi og skyldur skóla-
bflstjóra. Loks verður kynnt skyndi-
hjálp og viðbrögð við slysum.
Þátttökugjald er 3.000 krónur.
Þátttöku skal tilkynna skrifstofu
SSNV í síma 451 2830 og EY-
ÞINGS í síma 461 2733.
1 86