Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Síða 4

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Síða 4
Efnisyfirlit Um fjögurra milljarða króna halli ............................. Kaupstaður verður bær ......................................... Forystugrein: Þórður Skúlason ................................. Sameining sveitarfélaga: Heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði Sameining samþykkt í Búðahreppi og Stöðvarhreppi .............. Tekjustofnar sveitarfélaga: Endurskoðun Ijúki um mitt næsta ár Sameining sveitarfélaga: Áhersla á sjálfsforræði sveitarfélaganna Níu sveitarstjórnarmenn verða alþingismenn .................... Fráveitumál: Sjálfsagt að leita ódýrari lausna ................ Skútustaðahreppur: Náttúran gefur og tekur .................... Sérhönnuð upplýsinga- og vinnslukerfi fyrir sveitarfélög....... Viðtal mánaðarins: „Get illa horft á ónotuð tækifæri" ......... Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um ráðstöfun skólahúsnæðis Fullt vald sveitarstjórnar til að breyta skipan í nefndir ..... Orkuveita Reykjavíkur: Milljarða uppbygging framundan ......... Hrísey: „Með framsýni og fyrirhyggju" ......................... Listasafnið á Akureyri: Öflug listmiðlun á landsbyggðinni . . . . Kópavogsbær: Miðbæjarsvæði yfir Gjána ......................... Danir kynntu sér rafræna stjórnsýslu .......................... Bls. 4 4 5 6 10 12 13 13 14 16 18 20 22 23 24 26 Um fjögurra milljarða halli Að teknu tilliti til afskrifta eru líkur til að rekstrarhalli sveitarfélaga hér á landi muni verða rúmir fjórir milljarðar króna á árinu 2002. Útsvarstekjur sveitarfélaganna eru metnar um 54,4 milljarðar króna á árinu 2002. Er það rúmlega 7% hækkun frá fyrra ári. Skatttekjur sveitarfélaganna á árinu eru metnar um 72,9 milljarðar, sem er rúm- lega 8% hækkun frá fyrra ári. Þjónustu- tekjur eru metnar á um 12,5 milljarða en þær eru um 15% af tekjum sveitarfélag- anna. Greiðslur launa og launatengdra gjalda voru 43,3 milljarðar króna, eða rétt rúmur helmingur af tekjum sveitarfélag- anna. Þetta kemur meðal annars fram f bráðabirgðatölum úr uppgjörum endur- skoðaðra ársreikninga sveitarfélaga fyrir árið 2002. Einnig kemur fram að fjárfest- ingar sveitarsjóða eru metnar á tæpa ell- efu milljarða króna á árinu 2002, sem er nokkuð lægri upphæð en á árinu á undan. Skuldir sveitarfélaganna í lok ársins 2002 eru metnar rúmir 70 milljarðar króna. í spá fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir að útsvarstekjur hækki um 5% frá fyrra ári og tekjur sveitarfélaganna hækki í heild um rúm 7% og verði um 92 millj- arðar króna. Gert er ráð fyrir að gjöldin verði um 90 milljarðar, sem einnig er hækkun um rúm 5% frá fyrra ári. Búist er við að heldur muni draga úr fjárfestingum sveitarfélaga á þessu ári miðað við fyrra ár og að þær verði innan við 10 milljarðar króna. Þá er gert ráð fyrir að skuldir sveit- arfélaganna verði um 72 til 73 milljarðar króna í árslok 2003. 28 ------------ 30 Kaupstaður 30 verður bær Félagsmálaráðuneytið staðfesti í byrjun apríl ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkur- kaupstaðar frá 12. mars 2003 um breyt- ingu á nafni sveitarfélagsins. Nýtt heiti sveitarfélagsins er Grindavíkurbær. 4

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.