Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 5

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 5
Forystugrein Að afloknum alþingiskosningum Samband íslenskra sveitarfélaga óskar al- þingismönnum til hamingju með nýafstað- ið kjör til Alþingis og væntir þess að eiga við þá góð og ánægjuleg samskipti á yfir- standandi kjörtímabili. Alþingismenn eiga margháttuð sam- skipti við Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarstjórnarmenn og afar mikilvægt er að þeir hlusti eftir og taki tillit til sjónar- miða þeirra. Náið samráð þarf að eiga sér stað í aðdraganda að setningu laga sem sveitarfélögin eiga að vinna eftir. Slíkt samráð er ekki sfður þýðingarmikið varð- andi alla stefnumörkun í málefnum hins opinbera í heild sinni, það er ríkis og sveitarfélaga og tekju- og verkaskiptingu þeirra í milli. Málefni sveitarfélaganna voru ekki mik- ið til umfjöllunar í aðdraganda alþingis- kosninganna 10. maí síðastliðinn. Um- ræða um fyrirhugaðar skattalækkanir ríkis- sjóðs, veg.na góðrar og batnandi afkomu hans, var þeim mun fyrirferðarmeiri. Af einhverri ástæðu var erfiðri fjárhagsstöðu sveitarfélaganna ekki blandað í þá um- ræðu nema að mjög takmörkuðu leyti. Þegar á heildina er litið búa flest sveit- arfélög við þrönga fjárhagslega stöðu og núverandi tekjustofnar duga ekki til að mæta þeim skyldum sem lagðar hafa verið á herðar þeirra. Á sama tíma hafa aðgerðir ríkisvaldsins í skattamálum skert tekju- stofna þeirra. Þessa staðreynd verður að hafa í huga þegar rætt er um fyrirhugaðar skattalækkanir ríkisins og skiptingu skatt- tekna milli ríkis og sveitarfélaga. í ályktun frá fulltrúaráðsfundi sambandsins, sem haldinn var 10. apríl síðastliðinn, er lagt til að sambandið taki upp viðræður við nýja ríkisstjórn um að hafin verði vinna við heildarendurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Á fulltrúaráðsfundinum var jafnframt samþykkt ályktun um sameiningu sveitar- félaga. Þar er áréttuð fyrri stefnumörkun sambandsins um að unnið skuli að stækk- un og eflingu sveitarfélaganna þannig að hvert sveitarfélag myndi heildstætt at- vinnu- og þjónustusvæði. í ályktuninni er lagt til að sambandið taki upp viðræður við nýja ríkisstjórn um að hafin verði vinna við sérstakt átak í sameiningu sveit- arfélaga og fjármögnun þess verkefnis og fylgir henni útfærð aðgerðaáætlun um hvernig að því verkefni skuli unnið. Hér eru nefnd til sögunnar mál sem koma til með að verða fyrirferðarmikil í samskiptum ríkis og sveitarfélaga á næst- unni, það er tekju- og verkaskipting ríkis og sveitarfélaga og sveitarfélagaskipanin í landinu. Ýmis fleiri mál á vettvangi sveit- arstjórnarstigsins hefði verið hægt að til- greina sem alþingismenn eiga eftir að fá til umfjöllunar fyrr en síðar. Sjálfsákvörðunarréttur sveitarstjórna er tryggður í stjórnarskrá og sveitarstjórnar- lögum. Alþingismenn eru hvattir til að hafa þá staðreynd í huga við lagasetningu og öll önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem að sveitarfélögunum snúa. Það er skylda lög- gjafarvaldsins að tryggja það að sveitarfé- lögin hafi á hverjum tíma fjárhagslegt svigrúm til að sinna þeim fjölmörgu verk- efnum sem þeim er gert að sinna. Eitt mikilvægasta verkefni alþingis- manna er að vinna að framþróun þjóðfé- lagsins og skynsamlegri byggðaþróun í landinu. Efling sveitarstjórnarstigsins á ís- landi, í samvinnu við sveitarstjórnarmenn, verður að vera eitt af forgangsverkefnum þeirra. Kjörnum alþingismönnum er óskað velfarnaðar í þeim mikilvægu störfum sem þeirra bíða á kjörtímabilinu. Þórbur Skúlason framkvæmdastjóri. SVEITARSTJÓRNARMÁL Útgefandi: Samband íslenskra sveitarfélaga Auglýsingar: P. J. Markaðs- og auglýsingaþjónusta Háaleitisbraut 11-13 • 108 Reykjavík. Símar: 566 8262 & 861 8262 Sími: 515 4900 • Bréfasfmi: 515 4903 Netfang: pj@pj.is Netfang: samband@samband.is • Veffang: www.samband.is Umbrot og prentun: Ritstjórar: Magnús Karel Hannesson (ábm.) Alprent, Clerárgötu 24, 600 Akureyri, sími 462 2844. magnus@samband.is Dreifing: íslandspóstur Bragi V. Bergmann Forsíðan: Kristinn Árnason, oddviti Hríseyjarhrepps (t.h.) og Ómar bróðir bragi@fremri.is hans búa sig undir að flagga íslenska fánanum að morgni árlegrar Ritstjórn: Fremri kynningarþjónusta Fullveldishátíðar Hríseyinga, sem er haldin í júlí ár hvert. Furuvöllum 13 600 Akureyri Mynd: Myndrún. Sími 461 3666 • Bréfasími: 461 3667 Tímaritið Sveitarstjórnarmál kemur út mánaðarlega, að undanskildum Netfang: fremri@fremri.is júlí- og ágústmánuði. Áskriftarsíminn er 461 3666. 5

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.