Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Side 8
Á þessu korti má sjá hugmyndina sem Þórður Skúlason hefur sett fram um að landinu verði skipt í 35 sveitarfélög þar sem horft er til landfræðilegra aðstæðna og
! sumum tilvikum félagslegra þátta með það að markmiði að sveitarfélög eigi að mynda heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði. Vegna landfræðilegra aðstæðna og
strjálbýlis eru þrjú „sveitarfélög" á þessu korti með innan við þúsund íbúa.
kosti leitað annarra leiða í samráði við rík-
isvaldið."
Skrefin hefðu þurft
að vera stærri
- Hefur sameining sveitarfélaga að undan-
förnu ekki stuðlað að myndun heildstæðra
atvinnu- og þjónustusvæða?
„Ef við horfum til þeirra sameininga
sem orðið hafa á síðustu misserum þá
verður að segjast eins og er að margar
þeirra hafa ekki leitt til þess að sveitarfé-
lögin mynduðu heildstæð atvinnu- og
þjónustusvæði. Nefna má sem dæmi sam-
einingu Húsavíkurkaupstaðar annars vegar
og Blönduósbæjar hins vegar við fámenna
nágrannahreppa, tilurð Þingeyjarsveitar,
Hörgárbyggðar, Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps og Rangárþings ytra þar
sem Ásahreppur var ekki með.
Segja má að þetta séu skref í
áttina en Ijóst er að þau hefðu
þurft að vera stærri."
Undirbúningsnefnd og
fjármögnun sameiningarátaks
- Hvernig ætlar sambandið nú að fylgja
stefnumörkun sinni eftir?
„Frá því var gengið á fulltrúaráðsfund-
inum 10. apríl síðastliðinn með samþykkt
ályktunar um sérstakt átak í sameiningu
sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að tekn-
ar verði upp viðræður við nýja ríkisstjórn
um framkvæmd og fjármögnun sérstaks
átaks í sameiningu sveitarfélaga sem
standi yfir fram á árið 2005. Lagt er til að
fulltrúar ríkis og sveitarfélaga komi á fót
undirbúningsnefnd þegar í sumar og að
fyrir næstu áramót verði samþykkt lög um
þetta sérstaka átaksverkefni. Að þeim lög-
um samþykktum taki verkefnisstjórn við
vinnu undirbúningsnefndarinnar og um
hlutverk hennar, valdsvið og atkvæða-
greiðslu verði fjallað í lögunum. Gert er
ráð fyrir að undirbúningsnefndin og verk-
efnisstjórnin hafi náið samráð við hlutað-
eigandi sveitarstjórnir um tillögugerð um
sameiningu og kynningu þeirra og að at-
kvæðagreiðslur um væntanlegar samein-
ingartillögur fari allar fram á sama tíma.
Gengið er út frá því að meirihluti íbúa á
því svæði, sem tillaga um sameiningu tek-
urtil, ráði niðurstöðu atkvæðagreiðslunn-
ar. Jafnframt var samþykkt að leitað verði
leiða til að tryggja rétt sveitarstjórna til að
hafna þátttöku í atkvæðagreiðslu."
Atkvæði talin úr einum potti
- Er sambandið þá að hverfa frá því að
sameining sveitarfélaga verði framkvæmd
með frjálsum hætti eins og verið hefur?
„Nei, sambandið er einungis að útfæra
fyrri samþykktir, stefnumörkun sem sam-
þykkt var 1998 og ítrekuð og nánar skil-
greind á síðastliðnu ári. í ályktuninni um
sérstakt átak í sameiningu sveitarfélaga er
gert ráð fyrir að verkefnisstjórn móti tillög-
ur um að sveitarfélög verði sameinuð
þannig að þau myndi heildstæð atvinnu-
og þjónustusvæði og til að
leita annarra leiða en farnar
hafa verið til þessa er gert ráð
fyrir að atkvæði um samein-
ingu verði talin úr einum potti
en að einstakar sveitarstjórnir
geti hafnað þátttöku í atkvæða-
greiðslu. Síðan kunna að vera mismunandi
skoðanir á því hvort lýðræðislegra sé að
meirihluti íbúa á því svæði, sem samein-
ingartillaga tekur til, ráði niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar eða að íbúar einstakra
„Ég komst að þeirri niðurstöðu að skynsamlegt
gæti verið að skipta landinu niður í um 35
sveitarfélög."
8