Vasabókin - 01.11.1936, Blaðsíða 2
z
VASABÓKIN
VASABÓKARMÁLIÐ
Kaflar úr fyrirlestrum þeim sem
Gísli Bjarnason, fulltrúi í stjórn-
arráöinu flutti á ýmsum stööum
um
vasabókina og tugthúsfangana
(Eftir minni eins áheyranda)
Heil Hitler!
Et að lögskýringar þær, sem ég kem
með á þessum stað i sambandi við svik
og þjófnaði þá, sem ég skýri frá, reyn-
ast ekki réttar, þá er það ekki mín sök
heldur Einars Arnórssonar prófessors,
Bem kendi mér lögspekina.........
. . . Þið kannist við Einar í Hvals-
nesi, — það er bóndi. — Stór bóndi með
stór kinnbein. — Hann skrifaði bréf
1928 eða 1929, — því var stolið og
það var birt i Tímanum. — — 267.
gr. hegningarlaganna á hér við, — 4
mánaða fángelsi, — takk! En það var
engin kærður og það fékk engin fáng.
elsi þvi þetta var framsóknarfólk. . . .
, . . Einu sinni var til 40 þús. kr*
víxill, hann var l1/* meter álengd, hann
var svona langur af því að á honum
voru 80 framsóknarmenn, frá 80 heimil-
um. Hvað haldið þið að hafi orðið um
þennan víxil? — Þið vitið það ekki en
ég veit það. — Hann hvarf þegar Þór
var keyptur!
Þegar Þór var keyptur, fylgdu í kauk-
unum 150 tonn af kolum. Hvað vaið
af þesBum kolum? Þeim var brent.
Vitið þið hverjir brendu kolunum? —
Spyrjið þið þá, sem á víxlinum voru.
— Hegningarlagabrot?..........
.... Fylgið okkur þjóðernisBÍnnum
þvi við erum það sem koma skal. —
Hver hefur týnt vasabók? — Ekki fundu
þjóðernissinnar hana, — og ekki stal ég
henni, — en fyrír hvað eru *þá fang-
elsanir og hvers vegna eru húsrann-
sóknir? Þvi er þjóðernisbörnum haldið
mjólkurlausum i sjö tíma yfirheyrslu?
Ég 8pyr, en hver svarar? — Kommun-
istar stálu milliríkja-samningi og birtu
hann. — takmarkalaus glæpur, — enn
þeim er ekki hengt af því þeir eru á-
lítnir svo ómerkilegir, enn okkur þjóð-
erníssinnum er hengt fvrir ímyndaðan
glæp, af því við erum álitnir svo merki-
legir. Hver skilur slíkt og þvílíkt.
. . . Hvert þjóðfélag er illa á vegi
statt, þegar svikin og þjófnaðirnir koma
ofan frá, byrja á hærri stöðum og fara
svo hægt og bítandi alla leið niður til
almúgans. — Ég er búinn að vera 10
ár i etjórnarráðinu, — auðvitað mértil
stórskaða, — en ég var að læra og ég
vildi fylgjast með svindlinu til endaloka,
þó ekki til þess að læra það og verða
svo máski sjálfur svindlaii, heldur til
þess að þekkingin yrði hirtingarvöndur
í hendi minni, þegar fylling tímans
kemur og völdin eru komin í hendur
okkar þjóðernissinna.......
. . . Fyrir nokkrum árum var brot-
ist inn í Varðarhúsið og stolið þaðan
leyniskjölum íhaldsflokksins og þau birt
i Alþýðublaðinu. Réttar-rannsóknin gat
ekki leitt í ljós hvort hér væri um inn-
brot eða útbrot að ræða. Nú vítið þið
eins vel og ég að innbrot eru miklu
hættulegri en útbrot, Bem orsaka venju-
lega viðkunnanlegan kláða í hörundinu.
--------Hverjum var hengt fyrir þetta
innbrot? Engum, af því að þá vorum
við þjóðernissinnar ekki fæddír, annars
hefðum við fengið smjörþefinn af þessu
innbroti og engin útbrot komið til
greina.............
. . . Skrifborð Sveins Árnasonar, fiski-
matsmanns á Seyðisfirði, var brotið upp
og úr þvi stolið trúnaðarbréfi frá sjálf-
stæðisflokknum til Sveins. Ég hefihér
við hendina paragraffinn, sem á við
það að brjóta upp skrifborð: — tveggja
ára tukthús, og ef þið trúið mér ekki
þá spyrjið Einar.
— Hvað er svo ein litil vasabók, sem
glatast eða gleymist á ólíklegum stað,
hvað er hún eða hvers virði er hún á
móti öllum þessum óhengdu glæpa-ó-
sköpum, sem ég hefi nefnt. Viljið þið
svara því?
En þó vasabók týnist, eða henni sé
' stolið, þá þurfa ekki endilega þjóðernis-
sinnar að hafa stolið henni, við fengum
hana senda i pósti og týndum henni
aftur, — frá lögfræðilegu sjónarmiði
gat vasabókin alveg eins týnst tvisvar
eins og einu sinni.
. . . En Eysteinn fékk lánaða bók
hjá Jónasi og hann lánaði hana manni,
sá maður lánaði hana manni eins og
gengur og gerist og svo átti að pant-
setja hana. eða selja fvrir brennivín.
Þetta er nú bara venjuleg æfisaga ýmsra
bóka og ýmsra manna, vistaskifti þeirra
þegar þörfin krefur og eru þá oft sein-
færar löglegar leiðir, ekki meira um
það. — En vitið þið hvað þessi bók
hét? — Nei, það vitið þið ekki, — En
ég veit það. — Hún hét: — »Fótatak
lýginnar*. Fótatak lýginnar, — erþað
ekki það sem við heyrum í kringum
okkur alia æfina út, stundum- þungt og
ákveðið eins og alt skuli undan láta, —
en stundum er líka læðst á sokkaleist-
unum................ .
------Kæru tilheyrendur, hvað sem
má nú að öllum flokkum finna, þá veit
ég að þið eruð mér sammála nm það
að við þjóðernissinnar erum þó, þegar
á alt er litið, efnilegasta arfaklóin i
rófugarði þjóðarinnar og því skylduð
þið þá ekki fyigja okkur að málum,
fylkja ykkur og börnum ykkar undir
okkar merki.
I 10 ár hefi ég verið í stjórnarráðinu
til þess að læra barnalærdóm sviksem-
innar það getur vel verið að ég sé bara
búinn með fræðin, en ég ér búinn að
læra nóg, þess vegna stend ég hér og
ég get ekki annað, ég vil frelsa þetta
fólk sem er hér um bil alt af ariskum
ættstofni — og ber í sjálfu sér hrein-
leikann og göfgina. — En hvernig á
nokkur hlutur að njóta sín meðan rétt-
arfarið er eins spilt og raun ber vitni
um, þegar margir menn eru fángelsaðir
út af imynduðum vasabókarþjófnaði,
af því þeir eru þjóðernissinnar, — en
svo eru aðrir látnir sleppa þó þeir hafi
sto ið viðlíka verðmæti og Grimsey eða
eða Gullfoss.
Vasabókin hefur aldrei í byrjunkost-
að meira en 50 aura, — samt kostaðí
hvarf hennar 17 húsrannsóknir. Ef
það væri stolið 30 kr. dívan á fornsöl-
unni hjá Jóhanni í Brautarholti, ætti
það að kosta 920 húsrannsóknir eftir
sömu hlutföllum á verðmæti hlutanna.
Hver skilur þetta? Ekki ég, — ekki
þiö.t 1
Áður en ég lík máli minu, vil ég
nota öistutta Btund, til þess að benda
ykkur á þá ómótmælanlegu staðreynd
að það erum við þjóðernissinnar og eng-
inn annar flokkur, sem getur bjargað
þjóðinni úr því ófremdar ástandi, sem
nú ríkír hér á öllum sviðum. Við get-
um og skulum ryðja úr vegi öllum öðr-
um stefnum hverju nafni, sem nefnast,
völdin eru best tryggð í okkar höndum,
þá þarf enginn að vinna 10 ár í stjórn-
arráðinu, sjálfum sér i stórskaða til að
kynnasc þjófnaði og svindli, — 10 dag-
ar ættu að duga
Nasisminn mun gjöra yður frjálsa.
Ath
Svo mörg voru orð GíslaBjarna-
sonar, fyrv. fullltrúa.
Sé ranglega með eitthvað farið,
stafar það aðeíns af misminni og
biðjum vér fyrirlesarann ef svo er,
að leiðrétta það við fyrsta tæki-
færi og skal honum þá Jieimilað
rúm hér í blaðinu, ef það kemur
út oftar.
iiNiiut—innnm:nm»«M