Hermes - 01.12.1960, Síða 3

Hermes - 01.12.1960, Síða 3
Fyrsti kennarinn yfirgefur Bifröst Þetta eiga ekki að vera eftir- mæli, þótt tilefnið sé saknaðar- kennt: Fyrsti kennarinn af þeim, sem störf hófu við Samvinnuskól- ann, er hann fluttist til Bifrastar, er farinn. En iát huggast! Hróar er ekki farinn í merkingu eftirmælanna, heldur er hann fluttur frá Bifröst og hættur að kenna þar. Eftirmann hans þekkjum við ekki og skal því enginn dómur á hann lagður, en okkur sem þekktum Hróar og ým- ist stirnuðum eða svitnuðum und- ir hans handleiðslu þykir skarð fyr- ir skildi, er Hróars nýtur ekki leng- ur við í Bifröst. Þáttur Hróars í mótun félagsanda í Bifröst er ekki ómerkur, þar sem hann fékk fyrstur skólamanna hér á landi það starf að skipuleggja tóm- stundastörf nemenda heils skóla. Þótt ekki væru allir ánægðir með afskipti hans, verður því ekki móti mælt (nú, þegar hann er farinn), að hans þáttur í kennslunni stóð framlagi hinna kennaranna hvergi að baki, þótt á öðru sviði væri. Hróar er maður ekki hár vexti, en þéttur bæði á velli og í lund. Enginn var sá, sem þrjózkaðist við að fara i útivist, ef Hróar brosti við honum, boð hans og bönn voru lög. Þótt Hróar beitti ekki vöðva- afli, vissu allir, að hann átti það til, og forðuðust að hafa afskipti af því. Það er ekki vist, að allir hafi gert sér grein fyrir því, hve ríkan þátt í þróun skólabragsins Hróar átti. Fyrir kom, að skólastjóri var lang- dvöium að heiman, og þá var svo að sjá, sem nemendur væru eftir- Hróar Björnsson — Hreinsunareldinum lokað — litslausir með öllu, höfuðlaus her. En í raun og veru mun það hafa verið Hróar, sem stýrði hernum, og gerði það á svo ljúfan og lát- lausan hátt, að enginn eða a.m.k. mjög fáir veittu því athygli, að hann væri að stjórna. Stundum kom það fyrir, að nem- endur væru ekki sem hrifnastir af Hróari og ræddu um galla hans sín á milli. Ekki hvað sízt bar á þessu í sambandi við lokunartíma á kvöldin, þegar nokkur vanhöld vildu verða á herrans hjörð, og einn og einn vanskilagemlingur var að gefa sig fram eftir að hurðum hafði verið læst og biðja um að fá að fara í sína kró. Bar þá stundum Framhald á 15. síðu. HERME S 3

x

Hermes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.