Hermes - 01.12.1960, Page 6
Enginn engill, en
allir gufuhreinsaðir
Samvinnuskólinn, Bifröst, var sett-
ur, að venju hinn 2. október. Guð-
mudur Sveinsson hefur aftur tekið
við stjórn skólans, eftir árs leyfi
frá störfum. Hróar Björnsson, sem
hefur gengt starfi tómstundakenn-
ara frá því, að skólinn fluttist í
Bifröst, hefur látið af því starfi.
í stað hans höfum við fengið hinn
spræka íþróttakeppa, Vilhjálm Ein-
arsson. Nokkrar breytingar hafa
orðið á kennslu. Snorri Þorsteins-
son hefur tekið við þýzkukennslu
í 1. bekk af Herði Haraldssyni. Aft-
ur á móti hefur Hörður tekið við
kennslu reiknings í sama bekk í
stað Gunnars Grímssonar yfirkenn-
ara. Nýr húsvörður hefur verið ráð-
inn til skólans, Benedikt Jónasson
að nafni.
Karlmenn hafa nú lagt undir sig
Himnaríki, og fyrirfinnst þar því
enginn engill lengur. Öllu því feg-
ursta, sem skólinn skartar, hefur nú
verið fyrir komið í dýpsta dýki, og
hinar frægu vistarverur Himnaríkis
lifa nú aðeins á fornri frægð.
Sá háttur hefur nú verið upp
tekinn í skólanum, að í stað söngs
að loknum morgunverði, er nú les-
inn svokallaður morgunlestur. Nem-
cndur skiptast á um að lesa grein-
arkorn eða kvæði, sem þeim finnst
að eigi erindi til félaganna, geti
orðið eins konar ,,mottó“ dagsins.
Þykjast nú sumir sakna morgun-
söngsins, hafi þeim þótt hann öllu
skárri, því enginn þurfti að syngja,
fremur en hann hafði vilja og getu
til. Aðrir sjá hér upplagt tækifæri
til að láta á sér bera, og eru ný-
breytninni fegnir.
Kórinn hefur ekki enn getað tek-
ið til starfa, vegna veikinda Hall-
dórs söngstjóra Sigurðssonar, og er
óvíst hvort af því geti orðið. Eins
og sjá má af framansögðu, er hin
mesta óreiða á söngmálum skól-
ans. Hinir söngelsku hafa að undan-
förnu veitt sér útrás í óstjórnlegum
samsöng, sem framinn hefur verið
umhverfis píanóið í setustofunni,
öðrum til hins mesta ama, og sjá
menn nú um síðir, að enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Eins og fyrr getur hefur Vilhjálm-
ur Einarsson tekið við starfi tóm-
stundakennara. Hefur hann sýnt
starfi sínu mikinn áhuga, það sem
af er. Einkum hefur hann lagt
áherzlu á ýmiss konar klúbbstarf-
semi. Hafa gömlu klúbbarnir tekið
tilstarfa af miklum krafti, og nýir
verið stofnaðir. Skal hér getið hinna
helztu:
Blaðamannaklúbbur var stofnaður
í haust, og er meðlimafjöldi hans nú
rúmlega tugur manna. Klúbburinn
hefur hafið útgáfu rits, sem Þefar-
inn nefnist, og gegnir hlutverki
fréttablaðs í skólanum. Auk frétt-
anna skrifa blaðamenn frá eigin
brjósti um það, sem þeim finnst
vel eða miður fara í skólalífinu. Rit-
stjóri blaðsins er Baldur Óskarsson,
framkvæmdastjóri Sveinn Guð-
mundsson, og ábyrgðarmaður Vil-
hjálmur Einarsson. Tvö tölublöð
hafa komið út, og hefur þeim verið
vel tekið, og virðist klúbburinn eiga
framtíð fyrir sér,
Fyrirhugaður er útvarpsklúbbur.
Er í ráði, að „útvarpa" dagskrá inn
á hátalarakerfi skólans, þannig að
hennar megi njóta víðast hvar í
byggingunni. Tilraunir í þessa átt
voru gerðar af hálfu nemenda á
síðasta vetri, og tókst það þokka-
lega.
Kvikmyndaklúbbur er enn eitt
nýtt fyrirbrigði í félagslífinu. Til-
gangur hans er að mennta sýning-
armenn, kenna þeim meðferð kvik-
myndavéla. Formaður er Arni Jó-
hannsson.
6
HERMES